Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 15
Morgunblaðsins, eiginmanns Kristín-
ar, og síðan viðurkenning Ríkarðs á
að hann hafi, að beiðni fram-
kvæmdanefndarinnar, hreinteiknað
uppdrættina áður en þeir voru sýnd-
ir í Skemmuglugganum í Austur-
stræti (Mbl. 26. og 29. júlí 1928).
I september 1928 komst að lokum
niðurstaða í málið þegar stjórn Sam-
bands norðlenskra kvenna ákvað að
afhenda frú Kristínu Jónsdóttur
verðlaunaféð sem heitið var í sam-
keppnina í upphafi og „verðlaun
þau, sem Ríkarður Jónsson hefir
þegar fengið, veitir ársritið Hlín,
sem Halldóra Bjarnadóttir er útgef-
andi að og ábyrgðarmaður fyrir og
eru þær teikningar birtar í Hlín" seg-
ir í yfirlýsingu stjórnarinnar (Mbl.
30. sept. 1928). Þannig var úrskurði
dómnefndar hlítt og báðir aðilar
fengu verðlaun.
íslensku húsgögnin og tilhögun
í baðstofu
í Hlín árið 1928 birtast myndir af
báðum verðlaunatillögunum ásamt
greinargerð Ríkarðs um íslensku
húsgögnin sem ráðgert var að yrði
hægt að fá fullkomnar vinnuteikn-
ingar af hjá Heimilisiðnaðarfélagi ís-
lands áður en langt um liði. Tillögur
hans birtast á þremur myndum: 2
stólar, bekkur og borð (1. mynd), tvö
hlaðborð og hornskápur (2. mynd)
og rúm, fata- eða línskápur og
þvottaborð í horn (3. mynd). Út-
skornir skrauthnútar, nótnaskurður
og höfðaletur voru áberandi skraut
á húsgögnunum, „í hreinum þjóð-
legum stíl" að sögn Ríkarðs. I leið-
beiningum mælti hann með að láta
viðarlitinn halda sér og strjúka
pólitúr yfir, en þó mætti mála hús-
gögnin ef óvandaðri viður væri not-
aður. Aðallitir væru þá „oftast dökk-
grænn, eða fremur dökkblár, einnig
stöku sinnum dökkrauður, en rend-
ur, listar og smátilbreytni húsgagn-
anna skreytt með öðrum litum."
(Ríkarður Jónsson 1928). Það varð
þó nokkur bið á að vinnuteikning-
arnar væru fáanlegar því að það er
ekki fyrr en í Hlín þremur árum síð-
ar, eða árið 1931, að vinnuteikningar
Mynd tekin í stofu Kristínar. Ljósm. í eigu Þjóðminjasafnsins, Þjms JK 6731 b(7628).
af íslenskum húsgögnum, 2 stólum,
borði og hlaðborði eftir Ríkarð Jóns-
son eru auglýstar til sölu.
Ekki hefur verið skoðað sérstak-
lega hvernig vinnuteikningum Rík-
arðs reiddi af, né í hve miklum mæli
var smíðað eftir þeim. Víst er þó að
til eru eintök af þessum gripum,
stólar og borð, sem lengi voru í eigu
Heimilisiðnaðarfélags íslands, en
eru nú á sýningu um líf og störf Rík-
arðs Jónssonar í Löngubúð á Djúpa-
vogi og eign safnsins þar. Tímabært
er því að grennslast fyrir um varð-
veitt eintök af vinnuteikningunum
og hugsanlega fleiri gripum sem
smíðaðir voru eftir teikningum Rík-
arðs af „íslenskum húsgögnum" og
eru allar ábendingar vel þegnar af
höfundi þessarar greinar.
Teikningin af verðlaunabaðstofu
Kristínar Jónsdóttur, eins og hún
birtist í Hlín árið 1928, ber hins veg-
ar sterkan svip af þeim húsgögnum
sem Kristín lét sjálf smíða fyrir fjöl-
skyldu sína nokkru síðar, en hún
flutti í nýbyggt hús við Laufásveg í
Reykjavík árið 1929. Á teikningunni
HUGUROG HÖND2006 1 5