Hugur og hönd - 01.06.2006, Page 17
Stóll Höddu
HeiðurVigfúsdóttir
Hadda, öðru nafni Guðrún H.
Bjarnadóttir, vefari og listakona á
Akureyri hefur unnið að margs kon-
ar handverki um dagana. Einkum
hefur vefnaður verið henni hugleik-
inn. I stofu hennar er margt að sjá og
myndarlegur stóll með afar per-
sónulegu áklæði fangar augu gests
og sagði Hadda því sögu stólsins.
Hadda hafði flutt með fjölskyldu
sinni til Svíþjóðar fyrir 27 árum og
keyptu þau hús af eldri hjónum sem
skildu eftir gamlan hægindastól af
sænskum ættum. Þessi stóll var
þægilegur og vinsæll í fjölskyldunni
og fékk að fara með henni heim, alla
leiðina til Akureyrar. Leið svo tím-
inn þar til stórafmæli húsbóndans
var í vændum, en það varð tilefnið
að þeirri ágætu hugmynd að gera
stólinn upp. Sjálf settist Hadda við
vefinn og óf mjög persónulegt
áklæði þar sem gælunafn húsbónd-
ans er endurtekið eins og sjá má ef
vel er að gáð á meðfylgjandi mynd.
Einnig var stóllinn bólstraður að
nýju og tréverk fágað. Stóllinn hefur
þannig fengið nýtt líf og er sannköll-
uð heimilisprýði.
Uppistaðan í vefnaðinum er
óblæjað lín. ívafið er úr íslenskri ull
frá Istex, sem er tvíband litað í
kemískum litum (Zenit ullarlitum).
Litað er með regnbogaaðferð en þá
er hver hespa marglituð þannig að
hluta af henni er dýft í lit og síðan í
hvern litinn af öðrum. Ofið er með
damaskaðferð á 10 sköftum. Mynstr-
ið var leikið af fingrum fram. Verk-
inu var lokið árið 1997.
Ljósm. Hadda
Aðalstræti 12 101 Reykjavík
HANDVERK OG HÖNNUN CRAFTS AND DESSGM www.handverkoghonnun.is sýningar-ráögjöf-bókastofa-f réttabréf
HUGUR OG HÖND 2006 1 7