Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 38
3 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
af skorti, sérstaklega á vatni í suður-
hluta landsins. Ættbálkar Arizona,
sem líkt og Navajo rekja búsetu allt
að 1000 ár aftur í tímann, hafa þó
samkvæmt hæstaréttarúrskurði árið
1908, vatnsréttindi fram yfir land-
nema sem settust að síðar. Fjöldi
úrskurða í vatnsréttindamálum hafa
staðfest rétt ættbálka, sem nú og í
framtíðinni munu eiga meira tilkall
til þess vatns sem verndarsvæði þarf.
Í ljósi aukinnar vatnsþarfar vaxandi
borga líkt og Tucson og Phoenix,
sem og sveigjanlegra skilgreininga
á hugtakinu nauðsyn þegar kemur
að vatnsþörf, þar á meðal verndar-
svæða, munu vatnsréttindi og
úthlutun þeirra líklega verða meðal
áhrifamestu þátta fyrir landbúnað og
efnahag ríkisins á komandi árum.
Austur-vestur þverskurður
Gróf einföldun á landbúnaði Arizona
gæti verið svo hljóðandi; Yuma-sýsla
í vestri framleiðir 80% af salati
(lettuce og Iceberg) á landsvísu og
hefst uppskeran í desember. Miðhluti
ríkisins ræktar korn, refasmári
(alfalfa) og bómull en þegar lands-
lagið hækkar í suðri og austri fer
að bera meira á möndlum, pistasíu-
hnetum og vínrækt, sú síðastnefnda
nýleg en vaxandi viðbót við landbún-
að ríkisins. Meiri háttar breytingar
hafa átt sér stað í landbúnaði vegna
vaxtar borga og má nefna endalok
sítrusræktunar í Phoenix dalnum upp
úr miðri síðustu öld.
Meðalaldur bænda ríkisins er 61
ár, tveimur árum yfir landsmeðal-
tali, en sérstaða bænda Arizona felst í
háu hlutfalli kvenna (39%) og frum-
byggja ólíkra ættbálka (55.9%) sem
stjórnendur býla. Sömuleiðis jókst
fjöldi býla milli 2007–2012 um 28%
meðan að 3% fækkun átti sér stað á
landsvísu. Söluverðmæti afurða frá
20.000 býlum á samtals 26 milljón
ekrum voru 3,7 milljarðar dollara
árið 2016.
Samtakamáttur
Hlutverk samtaka og stofnana sem
sérhæfa sig í að þjónusta land-
búnað er í Arizona, líkt og víðar í
Bandaríkjunum, umfangsmikið.
Meðal samtaka má nefna samtök
salatræktenda sem framkvæma
rannsóknir og vinna að hagsmunum
iðnaðarins, fjármagnaðar með 0,004
cent skatti af hverjum seldum salat-
kassa, en árið 2015 var framleiðsla
ríkisins 20 milljón karton.
Arizona háskólinn er sömuleiðis
mikilvæg stofnun fyrir landbúnað
ríkisins. Hann er svokallaður
landstyrks (Land Grant) háskóli,
fyrirkomulag frá 1862 sem
gaf ríkjum og yfirráðasvæðum
Bandaríkjanna landsvæði sem þau
máttu selja ef hluti hagnaðarins væri
notaður til að fjármagna byggingu
háskóla með landbúnaðar- og
iðndeildir. Landbúnaðarmiðstöð
háskólans (UA Agriculture Center)
er rannsóknarvettvangur sem felur
í sér 13 rannsóknarstöðvar, þar
af 5 í Tucson. Steve Hussman,
framkvæmdastjóri Tucson stöðvanna,
útlistaði þríþætt hlutverk þeirra
sem rannsóknir, kennsla og miðlun.
Stöðvarnar eru hluti af 11 ólíkum
landbúnaðardeildum sem einu nafni
kallast CALS, og eru allar hluti af
Arizona háskóla (UA). Á 160 ekrum
stöðvanna eru um 5.000 fermetrar
af gróðurhúsum sem og opin svæði
þar sem hátt í 70 rannsóknartilraunir
eru framkvæmdar. Aðstaðan þjónar
þörfum nemenda og kennara til
rannsókna og kennslu, en miðlun
niðurstaðna er í höndum starfsmanna,
svipaðir landbúnaðarráðunautum,
staðsettir í öllum 75 sýslum ríkisins.
Sjálfur starfaði Hussmann sem
ráðunautur á Pheonix-svæðinu,
og minntist viðamikilla rannsókna
og afraksturs þeirra í baráttu við
Pink Bowl orm sem ógnaði allri
bómullaruppskeru upp úr 1990.
