Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 1
11. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 8. júní ▯ Blað nr. 492 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Um 850 þúsund tonn af sorpi og ýmiss konar neysluúrgangi fellur til á Íslandi á ári:
Ruslið er jafn mikið og öll
álframleiðsla Íslendinga
– Um 16% af tilfallandi úrgangsefnum voru flutt til endurvinnslu í útlöndum 2015 – einungis um 38% af heimilissorpinu er flokkað
Samkvæmt upplýsingum
Umhverfisstofnunar féllu til
850.147 tonn af úrgangi á
landinu öllu árið 2015, þar af
voru 137.842 tonn flutt úr landi
til endurvinnslu, eða 16,2%, og
þar af 1.149 tonn af spilliefnum.
Allt sorp sem til féll eftir
Íslendinga á árinu 2015 var jafn
mikið og allt ál sem framleitt var
á Íslandi 2015, samkvæmt tölum
Samáls.
Rúmlega þriðjungur af
heimilisúrgangi er flokkaður
Af heildarsorpmagninu, rúmlega
850 þúsund tonnum, var heimilis-
sorp samtals 193.372 tonn. Af því
voru 74.147 tonn flokkuð, eða
38,3%.
Þetta eru nýjustu fáanlegar
samantektartölur, en heildartölur
af landinu öllu fyrir árið 2016
munu samkvæmt upplýsingum
frá Umhverfisstofnun ekki vera
fyrirliggjandi. Þeirra er ekki að
vænta fyrr en undir árslok.
Aðeins ein sorpbrennslustöð
Nú er einungis starfandi ein sorp-
brennslustöð í landinu, en það er
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja í
Helguvík. Þar voru brennd 10.769
tonn af úrgangi á árinu 2015. Þar
fyrir utan voru 3.358 tonn af sorpi
send úr landi til brennslu.
Bændablaðið hefur vitneskju um
að einhverju af sorpi sé enn brennt í
opnum brennslustæðum á einstaka
stöðum úti um land þótt í litlum mæli
sé. Þá áætlar Umhverfisstofnun að
1.700 tonnum af timbri hafi verið
brennt á áramótabrennum á árinu
2015.
179.405 tonn af iðnaðar- og
ökutækjaúrgangi
Ef skoðað er hvað var verið að
senda utan í endurvinnslu af þeim
137.842 tonnum sem send voru
2015, kemur í ljós að mest var um
úrgang frá iðnaði, eða 54.941 tonn.
Síðan voru flutt út 34.556 tonn af
málmúrgangi. Þá voru flutt út 6.149
tonn af málmum úr afskrifuðum og
ónýtum ökutækjum og 858 tonn af
hjólbörðum og gúmmíi. Samtals
gera þetta 179.405 tonn sem koma
frá iðnaði og ökutækjanotkun.
Af pappírsumbúðum, eða
bylgjupappa og sléttum pappa, voru
flutt út til endurvinnslu 15.315 tonn
á árinu 2015.
Af öðru en umbúðapappír voru
flutt út 14.653 tonn. Þá var 181 tonn
af pappír notað til jarðgerðar hér
heima.
7.740 tonn af málm- og
plastumbúðum
Af málmumbúðum (áli og járni)
voru í heild flutt út 1.502 tonn. Þar
af voru 825 tonn af álumbúðum.
Þá voru flutt út 5.413 tonn af
plastumbúðum til endurvinnslu
erlendis á árinu 2015.
Gler að jafnaði ekki flutt út til
endurvinnslu
Gler sem fólk fær greitt skilagjald
fyrir á móttökustöðvum hefur
að jafnaði ekki verið flutt út til
endurvinnslu. Á árinu 2015 var þó
gerð tilraun til þess með útflutningi
á 30 tonnum af gleri.
Tvær meginskýringar eru
á því, samkvæmt heimildum
Bændablaðsins, af hverju gler er
ekki sent utan til endurvinnslu.
Þær eru mikill flutningskostnaður
og sú staðreynd að gler er ódýrt í
framleiðslu og auðveldara að stýra
framleiðslu á gleri með því að bræða
kísil- eða kvartssand sem víða er
að finna í miklu magni. Hluti af
því gleri sem skilað hefur verið á
undanförnum árum hefur farið til
urðunar í Álfsnesi. Eitthvað hefur
farið í aðrar landfyllingar og einnig
hefur verið rætt um að nýta það til
vegagerðar.
1.149 tonn af spilliefnum
flutt úr landi
Samkvæmt upplýsingum
Umhverfisstofnunar eru spilliefni
nokkuð víðtækt hugtak yfir margs
konar úrgang sem getur innihaldið
hættuleg efnasambönd og þung-
málma. Má nefna margvísleg spilli-
efni frá iðnaði, eins og olíuefni af
ýmsum toga, málningu og fleira.
Af rafhlöðum og rafgeymum
voru flutt út 910 tonn árið 2015.
Þar af voru 879 tonn sem flokkast
sem spilliefni en 31 tonn af efnum í
rafgeymum og rafhlöðum sem fluttar
voru út flokkkast ekki sem spilliefni.
Þá voru flutt út 3.515 tonn af
raflagna- og rafeindatækjaúrgangi.
Þar af voru 270 tonn flokkuð sem
spilliefni, en 3.245 tonn voru það
ekki og er þar væntanlega um að
ræða málma og plast. /HKr.
Þremur tonnum af rusli var safnað í Aðalvík í árlegri hreinsunarferð á Hornströndum í lok maí. Alls tók 31 sjálfboðaliði til hendinni, þar af hópur frá haf- og strandsvæðastjórnun í Háskólasetri
Vestfjarða, auk Landhelgisgæslunnar á varðskipinu Þór sem ferjaði hópinn frá Ísafirði. – Sjá nánar á bls. 23 Mynd /Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir
Lífrænn ís í Laugardalnum
4
Hveragerði eignast
sitt eigið brugghús
24
Menningarveisla
Sólheima 2017
32