Bændablaðið - 09.02.2017, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
Breytingar verða á úthlutun tollkvóta og nýir tollasamningar taka gildi á árinu:
Áhrifin geta orðið umtalsverð
Föstudaginn 3. mars verður
ársfundur Bændasamtakanna
haldinn í menningarhúsinu Hofi
á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn
sem samtökin halda ársfund
en Búnaðarþing er nú haldið á
tveggja ára fresti.
Ásamt hefðbundnum aðal-
fundarstörfum verður haldin opin
ráðstefna þar sem framtíð íslensks
landbúnaðar verður til umfjöll-
unar undir kjörorðinu „Búskapur
morgundagsins“. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra
ávarpar ráðstefnuna en síðan taka
við fjölbreytt erindi og umræður.
Meðal fyrirlesara eru Ari Trausti
Guðmundsson alþingismaður sem
fjallar um nýsköpun, sjálfbærni
og kolefnislausnir í landbúnaði og
Auður Magnúsdóttir, hjá LbhÍ sem
fjallar um sjálfbærni og tækifæri til
aukinnar hagsældar. Þá mun Oddný
Anna Björnsdóttir, sem starfar hjá
Krónunni, fjalla um strauma og
stefnur í versluninni.
Tækniáhugamenn fá eitthvað fyrir
sinn snúð því Finnbogi Magnússon
landbúnaðartæknifræðingur mun
fjalla um nýjustu tækni í landbún-
aðartækjum og orkunotkun. Bessi
Freyr Vésteinsson, vélaverktaki
og bóndi í Hofsstaðaseli, segir frá
reynslu sinni af vélaverktöku og
ræðir tæknilausnir og hagkvæmni
í þeim efnum. Í lokin mun Brynjar
Már Karlsson, sem starfar við
nýsköpun og þróun hjá Marel,
segja frá tækni við úrvinnslu búvara,
meðal annars m.t.t. rekjanleika og
upplýsingagjafar til neytenda.
Ráðstefnan er öllum opin.
Bændahátíð um kvöldið
Um kvöldið verður haldin bænda-
hátíð í Hofi þar sem bændum lands-
ins og velunnurum landbúnaðarins
gefst kostur á að gera sér glaðan dag.
Miðaverð er einungis 7.500 kr. fyrir
félagsmenn BÍ. Fullt verð er 8.900
kr. Nánari upplýsingar um kvöld-
skemmtunina, skemmtiatriði og
matseðil, er að finna á www.bondi.
is og í auglýsingu hér í blaðinu á bls.
33. Miðapantanir er hægt að gera í
síma 563-0300 og á bondi.is til 28.
febrúar. /TB
Fljótlega eftir að ný ríkisstjórn
tók við stjórnartaumunum var
ljóst að stefnt yrði að breytingum
í úthlutun á tollkvótum búvara á
nýju ári. Það kom fram í stjórn-
arsáttmála að endurskoða þyrfti
ráðstöfun innflutningskvóta og
var síðan ítrekað af Benedikt
Jóhannessyni fjármálaráðherra og
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra.
Dýrir tollkvótar geta leitt til
hærra matvöruverðs
Breytingarnar á úthlutunum hafa
ekki verið útfærðar en Benedikt
sagði á Alþingi, við umræður um
stefnuræðu forsætisráðherra, að
dýrir tollkvótar mættu ekki verða
til þess að hækka matvöruverð til
neytenda óeðlilega mikið. Eins og
fyrirkomulagið hefur verið fram
að þessu hefur verið boðið í þessa
kvóta, ef eftirspurn er umfram
framboð. Sá sem býður hæst hverju
sinni fær kvótann, en sé engin
umfram eftirspurn er ekkert greitt
fyrir hann. Aðrar mögulegar leiðir
gætu til dæmis falist í úthlutun með
hlutkesti eða að þeir fái úthlutun
sem fyrstir sækja um.
Tilgangur boðaðra breytinga er
því að koma í veg fyrir að verð á
þessum búvörunum til neytenda
hækki of mikið.
Líklegt er að áhrifin verði enn
meiri í kjölfar gildistöku tollasamn-
ings Íslands og Evrópusambandsins
(ESB), sem var undirritaður síðast-
liðið haust um gagnkvæma niður-
fellingu á tollum. Ísland hefur þegar
fullgilt samninginn en ESB hefur
ekki lokið því sín megin.
