Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
„Það er búið að vera hræðilegt
veður fyrir æðafugla á þessu
svæði, bæði hvasst og óvanalega
mikil væta. Þetta hefur væntanlega
þau áhrif að dúntekja verður
töluvert minni,“ segir Salvar
Ólafur Baldursson, bóndi í Vigur
í Ísafjarðardjúpi. Vegna votviðris
var dúntekja ekki hafin í síðustu
viku en Salvar vonaðist eftir að
geta hafist handa sem fyrst.
Varp hófst á svipuðum tíma og
undanfarin ár og er nú fullsest.
„Æðarkollurnar setjast upp fyrr en
hann gerði fyrir 20 árum. Það munar
um viku. Nú erum við að finna orpið
2 .–3. maí en það var alltaf í kringum
10.–11. maí áður fyrr.“
Salvar ætlar að árlega séu í Vigri
um 2.500–3.500 hreiður æðarfugla
en fjöldinn hafi haldist svipaður sl.
20–30 ár.
Verðfall ekki áhyggjuefni
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands
voru 525 kíló af hreinsuðum æðar-
dún flutt út á fyrstu þremur mánuð-
um ársins. Fyrir það fengust tæplega
110,7 milljónir á svokölluðu FOB-
verði. Á sama tíma í fyrra höfðu 789
kíló verið flutt út fyrir um 165,4
milljónir og árið 2015 höfðu fengist
256 milljónir fyrir 724 kíló.
Salvar segir verð á dún líklega
vera að gefa eftir út af gengi íslensku
krónunnar. „Menn gátu aðeins tryggt
sig gagnvart gengisstyrkingunni en
mér sýnist það gæti orðið svolítið
erfitt að halda verðinu.“ Þetta valdi
mönnum þó litlum áhyggjum enda
eru æðarbændur vanir verðflökti.
„Við höfum oft upplifað verðfall á
dúninum. Menn vita að það skiptast
á skin og skúrir. Stundum er verðið
gott og stundum lélegra,“ segir
Salvar.
Ekkert lát er heldur á lundanum
í Vigur og að sögn Salvars er
nokkuð mikið um hann í ár. Þá sé
krían nytsamlegur vinnufélagi í
æðarbúskap. „Hér er þó nokkuð
mikið kríuvarp, en það er gott að
hafa hana. Hún skrattast í mávunum
og hröfnum og maður sér þá hvað um
er að vera.“ /ghp
Björgvin Jóhannesson var kjör-
inn nýr formaður Félags ferða-
þjónustubænda á aðalfundi í
lok marsmánaðar síðastliðins.
Björgvin er hótelstjóri á Hótel
Kötlu, á Höfðabrekku rétt austan
við Vík í Mýrdal.
Hann segist hafa verið viðloð-
andi ferðaþjónustuna þar á bæ allt
frá því söðlað var um búskap í
kringum 1990; þegar foreldrar hans
hurfu frá sauðfjár- og hrossabúskap
og færðu sig yfir í ferðaþjónustu og
hótelrekstur.
Fleiri afbókanir að undanförnu
„Ég er búinn að vera hér hótelstjóri
undanfarin ár, en foreldrar mínir
eru eigendur Hótel Kötlu,“ segir
Björgvin. „Við störfum reyndar
báðir hér, ég og bróðir minn, Ingvar.
Hér var byrjað á að leigja út tvö til
þrjú herbergi í bændagistingu – en
nú erum við komin í 103 herbergi
og erum með um 40 starfsmenn yfir
sumartímann. Síðustu tvo vetur hefur
herbergjanýting aukist jafnt og þétt og
meiri samfella komin í bókanir allt
árið. Sérstaklega var þéttbókað í vetur,
en áður komu tímabil á veturna þegar
það var einfaldlega lokað hér. Þessi
þróun hefur breytt öllu fyrir reksturinn
hér, til dæmis varðandi starfsmanna-
hald, minnkað starfsmannaveltu og
skapað þannig fleiri heilsársstörf.
Það er samt alveg merkjanlegt
núna að það hægist á vextinum, það
er meira um afbókanir. Ég held að
þar skipti mestu hvernig gengismálin
hafa þróast á undanförnum misserum.
Það hefur greinilega dregið úr
sölu þótt það sé útlit fyrir að árið
verði mjög gott. Það er auðvitað
spennandi að taka við á þessum
uppgangstímum og ýmis verkefni
sem bíða okkar í nýrri stjórn. Þetta
er skemmtilegur félagsskapur sem
við erum í saman og spannar vítt svið
ferðaþjónustu hinna dreifðu byggða.
Félag ferðaþjónustubænda er þannig
hagsmunafélag ferðaþjónustubænda
og svo er ferðaskrifstofa rekin sér
undir nafninu Hey Iceland,“ segir
Björgvin.
Ísland ekki að fyllast af
ferðamönnum
Hann segir að fyrstu verkefni nýrrar
stjórnar verði að koma sér almenni-
lega inn í málin og taka afstöðu
til mikilvægra mála sem skjóti ört
upp kollinum í síbreytilegu lands-
lagi ferðaþjónustunnar á Íslandi.
