Bændablaðið - 09.02.2017, Side 25

Bændablaðið - 09.02.2017, Side 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017 aði svo fyrstu kindina sína Klönku eftir uppnefninu. Í framhaldinu komu svo Gullklanka, Sjarmklanka og fleiri gimbrar með Klönku- nafninu.“ Viðar segir annað svona kyn eins og þau kalla hálfnöfnurnar eða ær sem bera skyld heiti sé vætukynið. „Má þar nefna nöfn eins og Úrkoma, Væta, Rigning, Suddavæta og Slydda.“ Hæ-kynið Stærst af þessum kynjum er Hæ-kynið hennar Sigríðar. „Þegar ég var barn gaf móðurbróðir minn mér kind sem ég nefndi Hæ-Móru. Sú kind varð reyndar ekki langlíf þar sem hún rotaði sig þegar hún stökk á dyrakarm í fjárhúsunum. Þá kom önnur Hæ-Móra og út frá henni er allt Hæ-kynið komið.“ Viðar segir að hægt sé að rekja stóran hluta fjárstofnsins á Kaldbaki til Hæ-Móru og í kjölfar hennar hafi komið kindur sem báru heiti eins og Hæ-Kola, Hæ-Gjöf, Hæ-Prýði, Hæ-Vissa, Hæverska og ein sem hét Hæ-Fósturlandsinsfreyja.“ Aðspurð segir Sigríður að fram til þessa hafi engin kind fengið heitið Hæ-Lux. Einföld ættrakning Nafnakerfið virkar þannig að þegar ær af kyni sem ber fornafnið Hæ eins, og til dæmis Hæ-Móra, eignast gimbur fær gimbrin sjálfkrafa Hæ sem fornafn og eitthvað annað eftir- nafn eins og Gjöf, Prýði eða Óprýði og heitir því Hæ-Gjöf, Hæ-Prýði eða Hæ-Óprýði. Svipað er að segja um ær sem bera nafnið Klanka nema hvað Klanka er ávallt seinni hluti nafnsins eins og Óvartklanka eða Breiðholtsklanka. Hæ- og Klönku-heitin eru því nokkurs konar ættarnöfn en við- bótin heiti viðkomandi einstaklings. Þannig geta Hæ- og Klönku-nöfnin teygst í margar kynslóðir og einfalt er að rekja þau aftur til formæðranna. Sigríður og Viðar segjast reyna að skrá nöfnin í einu orði en að stundum gangi það einfaldlega ekki upp eins og í tilfelli Hæ-kynsins og að þá hafi þau bandstrik á milli nafnanna. Nöfnin hafa verið skráð samviskusamlega í fjárbækur í marga áratugi og í dag eru þau skráð í Fjárvís. Nafnarunur Nöfn ánna á Kaldbak áttu fyrr á árum til að verða nokkuð löng eins og Hæ-Fósturlandsinsfreyja, Úrkomaígrennd, Sjöundalautaskjól, Hikasamaogtapaskúr, Haltukjafti- klanka og Varsamtilklanka. Dramatískasta nafnið til þessa er Allarsorgirheimsins og þau lengstu Allarmérdettadauðarlýsúrhöfði og Flangsvesenoglætiklanka og allt í einu orði. Sigríður segir að undanfarin ár hafi verið tilhneiging til að stytta nöfnin svo þau komist fyrir í reitnum fyrir ærnöfn í Fjárvís. Uppruni nafnahefðarinnar líklega á Heklubæjunum Sigríður segist ekki viss hvað- an nafnagiftahefðin sé upp- runnin. „Í Hólum og Næfurholti á Rangárvöllum hefur alltaf verið hefð fyrir því að gefa ánum nöfn. Svipuð nafnahefð og við notum þekkist á bæjum á ofanverðum Rangárvöllum og líklega má rekja uppruna hefðar- innar til Heklubæjanna. Hingað kom hefðin með mömmu frá Hólum sem er einn af Heklubæjunum.“ Viðar telur að uppruna hefðar- innar sé að leita í þeirri viðleitni að halda til haga ættum og skyldleika fjárins áður en formleg skráning Massey Ferguson Meiriháttar dráttarvélar fyrir meiriháttar bændur Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar og fáið sérsniðna vél að ykkar þörfum. Til á lager MF5610 , MF5613 og MF6615 Það er ekki að ástæðulausu að Massey Ferguson er ein mest selda dráttarvél undanfarinna ára. Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Glæsileg fjallasýn frá Kaldbak á ofanverðum Rangárvöllum með snævi þakta Heklu í bakgrunninum. – Framhald á næstui síðu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.