Bændablaðið - 09.02.2017, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
eru ljós og fóðuraðgengi dýranna
eftir pörun.
Hvolparnir fæðast blindir, hár- og
tannlausir og nærast á mjólk fyrstu
fimm vikurnar. Sjón og tennur fá þeir
um mánuði eftir fæðingu. Læðurnar
sjá einar um uppeldi afkvæmanna.
Minkar helga sér óðal og merkja
það með þvagi og saur og búa sér
til greni sem hafa marga útganga.
Stundum er einn útgangurinn beint
út í vatn, enda minkar góðir til sunds
og geta verið í kafi og farið langar
leiðir eftir botni vatna. Steggurinn er
mest á ferðinni á nóttunni en læður
allan sólarhringinn og mest eftir got.
Fæðuval minka er fjölbreytt og
bæði úr sjó og af landi. Í sjó veiða
þeir ýmsar tegundir fiska eins og
marhnút, sprettfisk, hrognkelsi,
hornsíli, ufsaseiði, sandsíli, karfa,
loðnu, síld, skötusel, tindaskötu,
keilu og krabbadýr. Á landi veiða
þeir fugla, mýs og hunangsflugur
auk þess sem þeir ræna eggjum úr
hreiðrum.
Minkur á Íslandi
Skömmu fyrir aldamótin 1900 var
ljóst að minkaeldi í Norður-Ameríku
skilaði hagnaði og í framhaldi af því
fóru bændur og fjárfestar í öðrum
löndum að huga að sams konar eldi.
Fyrstu minkabúin í Evrópu með
mink frá Norður-Ameríku voru sett
á laggirnar í Noregi árið 1927 og
í Svíþjóð ári seinna. Næstu ár og
áratugi þar á eftir voru minkar fluttir
til flestra annarra landa í Norður-
Evrópu.
Fyrstu árin slapp fjöldi minka úr
eldi og lifa í dag víða villtir í Evrópu
norðanverðri.
Fyrstu minkarnir voru fluttir til
Íslands haustið 1931 og komu þeir
frá Noregi. Dýrunum var komið fyrir
að Fossi í Grímsnesi þar sem þau
fjölguðu sér hratt. Nokkrum mánuð-
um síðar voru minkarnir orðnir 75 og
þeir fluttir á nýtt minkabú á Selfossi.
Ári síðar voru minkabúin tvö en
fjölgaði ört eftir það.
Fyrstu minkarnir sem vitað er að
hafi sloppið úr eldi á Íslandi sluppu
haustið 1932 frá Fossi í Grímsnesi.
Næstu árin slapp talsvert af mink frá
nokkrum búum.
Fyrsta minkagrenið í náttúrunni
hér á landi fannst við Elliðaárnar í
Reykjavík árið 1937. Annað greni
fannst við Leirvogsá í Mosfellssveit
vorið eftir og fjölgaði fundum þeirra
hratt eftir það, samfara því að mink-
urinn náði fótfestu um allt land.
Villiminkur var kominn austur
undir Skeiðarársand árið 1958 en
sandarnir og Skeiðará virðast hafa
verið honum náttúruleg hindrun því
lengi vel var Öræfasveit eina sveit
landsins sem var laus við mink.
Minkurinn var þó ekki lengi að skjót-
ast yfir Skeiðará og sandana og yfir
í Öræfasveit eftir að áin var brúuð
árið 1974.
Ekki er vitað hvað minkar geta
orðið gamlir hér á landi en elsti
minkur sem aldursgreindur hefur
verið á Íslandi var sjö ára steggur
og elsta læðan var sex ára.
Minkaeldi á Íslandi
Þrátt fyrir nokkur vandræði varð-
andi fóður og frjósemi á fyrstu
árum loðdýraræktar hér á landi lof-
aði í upphafi góðu enda verð hátt.
Fljótlega syrti samt í álinn. Skömmu
eftir að loðdýraeldi hófst hér skall á
heimskreppa og í kjölfarið verðfall á
skinnum. Í kjölfar kreppunnar kom
seinni heimsstyrjöldin og eftirspurn
eftir skinnum engin. Vegna þess var
öllum minkum í eldi slátrað fyrir
1940 og bannað með lögum að reisa
ný minkabú árið 1951.
