Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 40

Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 40
Drottningardúkurinn Monika Magnúsdóttir í febrúar 1936 bárust þær fréttir frá Danmörku að Kristján X. konungur og Alexandrine drottning hans ráð- gerðu heimsókn til íslands og Fær- eyja það sama sumar. Þann 18. júní kom konungsskipið Dannebrog ásamt fylgdarskipunum Ingolf og Hvidbjörnen til Reykjavíkur. Tíu til fimmtán þúsund manns fögnuðu Kristjáni X. og Alexandrine drottn- ingu, ásamt Knúti prins og Caroline Mathilde konu hans og öðru fylgd- arliði, þegar þau stigu á land í Reykjavík. Mikið var um dýrðir, tuttugu og sjö fallbyssuskotum var skotið frá Ingolf og Hvidbjörnen, þjóðsöngurinn leikinn, ávörp flutt og upp landganginn að Faxagarði var lagður „dúkrenningur". Með- fram dreglinum stóðu sjötíu „smá- meyjar" í léttum sumarkjólum og allar með lítinn sóleyjavönd. Næstu daga voru ýmsir atburðir skipulagðir í höfuðstaðnum og einnig á Suðurlandi. Konungur fór m.a. á ríkisráðsfund og íþróttamót var haldið á íþróttavellinum á Mel- unum. Mikið ferðalag var farið til þess að sjá Geysi gjósa en þrátt fyrir mikla og góða skipulagningu neitaði Geysir að sýna hvers hann var megnugur. Þann 24. júní lét Dannebrog úr höfn og nú var haldið upp á Akra- nes, þar sem konungshjónin og fylgdarlið stigu í bíla og héldu ak- andi norður í land, gist var á Blönduósi og daginn eftir haldið út á Sauðárkrók og stansað á Arnar- stapa í blíðskaparveðri þar sem út- sýnið var dásamað. Að Víðivöllum var snæddur hádegisverður sem að- allega var gamall íslenskur sveita- matur. Tjaldað hafði verið miklu Ljósm. Helgi Bragason. tjaldi, „Skagfirðingabúð", vegna há- degisverðarins og þegar honum var lokið var einn veggur tjaldsins felld- ur niður og „... Skagafjarðarhérað, frá Mælifellshnúk að Tindastól, blasti við boðsgestum í allri sinni dýrð." Dannebrog hélt síðan með fríðu föruneyti frá Sauðárkróki til Akureyrar, en bílarnir héldu áfram yfir Öxnadalsheiði. Á Akureyri var að vonum mikið um dýrðir og eitt til tvö þúsund manns tóku þar á móti konungi og fylgdarliði með níföldu húrrahrópi. Síðan var haldið yfir Vaðlaheiði að Goðafossi, þar sem karlakórinn Geysir söng fyrir gesti og enn var haft uppi nífalt húrrahróp. Mývatns- sveit var næsti áfangastaður og fór móttakan fram í Höfða þar sem 200 manns biðu konungs og fylgdarliðs. Veðrið var einmuna gott og útsýni yfir sveitina fagurt. Albert Eng- ström, sem viðstaddur var móttök- una „... kvaðst lofa drottin fyrir, að honum skyldi hafa auðnast að fá að vita, að svona fagur staður skyldi vera til á yfirborði jarðar." Síðan var haldið aftur til Akureyrar með við- komu á Laugum í Reykjadal. Haldið var af landi brott eftir konungs- veislu um borð í Dannebrog. I skrifum danskra blaða eftir heimkomu konungs og fylgdarliðs 40 HUGUROG HÖND2006

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.