Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 7

Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 7
Af ótrúlegri þrautseigju og dugn- aði hélt Sigrún áfram rekstri rekstri glerverkstæðisins ein þrátt fyrir þetta gífurlega áfall. Sýningarnar voru haldnar í Danmörku, í Glas- museet Ebeltoft 13. nóvember-17. febrúar 2005 og í Kunstindustri- museet í Kaupmannahöfn 18. mars- 15. maí 2005. Sú sýning hlaut mikið lof og Kunstindustrimuseet keypti eitt verkanna. A sýningunni í Mos- fellsbæ, sem minnst var á í upphafi þessarar greinar, var hluti af verkun- um sem höfðu verið á þeim sýning- um. í tilefni sýninganna var gefin út vegleg sýningarskrá þar sem eru ít- arlegar upplýsingar um feril lista- mannanna þriggja (Glastráde 2004). Verkin eru sett saman á ný á hverj- um sýningarstað og tekin í sundur aftur. Þetta gerir það að verkum að þau eru aldrei nákvæmlega eins. Reyndar eru þau síbreytileg eftir birtuskilyrðum og eftir því frá hvaða sjónarhorni þau eru skoðuð. Þegar svo ólík efni sem glerið og þráðurinn eru samþætt verða til myndverk sem koma skoðandanum á óvart og eru gjörólík verkum þeirra hvers um sig. Sameiginleg verk systranna hafa fengið lofsamlega umfjöllun erlend- is og myndir birst af þeim í erlend- um listtímaritum. Til dæmis sendu þær inn mynd af verkinu Klaka- bönd (Icebound) í samkeppni til árs- ritsins New Glass Review í maí 2005. Myndin var birt í ritinu og var ein af 100 myndum sem voru valdar úr 2528 litskyggnum sem 931 listamað- ur hafði sent í samkeppnina. Auk þess hlaut hún sérstakt lof dóm- nefndarmanna í ritinu (New Glass Review, s.70). Einnig var birt mynd af verki eftir þær á forsíðu og grein um þær í glertímaritinu Neues Glas - New Glass (Aðalsteinn Ingólfsson 2004). Þegar viðtalið við systurnar fór fram voru þær nýbúnar að senda nýtt verk, Magma (Kvika), á sýn- ingu og samkeppni í Coburg í Þýskalandi, þar sem þær komust í úrslit. Ólöf vinnur tvo daga í viku á glerverkstæðinu hjá Sigrúnu en Kvika eftir Ólöfu og Sigrúnu. Gler, hör og hrosshár 2005. vinnur annars á eigin vinnustofu. Þær vinna þannig að hvor þeirra hefur sína skissublokk sem þær bera saman og sækja hugmyndir hvor til annarrar. Hugmyndir sækja þær greinilega í náttúruna eins og sjá má til dæmis af verkum sem endur- spegla frost (Klakabönd) og funa (Kvika). Þrátt fyrir miklar annir á glerverkstæðinu halda þær áfram að vinna að sameiginlegum listaverk- um og eru með ýmislegt í deiglunni í orðsins fyllstu merkingu. Deigla er einmitt heitið á skálinni eða kerinu sem heitur glermassinn er í þegar hann er bræddur og það er tilhlökk- unarefni að fá að fylgjast með nýjum verkum þar sem textíll og gler fá að njóta sín alveg á nýjan hátt. Ljósm. Guðmundur Ingólfsson Heimildir: Aðalbjörg Ólafsdóttir og Soffía Sigurjóns- dóttir (1993). „Saga glerlistar og gler í Berg- vfk." Vetrarvirki. Björn Th. Björnsson listfræð- ingur sjötugur 3. september 1992. Reykjavík, Mál og Menning. Aðalsteinn Ingólfsson (2004). „The infinite lightness of glass." Neues Glas - Neiv Glass. 4, s. 30-35. Glastráde, [værker af] Soren Larsen, Sigrún Einarsdóttir, Ólöf Einarsdóttir. Sigrún Ein- arsdóttir (ritstj.) (2004). Ebeltoft, Glasmu- seet Ebeltoft. [Sýningarskrá]. New glass review 26 (2005). Corning, N.Y., The Coming Museum of Glass. Rúna Gísladóttir (1988). „Glerfín listsköp- un." Hugur og hönd, s. 16-20. Rúna Gísladóttir (1989). „Nýjabrum." Hug- ur og hönd, s. 24-27. HUGUROG HÖND2006 7

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.