Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 24

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 24
menn í afskekktum héruðum Norð- ur-Astralíu eru með verkum sínum að taka þátt í sköpun og viðhalda fornum lögum og lífsreglum jafn- framt því að mála fyrir heimsmark- að. I hverri mynd skilja þeir eftir hluta af sjálfum sér eins og Wand- jina forðum, og áhrifin eru sterk. Alice Springs er fallegur bær í Mið-Astralíu og miðstöð ferða- mannaþjónustu. Eyðimerkurbúarnir eru hagir á tré og í verslunum bæjar- ins má fá ýmsa útskorna muni, svo sem hljóðfæri: didgeridoo og klapp- stengur, vopn: spjót, boomerang og skildi, skrautmuni: dýr og fugla. Einnig má fá punktamyndir frá Papunya Tula og vefnað frá Erna- bella. Pukatja, öðru nafni Ernabella, er afskekkt byggðarlag um 330 km fyr- ir suðvestan Alice. Ernabella var trú- boðsstöð, og árið 1948 var þar kom- ið á laggirnar heimilisiðnaði, bæði til þess að skapa atvinnu fyrir frum- byggjakonurnar og til þess að nýta ullina sem kindur trúboðsstöðvar- innar gáfu af sér. Mynstur kvenn- anna í Ernabella er nú víðfrægt. Það er útfært í vefnaði og batík, prentað á pappír og málað á striga og silki. Papunya byggðarlagið er um 240 km norðvestan við Alice Springs. Þessar búðir, sem yfirvöld komu á fót árið 1960, voru hörmulega rekn- ar. Fólk sem þar var saman safnað talaði fimm tungumál, það var upp- rætt af sínu landi, umkomulaust og sjúkt, og það hrundi niður. Þá kom í byggðarlagið teikni- kennari að nafni Brandon. Hann tók eftir því að börnin teiknuðu hefð- bundin mynstur í eyðimerkursand- inn. Hann reyndi að fá þau til þess að teikna þessi mynstur í skólastof- unni, en gekk illa í fyrstu því að börnin voru feimin. Loks gat hann áunnið sér traust þeirra og fengið leyfi hjá „öldungunum" fyrir því að þau teiknuðu og útskýrðu hefð- bundin tákn. Ekki aðeins börnin fóru að teikna heldur komu fleiri og fleiri úr byggðarlaginu og tóku þátt í þessari listsköpun. Teiknað var und- ir umsjón „öldunganna" sem vegna virðingarstöðu sinnar innan samfé- lagsins skildu táknmál myndanna. Þetta var upphaf Papunya Tula lista- hópsins sem málar punktamyndirn- ar frægu. Það er nútímalist sem á rætur sínar að rekja til þess að eyði- merkurbúar í „miðjunni rauðu" máluðu í sandinn. Við helgihald var málað í sandinn, samhliða söng og dansi, á sama hátt og sungið er við messugjörð og leik- ið á orgel. Að lokinni athöfn máðist myndin út eins og tónar orgelsins deyja út. Þessi handverk urðu því ekki langlíf fremur en líkamsmálun- in, þótt mikið væri til þeirra vandað. Kúríar nefnast frumbyggjar Suð- austur-Ástralíu. í Viktoríufylki er talið að þeim hafi fækkað um 90% fyrstu 18 árin eftir landnám hvítra manna. Eitt af því sem á þátt í því að þessi forna menning glataðist ekki að fullu við svo stórfellt mannfall, niðurlægingu og hörmungar, er handverk sem miðlar hefðbundnum lífsháttum. Dæmi um fornt handbragð er boomerang, kastspjót sem vegna lög- unar sinnar kemur til baka til þess sem kastar því. Kúríar eru góðir boomerang-smiðir. Þegar ljósmyndari þessarar grein- ar var að alast upp í Dandenong- hæðunum í útjaðri Melbourne, rak Bill Onus boomerang-verkstæði sitt í Belgrave. Strákarnir fóru oft á verk- stæðið hjá Bill til þess að skoða eða kaupa sér nýjan boomerang. Þeir höfðu orð á því að „the abos" (orð sem nú er talið niðrandi og er ekki lengur viðhaft, stytt úr „Aborigines") Útskorinn og málaður fugl frá Arnhem- Tákn um breytta tíma. Tótemsúlur frá Boomerang. landi. Ljósm. Helga Benediktsdóttir. Yarra River í miðborg Melbourne. Teiknari Vicky McCalman. Ljósm. Steve Rastrick. 24 HUGUROG HÖND2006

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.