Hugur og hönd - 01.06.2006, Síða 14
syni og Laufeyju Vilhjálmsdóttur,
skýrslu um málið í Morgunblaðinu
þar sem fram kemur að nefndin hafi
metið að teikningar Kristínar (merkt-
ar 'xXx') væru bestar. Samt sem áður
telja þau „húsgögn þau, er þær sýna
ekki alls kostar þægileg, né heldur
frumleg, og baðstofan sem sýnd er
með þeim í, hefir ekki á sjer neinn
verulegan íslenskan baðstofusvip."
Dómnefndin taldi hins vegar að til-
laga Ríkarðs (merkt með 'tveimur
bogum með striki') væri með dálítið
einkennilegum, gamallegum og al-
þýðlegum og að nokkru leyti ís-
lenskum svip. Þær eru sumar að
ýmsu leyti nothæfar fyrirmyndir til
að gera eftir þau húsgögn, sem þær
sýna, enda þótt hentugra yrði að
víkja í ýmsu frá þeim flestum.
I greinargerð frá Halldóru nokkru
síðar kemur fram að framkvæmda-
nefnd hafi ekki þótt ummæli dóm-
nefndar vera nógu skýr og fullyrðir
að skilyrt hafi verið frá upphafi að
leitað væri eftir „alþýðlegum, gam-
allegum, einkennilegum, íslenskum
nothæfum fyrirmyndum til hús-
gagna í íslenskar stofur." Það hafi
einmitt fundist í tillögu Ríkarðs.
Ljóst er að framkvæmdanefndin tók
sér úrskurðarvald í hendur og
dæmdi verðlaunin til Ríkarðs. I kjöl-
farið urðu nokkur blaðaskrif um
þetta mál, fyrst af hendi ritstjóra
Teikningar Ríkarðs jónssonar. Ljósmxjndastofa Péturs, Húsavík.
14 HUGUROG HÖND 2006