Með notkun ólíkra lífrænna og
ólífrænna efna ásamt því að seinka
sáningu var bómullariðnaði ríkisins
bjargað frá glötun. Skömmu
síðar komu fram erfðabreyttar
bómullartegundir sem höfðu
innbyggða vörn gegn orminum, og
er nú ríkjandi í allri bómullarræktun.
Kostnaðurinn sem bændur þurfa
að greiða fyrir nýjustu tækni og
þekkingu, þar á meðal samstarf
við Landbúnaðarmiðstöðina, segir
hann aðgreina frumkvöðla frá
öðrum, sem oftar en ekki taka upp
aðferðirnar síðar.
Ég hélt af stað norður til móts
við frumkvöðul sem stendur utan
ríkjandi landbúnaðarkerfis.
Oracle
Á keyrslu norður frá Tucson
þynnist íbúðabyggðin og
risavaxnir Saguoro kaktusar
víkja fyrir lágvöxnum Mesquite
runnum sem klæða landslagið
upp að hlíðum Santa Catalina
fjallanna. Fáeinir fólksbílar
og mótorhjól keyra framhjá
reglulegum minnismerkjum
Mexíkóa, fagurlega skreyttir
krossar til minningar um látinn
ástvin á þessum þráðbeina vegkafla
áleiðis til Oracle. Á bar bæjarins
eru gestir umkringdir teikningum
af kúrekum að kaðla nautgripi, en
á veröndinni situr maður sem gerði
uppreisn gegn þess kyns búskap.
Ímynd kúrekans að elta uppi
nautgripi hefur að mati Gregg
Vinson, sjálfur með kúrekahatt,
verið skaðleg en er því miður byggð
á raunveruleika. Hins vegar hefur
fjöldi nautgripa minnkað til muna
síðustu öld, eru nú um 880.000 og
ríkið í 32. sæti á landsvísu.
Gregg rak á tímabili einn stærsta
nautgripabúgarð ríkisins og horfði
upp á kúreka kaðla örfá dýr á dag,
sóun á tíma, orku og peningum að
hans mati. Flestir bændur treysta á
árlega útborgun við sláturtíð sem
setur þá í erfiða stöðu og kallar oft
á óhagstæð lán. Auk þess að kunna
því illa að vera blankur blöskraði
honum ástand dýra í fóðurstöðvum
þar sem hann óð skít í ökkla og
fann lyktina af sýklalyfjum sem
gefin eru tugþúsundum dýra í
þröngu sambýli.
Þegar hann lýsir búskapnum sem
hann og sonur hans stunda verður
mér ljóst að frumkvöðulshátturinn
er afleiðing þess að vera
hugmyndaríkur fjármálamaður,
óhræddur við að hugsa út fyrir
kassa hefðbundins landbúnaðar.
Saman eiga þeir feðgar 160
ekrur, en hjörð þeirra, 800 dýr,
hafa aðgang að 80.000 ekrum
til beitar sem er að mestu í eigu
hins opinbera. Sum landsvæði í
eigu alríkisins (federal land) eru
skilgreind sem almenningseign
og því ólíkleg til sölu, en hluti
af landareignum ríkjanna eru
seldar þegar eftirspurn frá
húsnæðismarkaði eykst. Á næsta
borði situr hópur eldra fólks sem
sækir í milt loftslag Arizona á
veturna, kallaðir snjófuglar, og
segir Gregg fjölgun slíkra íbúa
auka ásókn í beitarlönd, en telur
Oracle enn of dreifbýlt til að meiri
háttar landarkaup séu á döfinni.
Sunnan við Oracle röltum við
á milli harðgerðra kaktusa og
Mesquite runna þar sem greina
má slóðir nautgripa. Hann segir
aðferðir sínar þær sömu og
fjárhirða Evrópu og Afríku, sem
hann ber mikla virðingu fyrir.
Dýrin hafi í tímans rás verið
rekin hægt á milli beitarsvæða
sem tryggir náttúrulega dreifingu
áburðar og takmarkar troðning og
gróðureyðingu, sem áður einkenndi
nautgriparækt Arizona.
Tegundaval byggir hann á
kröfum landslagsins, líkt og
blendingsnauts af Hereford og
Brahman kyni, og smalahund sem
er blanda af áströlskum villihundi
og áströlskum Shephard, óttalaus
en klókur gagnvart eitursnákum
svæðisins.