Tekur líklega gildi seint á árinu
Endurskoðuð tollalög tóku gildi um
síðustu áramót og þar með er inn-
flutningur hingað til lands orðinn
að mestu tollfrjáls, nema á tiltekn-
um landbúnaðarvörum. Sigurður
Eyþórsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Íslands, segir að
eftir standi einkum tollar á þeim
landbúnaðarvörum sem einnig eru
framleiddar hér á landi. „Nánar
tiltekið megum við leggja tolla
á rúman þriðjung (37,4 prósent)
þeirra tollnúmera sem ná yfir
landbúnaðarvörur í tollskrá. Eins
og fyrir liggur hafa flestar land-
búnaðarvörur verið fluttar inn
hér án tolla lengi; svo sem allar
kornvörur, allir ávextir og mest af
grænmeti – sem sumt ber þó tolla
þegar íslensk framleiðsla er í boði.
Athugið að hérna er ég að tala um
almenna tolla. Innflutningur frá
einstökum svæðum eins og ESB
er rýmri. Sambandið telur sjálft að
með gildistöku nýs tollasamnings
þá verði hægt að flytja 90 prósent
þeirra landbúnaðarvara sem fram-
leiddar eru innan ESB, tollfrjálst
til Íslands.
Tollasamningurinn milli Íslands
og Evrópusambandsins var fullgiltur
af Íslandi síðastliðið haust en ekki
ESB. Dagsetning gildistöku hans
liggur ekki fyrir. Samningurinn þarf
að fara fyrir Evrópuþingið og við
vitum ekki hvenær afgreiðslu þess
lýkur. Nú stendur yfir umfjöllun í
þingnefnd. Að fengnu samþykki
þingsins þá er endanleg staðfesting
í höndum ráðherraráðsins. Eftir
að báðir aðilar hafa lokið öllum
formsatriðum og skipst á bréfum
þess efnis þá er gildistakan sjálf 6
mánuðum síðar.
Fram að gildistöku getur hvorug-
ur nýtt sér samninginn hvorki til að
flytja vörur inn eða út. Samningur
sem gerður var samhliða um gagn-
kvæma viðurkenningu afurðaheita
hangir saman við tollasamninginn
þannig að hann tekur gildi samhliða.
Miðað við að málið er ekki komið
lengra en raun ber vitni finnst mér
ekki líklegt að samningurinn taki
gildi fyrr en undir lok þessa árs,“
segir Sigurður.
Þrengir að svína- og
kjúklingabændum
Í samningunum við ESB felst að
tollar verða felldir niður á yfir 340
tollskrárnúmerum gagnkvæmt milli
samningsaðila, auk þess sem lækk-
un verður á yfir tuttugu öðrum.
Ekki báru allar vörur á þessum
númerum tolla á Íslandi og því er um
að ræða raunverulega niðurfellingu
tolla á yfir 100 tollskrárnúmerum
sem áður báru tolla.
Evrópusambandið fellir niður
tolla á 8.800 tonnum af íslenskum
búvörum. Á móti fellir Ísland niður
toll á 3.812 tonnum. Tollfrjáls kvóti
af svínakjöti inn á Íslandsmarkað
er nú 200 tonn, en verður 700 tonn
eftir breytingarnar. Kvóti fyrir ali-
fuglakjöt var einnig 200 tonn en
verður 856. Þá er verulega bætt í
kvóta fyrir nautakjöt, sem fer úr
100 tonnum í 696 tonn.
Líklegt er að einhverjir íslensk-
ir svína- og kjúklingabændur
muni fara illa út úr þessum tolla-
breytingunum. Það sem snýr að
þeim kemur til framkvæmda á
fyrstu tveimur árum samningsins.
Samkeppnisumhverfi þessara
bænda mun harðna og samhliða
þurfa takast þeir á við breytingar á
húsakosti sínum til að mæta hertum
aðbúnaðarkröfum.
Mun reyna á þolrif
íslenskra svínabænda
Björgvin Jón Bjarnason, formað-
ur svínabænda, segir stöðuna sem
blasir við svínabændum frekar
óvenjulega. „Við sjáum í fyrsta
sinn í innflutningstölum fyrir
nóvember 2016 að innflutt magn
af svínakjöti er um 85 prósent af
innlendri framleiðslu mánaðarins,
sé miðað við dýr á fæti. Nokkra
mánuði á undan hafði innflutn-
ingur numið um 40-50 prósent af
innlendri framleiðslu. Þessar tölur
boða nýjan veruleika fyrir okkar
stétt,“ segir Björgvin. Hann telur
að óvissa sé með afleiðingarnar á
greinina af hinum nýja tollasamn-
ingi. „Það er ekki gott að segja
til um áhrifin á markaðinn. Það
sem er erfiðast fyrir markaðinn
er að ekki er hægt að sjá fyrir um
framboðið. Ein af meginforsend-
um svínaræktar er að losna við
gripi til slátrunar á réttum tíma.