„Hækkun á virðisaukaskatti er mál
sem við þurfum að leggjast yfir og
styrking krónunnar á eftir að hafa
mikil áhrif líka. Það eru 180 félagar
í Félagi ferðaþjónustubænda – og
eins ólíkir og þeir eru margir –
þannig að það er í mörg horn að
líta varðandi innviði og umgjörð
þeirra. Því það er auðvitað mark-
mið okkar að koma sem flestum
erlendum gestum út í sveitirnar til
þeirra. Það er ennþá mjög gott svig-
rúm til þess og útbreiddur misskiln-
ingur að allt Ísland sé að fyllast af
ferðamönnum,“ segir Björgvin.
/smh
Vöruþróun í lambakjöti mælist vel fyrir:
Lambabeikon í búðir
Kjarnafæði hefur
hafið almenna sölu
á íslensku lamba-
beikoni í mat-
vöruverslunum.
Lambabeikonið er
unnið úr lamba-
slögum og verkað
á svipaðan hátt og
grísabeikon.
„Í lambabeikoni
er enginn sykur og
minna salt en í venju-
legu beikoni,“ segir
Ólafur Már Þórisson,
markaðsstjóri hjá
Kjarnafæði.
„Við gerum okkur
grein fyrir því að
þetta er ekki að fara
að slá út beikon. En
þetta er partur af því
að vera með vöru-
þróun í lambakjöti
og gera eitthvað
áhugavert úr þessari
afurð,“ bætir hann
við.
Styttra og þynnra
Lambabeikonið hefur verið í
þróun hjá kjötiðnaðarmönnum
Kjarnafæðis á undanförnum vikum.
Partur af því var að kynna
afurðina í mötuneytum og á
veitingastöðum. Lambabeikonið
hefur að sögn Ólafs mælst vel fyrir.
„Bragðið er öðruvísi og lamba-
beikonið er styttra sökum þess að
síðurnar á grísnum eru lengri. Það
er því góður munur á vörunum. Við
fengum auk þess góðar ábendingar
sem við nýttum okkur. Til að mynda
fengum við athugasemdir varðandi
þykktina og höfum nú sneitt það
þynnra svo auðveldara sé að ná því
stökku, en þá er það algjört sæl-
gæti.“
Lambabeikonið má nú finna
í verslunum Hagkaups, Nettó,
Iceland og Kosti. /ghp
Fyrir skemmstu var ísbúðin
Skúbb opnuð í Laugardalnum,
nánar tiltekið á Laugarásvegi 1,
þar sem eingöngu er boðið upp
á lífrænan ís sem gerður er frá
grunni á staðnum.
Karl Viggó Vigfússon er eig-
andi ísbúðarinnar ásamt félögum
sínum, Hjalta Lýðssyni, konditor
og chocolatier, og Jóhanni Friðriki
Haraldssyni, viðskiptafræðingi og
eiganda The Laundromat café í
Austurstræti. Karl Viggó var einn
af stofnendum Omnom súkkulaði-
gerðarinnar og er lærður konditor
og chocolatier.
Unnið á staðnum
úr fyrsta flokks hráefni
Hann segir að það hafi verið ákveðið
að fara alla leið með gæði hráefnisins
og vinna ísinn og vörurnar algjörlega
á staðnum frá grunni – og gera þannig
fyrsta flokks lífrænan ís eins ferskan
og mögulegt er með besta hráefni
sem völ er á. „Við reynum að hafa
mest lífrænt en það er vonlaust fyrst
um sinn, í það minnsta að ætla að
reyna að vera með lífræna vottun.
Hérna á Íslandi er sumt einfaldlega
betra sem ekki er lífrænt vottað og
svo er annað ekki fáanlegt lífrænt
vottað sem við þurfum að nota. En
mjólkin verður lífrænt vottuð og
hana fáum við frá BioBú,“ segir
Karl Viggó – en mjólkin þaðan er
upprunnin frá tveimur kúabúum;
Búlandi í Austur-Landeyjum og
Neðra-Hálsi í Kjós.
Ekkert plast er notað á Skúbb,
en þess í stað eru rör og ílát úr
umhverfisvænu efni, til að mynda
papparör. Vöruúrvalið verður að
einhverju leyti breytilegt þó oftast
verði hægt að ganga að vinsælustu
ístegundunum vísum og einnig eru
smákökur og kaffidrykkir í boði.
/smh
Ísgerðin Skúbb:
Lífrænn ís í Laugardalnum
– Nánast allt gert frá grunni á staðnum
FRÉTTIR
Hjalti Lýðsson og Karl Viggó Vigfússon eru báðir lærðir konditor og chocolatier og eiga Ísgerðina Skúbb. Mynd / smh
Æðarkolla hefur komið sér fyrir á hreiðri við gamla bátaspilið fyrir framan
bæjarhúsin í Vigur. Hægra megin má sjá í stefnið á gamla áttæringnum
Vigur-Breið sem smíðaður var 1829, en í fjarska er vindmyllan sem reist var
1860 og notuð til að mala korn.
Væta hefur aftrað dúntekju
hjá Vigurbændum
Æðarkóngar, óvenjulegt að sjá þá tvo saman og svona spaka, segir Salvar.
Nýr formaður Félags ferðaþjónustubænda:
Ennþá mjög gott svigrúm
til sveita fyrir erlenda gesti
Björgvin Jóhannesson er nýr for-
maður Félags ferðaþjónustubænda.
Íslenska lambabeikonið hefur selst afar vel síðan
sala þess hófst í verslunum.