Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Arizona – vettvangur umdeildustu
vísindatilraunar 20. aldarinnar
– þar sem fjórar konur og fjórir karlar voru lokaðir inni í algjörri einangrun í hinum risavaxna sjálfbæra Biosphere 2-hjúpi í tvö ár
Á febrúarmorgni blasir við
skrælnað og vatnslaust landslag
Suður-Arizona út um glugga
Amtrak-lestarinnar, á leið sinni
til austurstrandarinnar.
Landbúnaður ríkisins er að öllu
leyti háður áveitukerfum, enda
úrkoma lítil, og miðað við ríki eins
og Kaliforníu og Ohio er umfang
og efnahagslegt vægi landbúnaðar
í Arizona takmarkað.
Efnahagssaga Arizona var
lengi kennd út frá 5 C-um sem öll
skólabörn lærðu utan að. Undir lok
19. aldar vann meira en fjórðungur
íbúa við námavinnslu og var kopar
(Copper) helsti málmur sem unninn
var úr jörðu. Ræktun bómullar
(Cotton) varð í upphafi 20. aldar
umfangsmikill hluti landbúnaðar
ríkisins og er enn meðal 5 helstu
framleiðenda á landsvísu með um
600.000 bómullarballa.
Sítrusrækt (Citrus) hófst
seint á 19. öld fyrir tilstilli
vatnsveituframkvæmda, enda
ræktarlandið að stórum hluta
eyðimörk.
Fjölgun nautgripa (Cattle) náði
hámarki árið 1918 þegar 1,7 milljón
dýr voru á beit víða um ríkið, með
gríðarlegum gróðurskemmdum
sem enn móta fremur neikvæð
viðhorf almennings. Að lokum er
loftslag (Climate) Arizona mikill
áhrifavaldur á landbúnað og búsetu
þar sem ríkið nýtur um 300 daga af
sólskini á ári. Að tilskildu nægu vatni
eru vaxtarskilyrði í ríkinu einstök,
með milda vetur og háan sumarhita.
Upphaf nútíma landbúnaðar
má rekja til 1776 þegar spænskir
hermenn hófu landbúnað á Tucson-
svæðinu sem árið 1821 komst
undir stjórn Mexíkó í kjölfar
sjálfstæðis þeirra frá Spáni. Þegar
bandaríski herinn tók völdin árið
1856 voru íbúar flestir mexíkóskir
ásamt kínverskum bændum og
bandarískum landnemum.
Árið 1862 varð Arizona hluti
af Suðurríkjunum og þar með
þrælaríki til skamms tíma, þar til
forseti Sambandsríkjanna, Abraham
Lincoln, dró upp nýjar línur á korti
og marka þær enn þann dag í dag
útlínur ríkisins.
Árið 1912 varð Arizona yngst
hinna 48 ríkja Bandaríkjanna, en
hið afskekkta umráðasvæði hafði
lengi neikvætt orðspor sem lífvana
landsvæði með óheflaða íbúa. Saga
landbúnaðar innan þeirra útlína sem
Lincoln dró er þó mun eldri en búseta
landnema, hermanna, gullgrafara og
kúreka.
Systurnar þrjár
Fótspor í fyrrum árfarvegi Santa
Cruz árinnar er meðal þess sem Alan
Denoyer fornleifafræðingur lítur á
sem fjársjóð vísbendinga um tilvist
fyrstu bænda svæðisins. Í hvítu
opnu tjaldi á heitum febrúarmorgni
útlistar hann forsögu borgarinnar
fyrir gesti árlegrar bókahátíðar.
Rannsóknir sýna að ættbálkar
frumbyggja stunduðu kornrækt á
bökkum Santa Cruz árinnar fyrir
4000 árum. Fyrir 1.500 árum
komu fram leirpottar sem notaðir
voru til geymslu afurða kenndar
við Systurnar þrjár; korn, baunir og
kúrbít. Stórum veiðidýrum fækkaði
vegna ofveiði en stöðugt rennsli
árinnar var forsenda landbúnaðar og
þar með stöðugrar búsetu á Tucson-
svæðinu.
Denoyer sagði ýmsar uppgötvanir
hafa komið á óvart, þar á meðal
hversu nálægt bökkum árinnar
íbúar bjuggu. Ásamt manngerðum
áveitukerfum, þau elstu í
suðvesturhluta Bandaríkjanna,
nýttu bændur sér regluleg flóð með
tilheyrandi endurnýjun næringarefna
á akra sína. Fyrir utan fótspor og
frumstæð steinverkfæri eru helstu
uppgötvanir fornleifafræðinga
byggðar á eldsvoðum sem rekja
má til sjálfsíkveikju korns vegna
myglu. Þannig varðveitast lífræn
efni og veita innsýn í landbúnað
sem hámarkaði áhrif vatns með
áveitum en nýtti sömuleiðis villtar
eyðimerkurtegundir á borð við
Mequite runnann og Saguoro
kaktusinn.
4.500 árum eftir að kornrækt
hófst í Arizona er vatn enn jafn
mikilvægt málefni, en líklega
flóknara sökum ólíkra hagsmuna.
Allt ræktarland ríkisins þarfnast
áveitu sem kemur að miklu leyti frá
Colorado ánni. Heitt og þurrt loftslag
Arizona eykur þörfina á vatni, og
þar með aukna dælingu grunnvatns,
en bygging CAP (Central Arizona
Project) vatnsveitunnar á níunda
áratugnum minnkaði nokkuð þörfina
á grunnvatni.
Staða ættbálka Norður-Ameríku
eftir komu landnema hefur einkennst
Kýr á beit í suðurhluta Arizona. Myndir / Svavar Jónatansson
Gregg Vinson, nautgripabóndi í Oracle í suðurhluta Arizona. – Framhald á bls. 38