Bændablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
Fréttir
Heimsmeistarakeppni í rúningi,
„The 2017 World Shearing and
Woolhandling Championships“,
hófst miðvikudaginn 8. febrú-
ar og stendur fram á laugardag
11. febrúar. Tveir Íslendingar
taka þátt í keppninni, þau Heiða
Guðný Ásgeirsdóttir og Hafliði
Sævarsson.
Alls voru skráðir til leiks kepp-
endur frá 32 löndum víðs vegar um
heim og hafa þátttakendur aldrei
verið fleiri, sem
gerir þetta
að stærstu
h e i m s -
meist ara-
k e p p n i
í rúningi
allra tíma.
Þarna var
jafnframt um að ræða
fertugustu heimsmeistarakeppn-
ina og var þetta í fyrsta sinn sem
keppnin er haldin á Suðureyju hins
mikla sauðfjárræktarlands Nýja-
Sjálands.
Fór keppnin fram á leikvangin-
um ILT Stadium Southland í
Invercargill, syðst á eyjunni.
Var keppnin send út beint á
netinu um vefsíðuna www.worlds-
hearingchamps.com og einnig á
Maori-sjónvarpsstöðinni (www.
maoritelevision.com). Fyrirtækið
Kinetic Media sér um upptöku
fyrir beinar útsendingar ásamt
gerð klukkutíma sjónvarpsþáttar
um keppnina sem sýndur verður
á Maori-sjónvarpsstöðinni á Nýja-
Sjálandi og verður einnig dreift
víða um heim. /HKr.
Metþátttaka í fertugustu heimsmeistarakeppninni í rúningi:
Tveir Íslendingar mættir
til leiks á Nýja-Sjálandi
Fjárveiting til að byggja upp
ljósleiðarakerfi í strjálbýli
Jón Gunnarsson samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra hefur
ákveðið með vísan til markmiða
byggðaáætlunar og umsagnar
stjórnar Byggðastofnunar að verja
allt að 100 milljónum króna úr
fjárveitingu byggðaáætlunar til að
styrkja sérstaklega uppbyggingu
ljósleiðarakerfis í strjálbýlum
sveitarfélögum.
Þessi fjárveiting kemur til
viðbótar 450 m.kr. úthlutun
fjarskiptasjóðs til verkefnisins Ísland
ljóstengt 2017.
Styrkir samkeppnisstöðu
Tilgangur þessa viðbótarstyrks í ver-
kefnið er að styrkja samkeppnisstöðu
sveitarfélaga við umsókn þeirra til
fjarskiptasjóðs til að hefja ljósleiðar-
auppbyggingu að því er fram kemur
í frétt á vef innanríkisráðuneytisins.
Í ljósi þess að fjárhagur sveitar-
félaga er mismunandi hefur verið
ákveðið að styrkja samkeppnis-
stöðu tiltekinna sveitarfélaga gagn-
vart umsóknum í samkeppnispott
fjarskiptasjóðs. Þetta er gert í þeim
tilgangi að gera strjálbýlum sveitar-
félögum hægara um vik að hefja ljós-
leiðarauppbyggingu.
Helstu forsendur við úthlutun
styrkjanna voru þéttleiki styrk-
hæfra svæða, hlutfall staða sem
eru ótengdir, þróun íbúafjölda árin
2005 til 2015, ferðatími til þjónustu-
kjarna og samgöngur, fjárhagsstaða
sveitarfélags og meðaltekjur þess
á íbúa. Gefin voru stig út frá þess-
um forsendum og sveitarfélög með
fæst stig lentu efst í forgangsröðun.
Óráðstafaður byggðastyrkur getur
flust milli ára. /MÞÞ
Jón Gunnarsson.
Haraldur Benediktsson, alþingismaður og formaður fjarskiptasjóðs, kynnti
verkefnið ásamt Karli Björnssyni, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook
Invercargill.
Með þekkingu ræktum við skóg
Fagráðstefna skógræktar 2017
verður haldin dagana 23.–24. mars
2017 í Hörpu. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er „Með þekkingu ræktum
við skóg“, en þetta er jafnframt
afmælisráðstefna Mógilsár, sem
fagnar 50 ára starfi sínu á þessu
ári.
Í ráðstefnunni kynna starfsmenn
Mógilsár rannsóknir sínar og flutt
verða ýmis erindi um skógrækt í sinni
fjölbreyttustu mynd. Skráningargjald
er kr. 9.000 og innifelur aðgang að
öllum fyrirlestrum, ráðstefnugögn,
kaffi og vettvangsferð á Mógilsá.
Að auki verður hægt að skrá sig í
hádegismat í Hörpu og kostar það
kr. 5.800 fyrir báða dagana.
