Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 43
Nærmynd afhandlínu, Þjms. A 2581.
mmm
:;Kai
:-$m\
Púðaborð. Saumaö í ullarjava með áströlsku ullargarni frá Gumnut, Gemstones (litir
AZ24 blátt, 01 fölgrænt, 05 grænt) og Blossom (176, bleikrautt).
Elsu E. Guðjónsson um handlínu
Hólmfríðar Pálsdóttur í Hug og hönd
1986 en þar gerir Elsa nákvæma
grein fyrir sérstakri útsaumsgerð
sem aðeins er að finna á þessum
eina grip hér á landi.
Handlínurnar á Þjóðminjasafninu
eiga það sameiginlegt að á þeim er
dýrindis útsaumur en mynstrin eru
fjölbreytileg og útsaumsgerðirnar
einnig. Þar koma fyrir a.m.k. 4 gerð-
ir af krosssaumi, raksprang og rið-
sprang, flatsaumur, holbeinssaumur
o.fl. Oftast er útsaumaður bekkur
umhverfis og útsaumaðir ferningar í
hornunum og stundum einnig í
miðjunni, eins og handlína Hólm-
fríðar er gott dæmi um. Þær eru ým-
ist saumaðar með silki, hör eða ull,
sumar eru einlitar hvítar en sumar
marglitar. Stærð þeirra er mismun-
andi, allt frá rétt rúmlega 50 sm og
upp í rúmlega 80 sm á kant.
Handlínan með safnnúmerinu A
2581 kom á safnið 14. desember 1884
og er í safnskrá sögð vera úr eigu
dóttur séra Páls Ingimundarsonar í
Gaulverjabæ (d. 1879) sem telur
handlínuna vera a.m.k. 250 ára eða
frá fyrri hluta 17. aldar. Handlínan
er úr hvítu lérefti, u.þ.b. 80 sm á
kant og með útsaumuðum bekk um-
hverfis en í hverju horni er útsaum-
aður ferhyrningur, tæplega 12 sm á
kant. Handlínan er saumuð með
bleiku, bláu, grænu og hvítu silki í
örfínan hör og er hún svo listilega
saman sett, bæði mynstur, litir og
saumaskapur að þeir sem eru svo
lánsamir að fá að sjá hana grípa and-
ann á lofti. Hér hefur sannkallaður
meistari um vélað. I handlínunni
eru dálítil tilbrigði í því hvernig lit-
unum er raðað saman í ferhyrning-
unum og mynstrið er ekki nákvæm-
lega eins í þeim öllum, þó að svo
virðist við fyrstu sýn. Þegar nánar er
að gáð kemur í ljós að meistarinn
virðist hafa saumað af fingrum fram
þannig að engir tveir ferhyrningar
eru nákvæmlega eins.
Mynstrið
Mynstrið í púðaborðinu er teiknað
eftir ljósmyndum af einu horni
HUGUROG HÖND2006 43