Gríma - 01.09.1940, Page 27
Á BREIÐAMERKURJÖKLl
25
þrúgaðir á milli jaka. Tveir þeirra voru lifandi, en
hinir dauðir. Jón Pálsson og hinir hestarnir þrír sá-
ust hvergi. Niður í þetta jökulgjögur klifraði nú
pósturinn ásamt öðrum manni, til þess að leita Jóns
og hestanna. Var það ægilegur lífsháski að hætta
sér út á jökulsigið, því að stórir og smáir jakar voru
þar á floti í jökulvatninu, enda var þetta beint upp
undan austasta útfalli árinnar úr jöklinum. Þar
fundu þeir aðra tvo hesta, og var annar þeirra lif-
andi. Stóð hann þar á milli tveggja jaka, sem voru
sporðreistir þannig, að þeir mynduðu þak yfir hann.
Manninn og koffortahestinn gátu þeir með engu
móti fundið. — Þá var maður í skyndi sendur aust-
ur í Suðursveit, til þess að sækja menn og áhöld til
björgunar þeim hestum, er lifandi voru í gjánni.
Hinir biðu við jökulinn á meðan, enda voru þeir
orðnir mjög þjakaðir af erfiðinu. Síðara hluta dags
komu nokkrir menn að austan með sendimanni, og
tókst þá við illan leik að bjarga tveimur hestunum,
en hinum þriðja, sem sézt hafði undir jakaþakinu.
varð eigi náð þá um kvöldið, því að nótt var að detta
á. Póstur varð að snúa aftur austur yfir, og fólkið
með honum, og gisti hann á Reynivöllum um nótt-
ina. Kom hann hestunum, er náðst höfðu mjög þjak-
aðir, með sér austur, og urðu menn hvíldinni fegnir
eftir vos og erfiði dagsins, en hörmuðu sárt fráfall
Jóns.
Morguninn eftir lagði póstur aftur af stað með sex
menn til hjálpar hestinum, ef hann fyndist lifandi,
og til nákvæmari leitar. Þegar þeir komu á vettvang,
var þar kominn Björn bóndi Pálsson. Hafði hann
lagt af stað í dögun um morguninn frá sæluhúsinu
og hraðað mjög för sinni austur á jökul. Voru þar