Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
félögin og myndi skapa aukin
tækifæri til atvinnuuppbyggingar
með auknum samgöngum milli
Skeiða- og Gnúpverjahrepps og
Rangárvallarsýslu.
Gjálp vill breyta því viðhorfi að
líta á brúna sem órjúfanlega heild
af virkjuninni enda er brúin ekki
hluti af virkjuninni. Gjálp telur í
raun að Landsvirkjun sé að nota
brúarsmíðina í hrossakaupum við
sveitarstjórnir og til að kaupa sér
velvild íbúa á svæðinu.
„Það kom í ljós á fundi sem við
áttum með Landsvirkjun að þeir
þurfa í raun og veru ekki á brúnni að
halda fyrir Hvammsvirkjun. En þeir
eru búnir að semja við sveitarfélögin
um að brúin komi með virkjuninni.
Brúin er því borgun fyrir virkjunina
til sveitarfélaganna sem hefur um
leið valdið því að sveitarstjórnirnar
á svæðinu hafa ekki „tekið slaginn“
við stjórnvöld um að fá brúna eina
og sér heldur bara hallað sér aftur og
beðið eftir að virkjunin komi með
brúna,“ segir Anna Björk.
Með þessu sé búið að skapa
hugrenningatengsl meðal íbúa
á svæðinu um að virkjunin sé
jákvæð því með henni fáist brú,
að sögn Önnu Bjarkar. Þessi
hugrenningatengsl endurspeglist
í könnun sem Landsvirkjun
gerði í sveitinni, sem var hluti af
endurskoðun umhverfismats fyrir
Hvammsvirkjun. Þar var verið
að kanna afstöðu meðal íbúa- og
sumarhúsaeigenda til fyrirhugaðrar
virkjunar.
„Í könnuninni var alltaf verið að
troða brúnni inn í allar spurningar.
Þannig sýna niðurstöður jákvæða
afstöðu gagnvart virkjun þegar
þátttakendur hafa í raun verið að
svara jákvætt vegna brúarinnar.
Niðurstaðan endurspeglar aðallega
að fólk vill fá brú en Landsvirkjun
vill túlka að jákvæðnin sé til
virkjunarinnar. Niðurstaða
könnunarinnar er því ómarktæk því
rangt er að halda því fram að þessi
jákvæðni sé út af virkjuninni einni
og sér,“ segir Anna Björk.
Ómetanlegt gildi fyrir sveitarfélög
Í stjórn Gjálpar sitja, ásamt
Önnu Björk; Edda Pálsdóttir frá
Hamarsheiði, Pálína Axelsdóttir
Njarðvík frá Eystra Geldingaholti,
Guðlaugur Kristmundsson
frá Haga og Ingibjörg Sæunn
Jónsdóttir frá Skeiðháholti. Þó
flest þeirra búi í borginni sinna
þau mörg landbúnaðarstörfum á
æskuslóðunum.
Því er það svo að þegar
sauðburði lýkur mun stjórnin setja
verkefni félagsins á oddinn. Áfram
verður haldið, í samvinnu við
atvinnumálanefnd sveitarfélagsins,
að raungera skrifstofuklasann
og hafist verður handa við
að vinna að öðrum tillögum
hugmyndasmiðjunnar. „Þá hefur
umhverfisnefnd sveitarfélagsins
óskað eftir að við vinnum með þeim
að friðlýsingu á Gjánni í Þjórsárdal.“
Anna Björk segist halda að gildi
félagsskapar eins og Gjálpar fyrir
sveitarfélög og sveitunga sé afar
verðmætt.
„Eins og ég sé þetta þá tel ég
það vera mjög verðmætt og jafnvel
ómetanlegt fyrir sveitarfélög og
sveitunga að hafa svona félag af
ungu fólki sem vinnur grasrótarstarf
í sjálfboðaliðavinnu með þá
hugsjón að efla og auðga sveitina
með fjölbreyttu atvinnulífi. Þannig
búum við til aðstæður þar sem ungt
fólk getur séð framtíð sína innan
sveitarinnar, haft tækifæri til að
flytja „aftur heim“, búið nærri
fjölskyldu og vinum og með því gert
sveitina að fjölbreyttara og sterkara
samfélagi.“ /ghp
VÍNYLPARKET
– frábær lausn fyrir heimili, sumarhús, skóla ofl.
Flugumýri 34 • 270 Mosfellsbæ
Sími 896 9604 • vinylparket.is
vinyl golfefni
• Viðhaldsfrítt
• Níðsterkt
• Þolir vatn og þunga trafík
• Margir litir
Vínylparket fæst smellt, niðurlímt eða
lauslagt og í mörgum tilfellum er hægt
að leggja það yfir önnur gólfefni.
Landsvirkjun hefur opnað vefsíðuna hvammur.landsvirkjun.is með upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar. Hér má sjá eitt dæmi um hvernig ákveðið svæði mun
líta út fyrir (t.v.) og eftir (t.h.) framkvæmdir. Horft er til suðvesturs frá Þjórsárdalsvegi, austan við Þverá.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook Viðurkenndur söluaðili Dana Spicer - Atvinnutæki
- Skiptingar
- Öxlar
- Drifsköft
- Varahlutir
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300