Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 25
Melville Gunbalanya
væru með slípivél frá Detroit í bíl-
skúrnum og væru hættir að tálga
boomerang. Bill Onus var einn af
frumherjum í réttindabaráttu Kúría,
en hann hafði lífsviðurværi sitt af
hefðbundnu handverki þótt hann
hefði tekið tæknina í þjónustu sína.
Boomerang er talsvert vinsælt leik-
tæki og fólk keppir í boomerang-
kasti. Fyrir nokkrum dögum horfði
ég á Kúría einn kenna hvernig þeyta
skyldi boomerang í langan sveig og
grípa hann svo aftur með því að
klappa saman lófunum. Jafnframt
útskýrði hann hvernig boomerang
fyrir örvhenta væri frábrugðinn
boomerang fyrir rétthenta. Eftir flókna
Nú til dags er foreldrum ráðlagt
að bera ungabörn í bak- eða maga-
pokum til þess að þau séu jafnan í
snertingu við foreldrana og finni
fyrir öryggi. Þetta hafa frumbyggja-
listamenn sem byggja á fornri hefð.
Álitið var að frumbyggjar Ástralíu
myndu deyja út. Þeir misstu land
sitt og fæðugjafa og fjölskyldum var
sundrað. Þeir voru niðurlægðir og
réttlausir og þeim var bannað að
tala sína tungu. Þótt mörg samfélög
frumbyggja glími við erfið félagsleg
vandamál hafa listiðnir víða skapað
ákveðna kjölfestu og eru nú eftirsótt
verslunarvara. Handiðja hefur á
þennan hátt gefið umkomulausu
fólki sjálfstraust og sjálfsvirðingu og
skapað því fótfestu í breyttu þjóðfé-
lagi, án þess að það tapi uppruna
sínum og eigin sjálfi.
Dilly-bagji'á Gunbalanya. Spjótfrá Uluru. Hálsfesti, netpoki og klappsteng- Burðarkarfa.
Ljósm. Steve Rastrick. Ljósm. Steve Rastrick. ur. Ljósm. Steve Rastrick. Teiknari Vicky McCalman.
og nákvæma lýsingu á kúrfum og
snúningi bætti hann við, glettinn í
bragði, að líka mætti þekkja þá í
sundur á því að aftan á sumum
stæði „left handed" og öðrum „right
handed". Kúríi þessi hafði smíðað
gripina og bauð þá til sölu á góðu
verði. Þetta var í Healesville Sanctu-
ary, sem áður var Coranderrk,
verndarsvæði frumbyggja. Mamma
boomerang-smiðsins fæddist í Cor-
anderrk og amma hans líka og nú
hafði hann sjálfur, eins og þær, sitt
lífsviðurværi af hefðbundnu hand-
verki.
Coranderrk verndarsvæðið gaf
góða raun. Karlar ræktuðu humal en
konur hnýttu körfur og mottur sem
fólk úr Melbourne sóttist eftir að
kaupa. Með handiðju lögðu konurn-
ar sitt af mörkum til þess að samfé-
lag Kúríanna í Coranderrk gæti
staðið á eigin fótum.
konurnar gert í mörg þúsund ár,
eins og burðarkarfan ber með sér.
Þær hafa sjálfsagt fengið hugmynd-
ina frá kengúrum og öðrum poka-
dýrum Ástralíu. Konumar gátu sinnt
sínum daglegu störfum við fæðuöfl-
un með barnið sitt í körfu um öxl.
Kúríar gerðu sér slár úr skinnum
af pokarottum (possum). Þær eru nú
safngripir og aðeins örfáar eftir.
Slárnar voru úr allt að 80 feldum,
götuðum með kengúruklóm og
saumuðum með kengúrusinum. Inn-
hverfan var skreytt með kennimerkj-
um eigandans, ættflokksins og land-
svæðisins. Sömuleiðis eru haglega
skreytt vopn, álagildrur, fiskinet og
barkarbátar eingöngu safngripir. Sár
á gömlum trjám gefa til kynna að
þar hafi eitt sinn verið tekinn börkur
í bát. Þrátt fyrir stórfellda fólksfækk-
un og menningarhrun í Suðaustur-
Ástralíu eiga Kúríar marga góða
Prentaðar heimildir:
Aboriginal Australia (1986). Sydney, Austral-
ian Gallery Directors Council.
Broome, Richard (1994). Aboriginal Austral-
ians. Black Reponses to White Dominance. St.
Leonards, N.S.W., Allen & Unwin.
Presland, Gary (1994). Aboriginal Melbourne.
The Lost Land of the Kulin People. Ringwood,
Vic., McPhee Gribble.
Söfn:
Ian Potter Centre, Federation Square, Mel-
bourne.
Koorie Heritage Trust, 295 King Street,
Melbourne.
Melbourne Museum, Bunjilaka, Carlton
Gardens, Melbourne.
Vefsíður:
www.aboriginalart.com.au/didger-
idoo/what_is.html
www.emabellaarts.com.au/
www.maningrida.com/mac/a_p.php
www.tiwiart.com/Munupi/centre/
muncentre.htm
www.wsws.org/articles/2001/aug2001/
tula-a24.shtml
HUGUROG HÖND2006 25