Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 55

Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 55
ÞÆFING FELTMAKING, Deborah McGavock and Lewis, The Crowood Press Ltd., Ramsbury, Marlborough, Wiltshire, Great Britain 2000, ISBN 1-86126-308-2. I upphafi bókarinnar er góð söguleg lýs- ing á þæfingu og rætt um efni og áhöld. Síð- an er mismunandi aðferðum lýst, en í hverj- um kafla er bætt ofan á fróðleik fyrri kafla. Bókin er prýdd fjölda mynda og teikninga til frekari skýringar. □□□ □□□ FILT - Enkle Teknikker, Bente Ravn Toft, Forlaget Klematis A/S Danmark 2005, ISBN 87-7905-938-4. Þessi bók sýnir aðferðir við þæfingu eins og flestar svona bækur gera en aðalkosturinn við þessa bók er fjöldi skemmtilegra aðferða og hugmynda sem í henni eru. HITT OG ÞETTA THE COMPLETE ENCYCLOPEDIA OF NEEDLEWORK, Thérése de Dillmont, Run- ning Press, Philadelphia, Pennsylvania, 2002 (bókin mín er gefin út 1978) ISBN 0-7624- 1318-2. Þetta er einfaldlega handavinnu „biblían". Bókin er skrifuð um 1880 og hefur verið end- urútgefin nokkrum sinnum án nokkurra breytinga, meira að segja myndir og teikning- ar eru frá 19. öld. í bókinni eru kaflar um alls konar útsaum, prjón, hekl, knipl, orkeringu, hnýtingar, og margt margt fleira. THE COMPLETE pncyclopedia OfNeedlework THE HARMONY GUIDE TO CROCHET- ING, Debra Mountford, editor, Harmony Books, New York 1992, ISBN 0-517-88074-1. Mjög góð bók um hekl með fjöldann allan af mynstrum og aðferðum sem er lýst í máli og myndum skref fyrir skref. Ljósmyndir og teikningar fylgja öllum mynstrum. METAL THREAD EMBROIDERY METAL THREAD EMBROIDERY, Jane Lemon, B.T. Batsford, London 2004, ISBN 0- 7134-8926 X. Ég fékk þessa bók nýverið og þótt ég hafi ekki kafað mjög djúpt í hana þá eru kostir hennar augljósir. Efnið er í stafrófsröð þannig að auðvelt er að fletta upp í henni. Efni og áhöldum eru gerð góð skil og aðferðum er lýst á einfaldan og skýran hátt með teikning- um og ljósmyndum. LE GRAND LIVRE DE LA BRODERIE Tutti Frutti, Un Dimanche aprés midi, by Hoddard and Stoughton, Ltd. London, reprint by speci- al arrangement) 2005, ISBN 2-915667-18-7 (á frummáli THE ENCYCLOPEDIA OF STITCH- ES, Karen Hemingway, editor, New Holland Publishers (UK) Ltd. 2004ISBN 1-845-37203-4). Ég var í París s.l. haust (2005) og fór inn í bókabúð í kjallara Louvre-safnsins. Þar fann ég þessa bók. Hún heillaði mig vegna þess hve vel aðferðir eru sýndar með myndum og teikningum. Flestum gerðum útsaums er lýst í bókinni og þótt ég hafi ætlað að slá tvær flugur í einu höggi með því að kaupa hana á frönsku svo að ég myndi neyðast til að viðhalda frönskukunnátt- unni komst ég seinna að því að hún var upphaflega gefin út á ensku. Hún kunni ekki aðeins alt sem laut að ullarvinnu frá því sauðkind er rúin og þángatil reyfið er orðið að flík. Hún kunni einnig að setja upp vefstól og vefa bæði einfaldan vefnað og margskeftan, jafnvel salúnsofin brekán ef því var að skifta, og voru dýrgripir og listaverk í senn, að minstakosti í samanburði við auvirðilegt búðarskítti einsog haft er ofan á rúm núna. ... I þá daga voru oft ofnar fallegar voðir á sveitabæum, og geingið frá þeim að aldagömlum landsið, síðan voru þær einkum hafðar í karlmannafatnað. En slík vaðmálsföt þóttu ekki fín á Is- landi, allra síst til sparifatnaðar, fyren farið var að flytja inn skoskan og írskan vefnað af sama tagi og var sagður í heiðri hafður af heldri mönnum og lávörðum í Bretlandi og kallaður tweed: Harris Tweed, Donegal Tweed osfrv. í þeim fátæktarheimi sem við lifum í núna ku lávarðar ekki leingur hafa efni á að gánga í tweed. Halldór Laxness, I túninu heima. Vaka-Helgafell, 1975, s. 106-107. HUGUROG HÖND2006 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.