Hugur og hönd - 01.06.2006, Síða 50
seinna að kennsla yrði hafin og
kenndar fjórar greinar: efnafræði,
fríhendisteikning, verklegt nám í
trésmíði og myndskurður. Arangur
þessa námskeiðs leiddi af sér að
tveir félagar okkar luku þar sveins-
prófi vorið 2000, þau Anna Lilja
Jónsdóttir og Örn Sigurðsson. Próf-
verkefni þeirra voru útskorin
spjöld í endurreisnarstíl (renais-
sance). Prófdómarar voru þeir Jón
Hannesson húsgagnasmiður og
Sveinn Ólafsson myndskurðar-
meistari sem jafnframt kenndi
verklega þáttinn. Þá hafði enginn
útskrifast sveinn í myndskurði í 46
ár. Sá síðasti sem tók próf var Egill
Sveinsson. Hann lærði hjá Ríkarði
Jónssyni myndskera og lauk
sveinsprófi í júní 1954.
Lokaorð
Af framansögðu má sjá að margt
og margvíslegt hefur verið á dag-
skrá hjá félaginu þau ár sem það
hefur starfað, en margt er ennþá
ósagt sem gaman hefði verið að
segja frá í þessu greinarkorni. Þeg-
ar þessi grein birtist verður félagið
orðið 10 ára, af því tilefni var
ákveðið að halda afmælissýningu í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Þar voru sýnd öll bestu verk fé-
lagsmanna sem unnin hafa verið á
þessu 10 ára tímabili, auk þess sem
þar voru nokkur verk eldri meist-
aranna. I tilefni afmælisársins var
efnt til teiknisamkeppni meðal fé-
lagsmanna, þessar teikningar voru
til sýnis, úrslit dómnefndar kynnt
og verðlaun afhent við opnun sýn-
ingarinnar.
Það má segja að Félag áhuga-
manna um tréskurð sé búið að slíta
barnsskónum og blómaskeið sé
framundan. Góður grunnur var
lagður í byrjun ferðar, sem félagið
hefur ætíð síðan starfað eftir og
ávallt haft til grundvallar í starf-
semi sinni.
I aðalstjórn félagsins eru Frið-
geir H. Guðmundsson, formaður,
Halldór Vilhelmsson, gjaldkeri og
Guðmundur Ketill Guðfinnsson,
ritari. Meðstjórnendur eru Bjarni
Þór Kristjánsson og Örn Sigurðs-
son. Ritstjóri fréttablaðsins Brýnið
er Anna Lilja Jónsdóttir.
Ég vil ljúka þessum skrifum
mínum sem að mestu hafa fjallað
um fyrri ár félagsins með vísunni
sem höfðar svo vel til virrnu okkar
tréskurðarmanna.
Sá er galdur allur á
andinn vandi hlutinn,
fái vald og einurð á
augu, hönd og kutinn.
Norræn samtök
heimilisiðnaðarfélaga
Nordens hnsflidsforbund eru samtök
heimilisiðnaðarfélaga á Norður-
löndum auk Eistlands. Heimilisiðn-
aðarfélag íslands gegnir for-
mennsku í samtökunum tímabilið
2004-2007. í hlutverkinu felst að
stýra norrænu samstarfi með því að
standa fyrir árlegum formanna-
fundum heimilisiðnaðarfélaganna
auk þess að halda veglegt þing í lok
tímabilsins.
Til þess að halda utan um nor-
ræna verkefnið hefur frá því í byrj-
un árs 2005 verið starfandi sérstök
nefnd innan félagsins. í nefndinni
eru Margrét Valdimarsdóttir for-
maður, Asdís Birgisdóttir ráðskona
félagsins, Dagbjört Gunnarsdóttir,
Danfríður Skarphéðinsdóttir, Frið-
björg Kristmundsdóttir og Soffía
Magnúsdóttir.
Formannafundir
Arlegur formannafundur norrænu
heimilisiðnaðarsamtakanna var
haldinn í Stokkhólmi í lok septem-
ber 2005. Vegna formennsku HFÍ í
samtökunum hafði félagið veg og
vanda af dagskrá og fundarstjórn.
Við undirbúning og framkvæmd
fundarins var viðhöfð sú nýbreytni
að öll gögn voru bæði á dönsku og
Útskornar sænskar krúsir.
(höf. ókunnur.)
Nei, það skyldi enginn halda, að farangur prófastsdótturinnar hafi ver-
ið neinn hégómi, það var vönduð og hreinleg vara, þótt hún væri
kanski ekki öll með Parísarsnikk. ... Auk hinna tólf kjóla, sem sumir
hverjir voru saumaðir úr silki, flaueli, satíni og krepdusíni, þá voru hér
niðurlagðir í ferðakisturnar tíu hvítir ullarbolir úr hinu landsfræga
bandi, ásamt jafnmörgum nærskjólum rauðum, tíu blúndulagðir
nærkuflar úr þunnu lérefti og jafnmörg yfirskjól úr dýru efni með píf-
um fyrir neðan hnéð, sex undirlíf útsaumuð frá hlýraböndum niður í
fald, sex útprjónaðar klukkur, átta millipils af ýmsum lit, sum úr brak-
silki, önnur með hekluðu millumverki og útsaumuð, sjö útsaumaðir
náttserkir, tvær dúnsængur, tólf lök og jafnmörg koddaver, allt með
hekluðum bekkjum, og tuttugu handklæði.
Halldór Laxness,
„Ungfrúin góða og húsið", Fótatak mannanna.
Þorsteinn M. Jónsson, 1933, s. 14-15
50 HUGUROG HÖND2006