Hátíðarkvöldverður verður í
Súlnasal Hótel Sögu 23. mars og
hefst kl. 20. Veislustjóri verður
Gísli Einarsson og Sigurður Helgi
Oddsson spilar undir borðhaldi og
fjöldasöng. Hátíðarkvöldverður
kostar kr. 11.900 og þarf fólk að skrá
sig sérstaklega í hann.
Vert er að vekja athygli á sérs-
töku ráðstefnutilboði fyrir gistingu
á Hótel Sögu, kr. 15.800 nóttin fyrir
eins manns herbergi og kr. 18.700
fyrir tveggja manna herbergi. Til
þess að nýta tilboðið þarf að bóka
fyrir 1. febrúar 2017. /VH
Hæstiréttur Íslands:
Stjörnugrís vinnur mál gegn ríkinu
Hæstiréttur Íslands hefur
úrskurðað að íslenska ríkinu beri
að greiða Stjörnugrís hf. tæpar 40
milljónir króna auk vaxta. Stefnda
ber einnig að greiða stefnanda 1,5
milljónir króna í málskostnað. BÍ
hefur sent ríkisendurskoðanda
fyrirspurn um fordæmisgildi
dómsins.
Í málinu krafðist Stjörnugrís hf.
endurgreiðslu búnaðargjalds sem
fyrirtækið greiddi á árunum 2010 til
2014, en fyrir lá að gjaldinu var ráð-
stafað til Svínaræktarfélags Íslands,
Bjargráðasjóðs, Bændasamtaka
Íslands og Búnaðarsambands
Kjalarnesþings.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að
Stjörnugrís hf. reisi kröfu sína á því
að álagning og innheimta gjaldsins
samkvæmt lögum nr. 84/1997 um
búnaðargjald væri ólögmæt hvað
hann varðaði, auk þess sem gjald-
takan stangaðist á við ákvæði stjórn-
arskrárinnar um félagafrelsi og skatt-
lagningu og bryti í bága við ákvæði
Mannréttindasáttmála Evrópu.
BÍ kannar fordæmisgildi dómsins
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands,
sagði í samtali við Bænda blaðið í
framhaldi af úrskurði Hæstaréttar
að dómurinn snerist eingöngu um
eitt fyrirtæki. „Í framhaldinu spyrja
menn sig eðlilega hversu mikið for-
dæmisgildi dómurinn hefur fyrir
aðra. Bændasamtökin hafa sent
atvinnuvegaráðuneytinu fyrirspurn
um hvaða augum það ráðuneyti og
ráðuneyti fjármála líta málið og við
væntum svara fljótlega. Afstaða
ráðuneytanna getur verið með ýmsu
móti. Hugsanlega meta þau dóminn
þannig að hann sé eingöngu fordæm-
isgefandi fyrir svínarækt, hugsanlega
fyrir fleiri búgreinar eða jafnvel alla
greiðendur búnaðargjalds. Þegar sú
afstaða liggur fyrir verður svo ljóst
hvort ríkið hyggst hafa frumkvæði að
endurgreiðslum og þá hversu mikl-
um. Þá afstöðu verður auðvitað hægt
að bera undir dómstóla, verði menn
ekki sáttir við hana.
Almennt fyrnast svona kröfur á
fjórum árum þannig að menn geta
ekki vænst þess að fá endurgreiðsl-
ur lengra aftur í tímann, fáist þær
á annað borð. Mál Stjörnugríss var
höfðað í desember 2014 og sner-
ist um greiðslu búnaðargjalds frá
2010–2014.“
Sigurður segist ekki telja að ríkið
eigi endurkröfu á Bændasamtökin
eða önnur samtök bænda sem tekj-
um af búnaðargjaldi var ráðstafað til.
„Við létum vinna lögfræðiálit um það
á síðasta ári og samkvæmt því getum
við staðið fast á því að svo sé ekki.“
Dómsorð:
Samkvæmt dómsorði ber stefnda,
íslenska ríkið, að greiða stefnanda,
Stjörnugrís hf., 38.974.412 krónur
með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8.
gr. laga nr. 38/2001 af 3.073.734
krónum frá 30. desember 2010 til
1. desember 2011, af 8.949.513
krónum frá þeim degi til 1. janú-
ar 2012, af 16.340.630 krónum frá
þeim degi til 30. nóvember 2012, af
24.686.218 krónum frá þeim degi til
28. desember 2012, af 28.859.015
krónum frá þeim degi til 29. nóv-
ember 2013, af 33.361.101 krónu
frá þeim degi til 30. desember
2013, af 35.612.136 krónum frá
þeim degi til 26. nóvember 2014
og af 38.974.412 krónum frá þeim
degi til 18. desember 2014, en með
dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6.
gr. laga nr. 38/2001 af 38.974.412
krónum frá þeim degi til greiðslu-
dags. /VH
Samkvæmt dómsorði ber stefnda,
íslenska ríkið, að greiða stefnanda,
með vöxtum.