Bændablaðið - 09.02.2017, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
um Borgarfjörð, m.a. með viðkomu
í brugghúsinu á Steðja.
Bjórferðamennska meiri en fólk
gerir sér grein fyrir
„Bjórferðamennska í heiminum er
mun meiri en fólk almennt gerir sér
grein fyrir, það eru hópar á ferð og
flugi yfir Atlantshafið til að upp-
lifa bjór og bjórmenningu í öðrum
löndum. Sú mikla þróun sem orðið
hefur í brugghúsamenningu á Íslandi
hefur vakið athygli erlendra ferða-
manna og opnað á þann möguleika
að þessi tegund af ferðamennsku geti
þrifist hér á landi og jafnvel komið
sterk inn á afþreyingamarkaðinn
sem ný vara,“ segir Karl. Ferðirnar
eru í grunninn dæmigerðar náttúru-
skoðunarferðir um Ísland en með
þessu bjórþema.
Lengsta ferðin sem verður í
boði er 10 tíma ferð þar sem allur
Tröllaskagahringurinn verður tekinn
með bjórsmakki fjögurra brugghúsa
og heimsókn á Bjórsetur Íslands á
Hólum. „Þetta er spennandi ferð um
Tröllaskagann. En hún er löng og
frekar dýr og verður bara í boði sem
sérferð fyrir hópa sem panta hana
sérstaklega.“
Coast Line Beer Tour
Stærsta dagsferðin er svokölluð
Coast Line Beer Tour. Þar er farið upp
og niður ströndina Eyjafjarðarmegin.
Komið er við hjá nýju brugghúsi á
Siglufirði, Segli 67, þar sem tekið
er á móti hópum í gömlu frystihúsi.
„Það eitt að verið sé að endurnýta
frystihús vekur strax áhuga þátttak-
enda, en húsið á sér langa sögu í
öðrum atvinnurekstri.“ Fyrirtækið
er yngsta svonefnda craft-brugg-
húsið hér á landi, en fyrstu fram-
leiðsluvörur þess komu á markað í
desember árið 2015. Bruggsmiðjan
á Árskógssandi er elsta brugghúsið
í hópnum, átti 10 ára afmæli á liðnu
ári. Þar er verið að reisa svonefnd
bjórböð þar sem bjór og efni til
bjórgerðar eru notuð til að endur-
næra húðina. Stór pottur verður
utandyra fyrir hópa auk þess sem
hægt verður að fara ofan í einkapotta
inni. Veitingastaður verður einnig á
staðnum þar sem þátttakendum gefst
kostur á að snæða hádegisverð. „Við
eigum frekar von á því að þetta verði
vinsælasta ferðin okkar, enda hefur
hún upp á margt að bjóða,“ segir
Karl
Ferðin heldur svo áfram inn eftir
Eyjafirði og komið við í gömlu
síldarverksmiðjunum á Hjalteyri þar
sem þátttakendur smakka á afurðum
Viking/Einstök brugghúss. Hluti af
síldarverksmiðjunum gegnir nú hlut-
verki listasmiðju og gallerís.
„Það eykur enn á upplifun ferða-
manna að koma við á þessum stað, í
gróskumikið og skapandi umhverfi,“
segir Karl.
Gamli bærinn á Öngulsstöðum
og veitingastaðurinn Lamb inn
gegna einnig hlutverki í bjórþema-
ferðunum, en í boði er gönguferð
þar sem í boði er bjórsmakk í Gamla
bænum og að því loknu snæddur
kvöldverður á veitingastaðnum.
Þriðja ferðin sem í boði er felst í
heimsókn í Gamla bæinn og máltíð
hjá Lamb inn.
Leikum okkur með fleiri
hugmyndir
„Við vinnum þessar ferðir í nánu
samstarfi við brugghúsin sem tekið
hafa þessari nýjung í ferðaþjónustu
á svæðinu fagnandi. Við erum að
leika okkur með ýmsar fleiri hug-
myndir sem ef til vill gætu orðið að
veruleika síðar á árinu,“ segir Karl,
en eitt af því sem til stendur er að
efna til málþings um bjórbruggun
og bjórmenningu á Norðurlandi og
efna til bjórhátíðar þar sem brugg-
húsin koma vörum sínum á framfæri
á eigin forsendum.
„Það á þó allt eftir að koma í ljós
hvort af verður,“ segir Karl.
Lamb inn hefur alla tíð gert
brugghúsunum á svæðinu hátt
undir höfði og ætlunin að gera
enn betur í þeim efnum á komandi
sumri. „Okkar erlendu gestum
þykir merkilegt að í nágrenni við
okkur séu starfandi fjögur brugg-
hús sem hvert og eitt framleiðir
hágæða vöru úr íslensku vatni,
sem er undirstaðan í þeirra góðu
framleiðslu.“
Lengri ferðir á teikniborðinu
Karl er nú í sambandi við banda-
ríska bjórferðaskrifstofu sem hefur
áhuga á að efna til bjórferðar til
Íslands og segir Karl að með
beinu flugi Flugfélags Íslands frá
Keflavíkurflugvelli til Akureyrar,
sem senn verður í boði, opnist
sá möguleiki að ferðamenn geti
ferðast beint norður, stoppað þar í
nokkra daga og þá m.a. notið þeirr-
ar bjórþematengdu starfsemi sem
finna má á svæðinu en haldið að
því loknu aftur suður til Keflavíkur.
„Við munum áfram vinna í vöru-
þróun á okkar dagsferðum og að
auka og efla samvinnu við brugg-
húsin á svæðinu með margvísleg
verkefni. Þar sem góð reynsla er
komin á margra daga bjórferðir
okkar á ég von á því að við sækjum
fram á mörkuðum þar úti um allan
heim,“ segir Karl að lokum. /MÞÞ
Oliver Dawson, bjórferðaskipuleggjandi frá Kanada, á Bjórhátíðinni á Hólum í fyrra.
Karl Jónsson á Mannamóti, sem haldið var í Reykjavík á dögunum, en þar kynnti hann bjórferðir sem í boði eru á
vegum Lamb inn Travel. Aldís Aðalbjarnardóttir leiðsögumaður er hér á spjalli við Karl. Mynd / TB