Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 32

Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 Menningaveisla Sólheima var sett laugardaginn 3. júní við kaffihúsið Grænu könnuna. Eftir setningu var haldið í Ingustofu og samsýning og vinnu- stofa skoðuð. Þaðan var svo haldið upp í Sesseljuhús þar sem sýningin Hvað hef ég gert? stendur yfir. Þar má sjá túlkun íbúa Sólheima á vanda hnattrænnar hlýnunar og mögulegum lausnum á honum. Úr Sesseljuhúsi var farið í Sólheimakirkju. Þar flutti Sól- heimakórinn nokkur lög undir stjórn Bjarka Bragasonar og nokkur lög úr Ævintýrakistunni voru flutt undir stjórn Þrastar Harðarsonar. Það er ókeypis á alla viðburði Menningarveislunnar sem stendur til 19. ágúst; fjölbreytt dagskrá, uppákomur, tónlistarviðburðir og sýningar. Hollar og góðar lífrænar vörur og veitingar eru í fyrirrúmi á Sólheimum; bæði á Grænu könnunni og einnig í versluninni Völu, en opið er alla daga frá 12–18. Næstu viðburðir Menningaveislunnar 2017 Laugardaginn 10. júní Tónleikar Ayisha Elisabeth Moss og Chrissie Guðmundsdóttir í Sólheimakirkju klukkan 14.00. Umhverfisfræðsla um matarsóun! Rannveig Magnúsdóttir frá Landvernd á Sólheimum klukkan 16.00 í Sesseljuhúsi, Umhverfisfræðsla júní. Laugardagur kl. 16.00 í Sesseljuhúsi. Rannveig Magnúsdóttir frá Landvernd. Fyrirlestur um matarsóun. Þriðjudaginn 13. júní Tónleikar Appelton drengjakórsins í Sólheimakirkju klukkan 17.00 Appleton drengjakórinn. Tónleikar í Sólheimakirkju klukkan 17.00. Laugardaginn 17. júní Tónleikar. Sváfnir Sigurðarson í Sólheimakirkju klukkan 14.00 laugardaginn 17. júní klukkan 14.00 í Sólheimakirkju. Sváfnir Sigurðarson spilar og syngur. Nánari upplýsingar um dagskrá Menningar- veislunnnar sumarið 2017 er að finna á vef Sólheima, solheimar.is. /smh Menningarveisla Sólheima 2017 hafin Nýr garðyrkjustjóri á Sólheimum: Framleiðir mest á landinu af lífrænt vottuðu grænmeti Jón Þröstur Ólafsson er nýr garðyrkjustjóri Garðyrkju- stöðvarinnar Sunnu á Sólheimum í Grímsnesi. Þar er framleitt mest á landinu af lífrænt vottuðu grænmeti. Jón Þröstur er menntaður g a r ð y r k j u f r æ ð i n g u r o g blómaskreytir og hefur aðallega starfað í blómaverslunum á undanförnum 16 árum. Hann segir að það að taka við Sunnu hafi verið ákveðin áskorun. „Ég tók við í nóvember í fyrra og það var auðvitað dálítið eins og að stökkva beint út í djúpu laugina. Grænmetisræktun er gjörólík því sem ég hef verið að gera og sömuleiðis lífrænt vottuð ræktun. Svo hefur svo rosalega margt breyst í garðyrkjunni á síðustu 16 árum, til dæmis eru miklu fleiri farnir að nota lífrænar varnir. Þetta hefur verið eins konar endurmenntun fyrir mig að hefja störf hér,“ segir Jón Þröstur. Mest ræktað af smáum tómötum „Þetta hefur gengið ágætlega hjá okkur eftir að ég tók við, með góðra manna hjálp. Maður lærir líka mikið af mistökunum sem maður lendir í. Við höfum haldið áfram með svipaða ræktun og verið hefur undanfarin ár. Tegundirnar eru flestar þær sömu; mest er ræktað af tómötum, svo gúrkum og papriku. Minna er svo ræktað af chili og eggaldini. Við erum með nokkur afbrigði af tómötum – en minni tómatarnir eru fyrirferðarmestir. Svo erum við með þrjár stærðir af gúrkum. Meirihluti tómataframleiðslunnar fer í verslanir Krónunnar en svo framleiðum við auðvitað fyrir mötuneyti okkar hérna á Sólheimum. Mér finnst skemmtilegt að hafa litafjölbreytni í framleiðslunni, við erum með fáeina liti núna bæði í tómötunum og paprikunum og ætlum að auka við litina í nánustu framtíð. Fjólubláar gulrætur eru líka á dagskrá fyrir næsta ár,“ segir Jón Þröstur. /smh Jón Þröstur Ólafsson og Reynir Pétur Ingvarsson, starfsmaður Sunnu. „Í sparifötunum“. Guðrún L. Haraldsdóttir á heiðurinn af Hvað hef ég gert? Myndir / smh

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.