Banni við loðdýrarækt var ekki
aflétt fyrr en 1969 og í kjölfar þess
fluttur inn minkur frá Noregi sem
komið var fyrir á fimm búum á
Suðvestur- og Norðurlandi. Að
nokkrum árum liðnum kom í ljós
að dýrin voru langflest sýkt af alvar-
legum vírussjúkdómi sem hafði letj-
andi áhrif á frjósemi og vöxt þeirra.
Rekstur þessara fimm búa var því
erfiður og flest þeirra hættu rekstri.
Vírussýkingin, sem nefnist
Plasmacytoses, er enn viðvarandi
í villtum mink á landinu og smitast
auðveldlega í búrdýr komist villtur
minkur í samneyti við þau.
Á Íslandi hafa verið ræktuð
nokkur litaafbrigði minka og veiðst
hafa villtir minkar með hvítan,
dökkbrúnan og svartan feld.
Skipt var um minkastofn í
landinu 1981 og flutt inn dýr frá
Danmörku. Minkabúum á landinu
fjölgaði hratt á níunda áratug síðustu
aldar og þá meira af kappi en for-
sjá. Verðfall á skinnum um miðjan
áratuginn varð til þess að langflest
þessara búa lögðu upp laupana um
1990.
Íslenski búrminkastofninn í dag
er sá sami og notaður er í flestum
öðrum löndum við minkaeldi. Fjöldi
litarafbrigða búrminka hér á landi er
svipaður og í nágrannalöndunum en
í heildina eru yfir 20 litarafbrigði
til á íslenskum minkabúum, en öll
þessi litarafbrigði eiga sömu for-
feður enda teljast þau öll til sömu
ættkvíslarinnar. Á minkabúum er
oftast stunduð hreinræktun litaraf-
brigða en einnig er litum blandað
saman í ræktunarstarfinu til að færa
ákveðna eiginleika milli lita, draga
úr skyldleikaræktun eða þegar verið
er að fjölga í einhverri tegundinni.
Um helmingur minka á minkabúum
á Íslandi er svokallaður „standard
minkur“ en hann er brúnn að lit.
Hinn helmingurinn skiptist á margar
litategundir en af þeim fjölda er
hvítur fjölmennastur eins og staðan
er í dag. Þessi hlutföll innan búanna
breytast í takt við aðstæður og kröf-
ur á markaði séð yfir lengri tíma.
Séu gæði íslensku minkaskinna-
framleiðslunnar borinn saman við
aðrar þjóðir út frá því skinna-
verði sem bændur hafa verið að
fá að meðaltali á markaði þá hefur
íslenska framleiðslan verið í öðru
sæti fjórum sinnum síðustu sex
árin en danskir minkabændur hafa
vermt fyrsta sætið. Síðustu 10 til
15 ár hefur því mjög jákvæð þróun
um gæði íslensku skinnanna átt sér
stað sem fyrst og fremst má þakka
meiri fagmennsku bænda, auknum
innflutningi kynbótadýra og betri
fóðurframleiðslu.
Refur, melrakki, tófa eða lægja
Refir eru lítil og meðalstór rándýr af
hundaætt. Refir skiptast í 27 tegund-
ir og þá er að finna í flestum heims-
álfum og rauðrefir, Vulpes vulpes,
algengastir.
Heimskautarefur er sá refur sem
hefur lifað villtur hér á landi frá því
á ísöld og kallast á latínu Vulpes
lagopus. Refir eru einu spendýrin
sem fyrir voru á landinu við land-
nám.
Búsvæði heimskautarefsins er
nyrst allra refategunda. Talið er að
heimskautarefurinn hafi fært sig
norðar með hopandi jöklum við lok
ísaldar og að hluti þeirra dýra orðið
eftir hér á landi, einnig er líklegt
að hann hafi borist til landsins með
rekís frá Grænlandi.
Refir fylgja stundum hvíta-
björnum á hafís langt út á haf. Í
VÍNYL PARKET
– frábær lausn fyrir heimili, sumarhús, skóla ofl.
Flugumýri 34 • 270 Mosfellsbæ
Sími 896 9604
vinyl golfefni
• Viðhaldsfrítt
• Níðsterkt
• Þolir vatn og þunga trafík
• Margir litir
Vínyl parket fæst smellt, niðurlímt eða
lauslagt og í mörgum tilfellum er hægt
að leggja það yfir önnur gólfefni.
− Framhald á næstu síðu.