Miklar sveiflur í innflutningi geta
valdið jafnt skorti og offramboði á
ákveðnum vöruliðum. Hvorugur
kosturinn er góður fyrir markað-
inn, til lengri tíma litið. Svín eru
haldin á nálægt 20 búum á landinu.
Gangi forsendur sérfræðiskýrslna
eftir, sem voru unnar fyrir okkur
vegna kostnaðar við aðbúnað-
arreglugerð sem og áhrif tolla-
samnings, mun reyna mjög á þol-
rif íslenskra svínabænda á næstu
misserum. Lækkun tekna og
hækkun útgjalda er að jafnaði ekki
skynsamlegur kokkteill, en upp
á þetta er boðið í þessu samspili
tollasamninga og fjárfestinga við
að uppfylla aðbúnaðarreglugerð.
Í flestum nágrannalöndum okkar
eru þessar fjárfestingar styrktar
býsna myndarlega, enda er þetta
átak í dýravelferð skilgreint sem
samfélagsverkefni en ekki einka-
mál hvers bónda. Þessi skilningur
hefur því miður ekki verið ríkjandi
hér á landi.
Þá er einnig fremur grátbroslegt
að horfa upp á að engin tilraun virð-
ist vera gerð í að afla upplýsinga
um hvort þær afurðir sem fluttar eru
inn séu af dýrum sem hafa hlotið
svipaða meðferð og áskilin er hér-
lendis. Það er reyndar ljóst í veiga-
miklum atriðum, að svo er ekki.
L a n g k o s t n a ð a r s ö m u s t u
breytingar sem þarf að gera á
íslenskum svína búum snúa að
gyltuhaldi. Samkvæmt aðbúnað-
arreglugerð þarf annaðhvort að
breikka bása verulega eða að halda
gyltur í lausagöngu. Þessi breyting
kallar á heilmiklar framkvæmdir
og fjárfestingar í innréttingum,
breytingar á fóðurkerfum og fleira.
Seinna mun einnig þurfa að skipta
út öllum gotbásum svínabúanna.
Breytingar vegna eldisgrísa eru
flestar einfaldari.
Aukin rýmisþörf á hverja gyltu
mun draga úr innlendri framleiðslu
svínakjöts, nema að menn fjárfesti í
nýjum gyltubúum.“
Ósanngjörn samkeppni
Ingimundur Bergmann, formað-
ur kjúklingabænda, segir að hans
f é l agsmenn
hafi mótmælt
samningnum
frá því hann var
fyrst kynntur
til sögunnar
haustið 2015.
„Samkeppni
af þessu tagi
er að okkar
mati ósann-
gjörn vegna
þess að kröfur
sem gerðar eru
til framleiðenda á Íslandi annars
vegar og í ESB-löndum hins vegar
eru ólíkar. Líka þarf að hafa í huga
að stuðningur við framleiðsluna er
ólíkur milli landa, til dæmis var farin
sú leið í Evrópusambandslöndunum
við innleiðingu nýrra velferðar-
reglugerða að bændum var veittur
stuðningur af hálfu ríkisvaldsins
til að þeir gætu uppfyllt hin nýju
skilyrði,“ segir Ingimundur.
Velferðarreglugerðin
góður vegvísir
Ingimundur tekur fram að vel-
ferðarreglugerðin íslenska, sem
gefin var út í ársbyrjun 2015, sé
að flestu leyti góður vegvísir til
framtíðar um framleiðsluhætti og
fleira að mati íslenskra kjúklinga-
bænda, en tollasamningurinn við
Evrópusambandið sé annað mál.
Með reglugerðinni sé fram-
leiðslugeta íslenskra kjúklingabúa
þó skert og við því þurfi að bregð-
ast með ýmsum kostnaðarsömum
aðgerðum. „Við þurfum að ráðast í
endurbætur á húsnæði og byggingu
nýrra húsa til að mæta framleiðslu-
skerðingunni sem af reglugerðinni
hlýst. Enginn aðlögunartími var
gefinn til þeirra hluta.
