Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 11
vors hafa síðustu ár farið að mestu í
þennan undirbúning. Páll hefur
einnig tálgað fermingarstyttur eftir
sérstökum óskum og þannig hafa
orðið til á verkstæði hans t.d. fót-
boltadrengir, brettastrákar og golfar-
ar.
Mitt í ævintýralegum og skraut-
legum heimi Himneskra herskara
segir hann vera að fást við einingu
þess „primitífa" og þess fínlega.
Þannig eru grunnformin oftast ein-
föld, en mikilli nákvæmni og alúð er
beitt við allan frágang til að gæða
einföld formin lífi og skapa rétt hug-
hrif. Leik með fleiri andstæður má
greina í verki hans, t.d einingu
húmors og hátíðleika. Þessi leikur
vörðustíg og Jólagarðinum í Eyja-
firði. Síðasta sumar heimsóttu eig-
endur Jólagarðsins Pál í bás hans á
Hrafnagili og óskuðu eftir því að
hann hannaði fyrir þau jólatákn þess
árs en um árabil hefur Jólagarðurinn
látið ólíka handverksmenn hanna
jólatákn fyrir hvert ár sem síðan er
selt í takmörkuðum fjölda tölusettra
Fermingarbörn. Ljósm. Kristín Bogadóttir.
má finna kunnuglegri persónur,
sprottnar úr íslenskum veruleika
fyrri alda. Páll hefur tálgað peysu-
fatakonur og fjallkonur, víkinga,
menn í íslenskum búningi og stráka
í lopapeysum og pokabuxum. Þar
nýtur sín vel fínleg vinna Páls en
eins er húmorinn ekki langt undan í
bústnum smávíkingum og peysu-
fatakonum sem hugmyndin er að
hengd séu á jólatré, þó svo að smá-
verurnar hafi ratað víðar. Hér stend-
ur Páll nær íslenskri hefð og fæst við
verkefni sem margir handverks-
menn hafa gert í gegnum tíðina. Allt
ber þó svip heildarverks hans. Eins
og áður sagði var það fyrir tilviljun
og fikt að Páll fór að leggja rækt við
handverk og hefur það haldist í
hendur við nánast enga yfirbygg-
ingu og kynningu af hans hálfu.
Þetta hefur vaxið af sjálfu sér og
óhætt er að segja að verurnar í heimi
Páls hafi sjálfar séð um að koma sér
á framfæri.
Sköpunarverk Himneskra her-
skara hefur tekið á sig margar mynd-
ir, en allt ber það sterk persónuleg
einkenni Páls. Páll leikur sér fimlega
á ýmsum mörkum og vinnur að því
að sameina áhrif úr mörgum og ólík-
um áttum. Grunnstef í vinnu sinni
Páls með andstæð áhrif á sinn þátt í
því hversu breiður hópur hefur sýnt
verkum hans áhuga. Hann hefur
vakið athygli bæði þeirra sem áhuga
hafa á hefðbundnu handverki og
eins þeirra sem meira leggja sig eftir
hönnun og listum. Sá heimur sem
hann hefur skapað höfðar líka sterkt
til barna. Þarna er líka galdurinn
fólginn, í því að sameina ólík áhrif
og skapa úr þeim sjálfstæðan heim.
I ágústmánuði ár hvert kemur
handverksfólk saman á Hrafnagili í
Eyjafjarðarsveit og sýnir verk sín.
Síðustu þrjú ár hefur Páll tekið þátt í
þeirri uppskeruhátíð og hefur hún
haft mikið að segja um vöxt verk-
stæðisins. Á meðan á hátíðinni stend-
ur hefur hann sjálfur setið í bílskúr
inni á Akureyri og unnið. Þá hafa
verk hans verið valin á jólasýningu
Handverks og hönnunar síðustu tvö
ár, vakið mikla athygli gesta og
fengið skemmtilega umfjöllun í
blöðum. Hefur Páll unnið hörðum
höndum alla aðventuna, oft þar til
jólahátíðin er gengin í garð. Á síð-
ustu aðventu var honum einnig boð-
ið að sýna í krambúð Árbæjarsafns.
Hluta af handverki Páls hefur
verið hægt að nálgast í jólaverslun-
um, bæði Jólahúsinu við Skóla-
eintaka. Af því tilefni hannaði Páll
engil, „bjartan og hvítan, tálgaðan í
tré með perlusnúna vængi, engil
fullan eftirvæntingar" eins og segir í
kynningu Jólagarðsins. Þá hefur
verið hægt að nálgast „þjóðlegra"
handverkið í verslun Þjóðminja-
safns, Árbæjarsafns og fleiri verslun-
um. Það hefur haldist í hendur við
hógværð Páls að hann hefur haldið
að sér höndum þegar kemur að
dreifingu sköpunarverksins og margt
hefur einungis verið hægt að nálgast
með heimsókn á verkstæðið.
Það hefur verið skemmtilegt, nú á
tímum kynningar og markaðsátaka,
að sjá hvernig veröld Himneskra
herskara hefur skapað sér rými utan
allra lögmála. En veröldin hefur vax-
ið hratt og oft er erfitt að halda utan
um kaótíska óreiðuna. Páll hefur því
hug á að koma starfsemi Himneskra
herskara í fastara form og hefur í því
samhengi notið ráða og stuðnings
starfsfólks Handverks og hönnunar.
Liður í því er að opna heimasíðu nú á
vordögum, www.himneskirherskarar.
is, þar sem hægt verður að nálgast
handverk hans á vefnum.
HUGUROG HÖND2006 1 1