Gregg er hreykinn af
afrakstrinum. Hjörð hans hefur
aldrei þurft á dýralækni að halda
og hann fær 4500$ fyrir skrokkinn
með sölu á sérmörkuðum, en
algengt verð er upp undir 600$ á
skrokk. Til þess að fá slíkt verð
þarf sérstakan markað efnaðra
viðskiptavina sem ekki er skortur
á í Arizona, en hins vegar mun
skortur á vinnuafli líklega hamla
vexti. Kúrekar með rétta hæfileika
segir hann hverfandi, þeir bestu
fyrir löngu farnir að vinna í
verksmiðjum Mexíkó eftir tilkomu
NAFTA. Hann minnist kúreka sem
unnu án þess að tala orð í ensku,
en þekktu landið og dýrin. Nú eru
hann og sonur hans ásamt GW,
aldraður kúreki, einir eftir og lítil
von um endurnýjun frammi fyrir
áhugaleysi yngri kynslóða.
Biosphere 2-hjúpurinn
– hálf ekra í geimnum
Aðeins fáeinum kílómetrum
vestan við Oracle, við rætur
Santa Catalina fjallanna, hófst ein
umfangsmesta og þar af leiðandi
umdeildasta vísindatilraun 20.
aldarinnar undir 6.500 gluggum
Biosphere 2-hjúpsins, risavaxið
gróðurhús með 3.800 plöntu- og
dýrategundir víða að úr heiminum.
Pýramídalögun byggingarinnar,
samtals 203.000 rúmmetrar, minnir
á geimnýlendu úr vísindaskáldsögu.
Þó svo fjöldi vísindamanna hafi
beint sjónum sínum að möguleikum
sjálfbærra lífkerfa, var það ólíklegur
hópur framsækinna einstaklinga
sem gerði hugmyndina að veruleika.
Hópurinn var leiddur af John Allen
og hófst sem leikhópur árið 1967
í San Francisco, en byggði upp
samfélag kennt við Synergia (með
vísun í samvirkni) í Nýju-Mexíkó
árið 1969 þar sem unnið var að
fjölbreyttum verkefnum, líkt og
smíði sjálfbærra bygginga.
Afrekaskrá hópsins var einstök,
þar á meðal nautgripabú í Ástralíu,
leikhús í London og rannsóknarskip
sem sigldi um heimsins höf í mörg
ár.
Biosphere 2-hjúpurinn var
umfangsmesta verkefnið, kostaði
150 milljón dollara, fjármagnað
af Ed Bass, milljarðamæringi og
þáverandi félaga í hópnum.
Forsendur hópsins, samvirknis-
sinnar, var aukinn skilningur á
lífkerfum jarðar, tilveru mannkyns
í náttúrulegu umhverfi og loks
framtíðarbúseta mannkyns í
geimnum.
Fjórar konur og fjórir karlar
lokaðir inni í tvö ár
Þeir atburðir sem áttu sér stað fyrir
og eftir 26. september árið 1991
hefur verið lýst ítarlega í fjölda
bóka, þar á meðal í bók Rebeccu
Reider, Dreaming the Biosphere.
Á fyrrnefndum degi stigu átta
meðlimir Biosphere 2-verkefnisins,
fjórar konur og fjórir karlar, inn
um loftþéttar dyr sem í kjölfarið
var lokað til tveggja ára, þó með
einni undantekningu. Inn í hjúpnum
viðhéldu sumir þátttakendur
lífkerfum hjúpsins; haf, regnskógur,
eyðimörk, gresja, fenjaviður og
landbúnaðarsvæði, auk þess að
fylgjast með þróun þeirra, aðrir
tækni-, gagna- og heilsumálum.
Þó svo rannsóknina hafi að vissu
leyti skort skýra stefnu frammi fyrir
umfangi viðfangsefnisins, var eitt
af markmiðunum að sýna fram á
að hægt væri að búa mannverum
lokað, lífvænlegt og sjálfbært
umhverfi. Slík tilraun féll að
markmiðum yfirvalda og NASA,
með tilheyrandi draumkenndri
umfjöllun um samfélög á öðrum
plánetum í náinni framtíð.
Með núverandi aðstoðarforstjóra
Saguaro-kaktus við rætur Santa Catalina-fjalla.
LEO-tilraun Háskólans í Arizona (UA) í fyrrum landbúnaðarrými Biosphere 2.
Eitt af tveimur „Lungum“ Biosphere 2, 20.000 kg hvert, jafna út loftþrýstings-
mun, sem gæti annars sprengt gler hjúpsins.