Kostnaðarsamastar eru
nýbygging arnar, en einnig getur
þurft að ráðast í lag færingar og
breytingar á eldri húsum sem
vissulega kosta sitt meðal annars
vegna framleiðslustöðvunar á fram-
kvæmdatíma auk annars kostnaðar.
Á sama tíma og greinin þarf að
takast á við breytingarnar í aðbún-
aðarreglugerð var gerður nýr tolla-
samningur við ESB sem felur í sér
aukinn innflutning á alifuglakjöti
og svínakjöti auk ýmissa annarra
landbúnaðarafurða. Það er ekki séð
til þess samhliða, að þær vörur sem
til stendur að fluttar verði inn til
Íslands séu framleiddar við samb-
ærilegan skilyrði og krafist er hér-
lendis. Hvorki hvað varðar hrein-
leika né aðbúnað. Þessu höfum
við kjúklingabændur mótmælt frá
byrjun og kannski er það að bera
árangur, því nú er farið að glitta í
reglugerð sem tekur á þeim málum,
það er á þann veg að hægt verður að
krefjast þess að upplýst verði hvað-
an varan sem verið er að flytja inn
til Íslands sé raunverulega komin,
en ekki bara frá hvaða landi hún
kom til Íslands,“ segir Ingimundur.
Verðfall á kjöttegund getur skert
möguleika annarrar
Áhrif þessa innflutnings á íslensk-
an kjötmarkað gætu orðið skað-
leg. Innflutningur til landsins á
afgangsframleiðslu annarra landa,
hefur augljóslega þær afleiðingar
að skerða möguleika íslenskra
bænda. Líta verður á kjötmarkað-
inn sem eina heild og verðfall á
einni kjöttegund getur skert mark-
aðsmöguleika annarra kjöttegunda.
Því er það, að það sem hugsanlega
var gert til að liðka til fyrir mark-
aði fyrir lambakjöt (til ESB-landa),
getur haft þau áhrif að verðfall
verði á innlendum kjötmarkaði
vegna innflutnings til landsins
á erlendu afgangskjöti af öðrum
tegundum – sem vegna tollasamn-
ingsins er alifugla, svína og nauta-
kjöt aðallega. Engin greining var
unnin af hálfu íslenskra stjórnvalda
á afleiðingum tollasamningsins á
íslenskan landbúnað.
Samkvæmt minni félagaskrá
eru kjúklingabændur í Félagi
kjúklingabænda rúmlega 20. Þá
eru ótaldir kjúklingabændur sem
tengjast ,,Matfugli ehf.“, þannig að
talan gæti verið upp undir 30. Hvort
allir eða hversu margir munu þola
þessar breytingar, sem af velferðar-
reglugerðinni og tollasamningnum
hljótast, get ég ekki sagt um.
Kjúklingabændur vonast eftir
góðu samstarfi við nýja ríkisstjórn
og vona að hún verði farsæl í störfum
sínum,“ segir Ingimundur. /smh
Ársfundur BÍ í Hofi:
Búskapur
morgundagsins
Fréttir
Á fjórða ársfjórðungi 2016 voru
að jafnaði 196.700 manns á aldr-
inum 16 til 74 ára á vinnumarkaði.
Af þeim voru 191.700 starfandi og
5.000 án vinnu og í atvinnuleit.
Atvinnuþátttaka mældist 83%,
hlutfall starfandi mældist 80,9% og
atvinnuleysi var 2,5%. Frá fjórða
ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi
fólki um 8.400 og hlutfallið jókst
um 1,9 prósentustig. Atvinnulausum
fækkaði á sama tíma um 900 manns
og hlutfall atvinnulausra af vinnu-
afli lækkaði um 0,6 prósentustig.
Atvinnulausar konur voru 2.500 og
var atvinnuleysi á meðal kvenna
2,7%. Atvinnulausir karlar voru
2.500 eða 2,4%. Atvinnuleysi var
2,8% á höfuðborgarsvæðinu og 2%
utan þess. /VH
Atvinnuleysi 2,5%
í árslok 2016
Ingimundur Berg-
mann, formaður
kjúklingabænda.
„Lækkun tekna og hækkun útgjalda er að jafnaði ekki skynsamlegur kokk-
teill, en upp á þetta er boðið í þessu samspili tollasamninga og fjárfestinga
við að uppfylla aðbúnaðarreglugerð.“ Mynd / smh
Björgvin Jón Bjarnason, formaður
svínabænda. Mynd / HKr.
Hof á Akureyri. Mynd / Auðunn Níelsson