Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Árlega fara þúsundir Íslendinga
til Tenerife og er þessi eldfjalla-
eyja með vinsælustu ferðamanna-
stöðum nú um stundir. Flestir sem
þangað fara sækja í sólina en þar
sem eyjan hefur afar fjölbreytt
landslag er hún einnig vinsæll
áfangastaður fyrir göngu- og
hjólreiðafólk.
Það eru væntanlega ekki margir
sem fara til Tenerife til þess að
kynna sér landbúnað eyjunnar og
ekki margir sem tengja hana yfir-
höfuð við landbúnað. Það kann
því að koma mörgum á óvart að
á Tenerife er stundaður þónokkur
landbúnaður og t.d. er þar stunduð
umfangsmikil bananarækt.
Um Tenerife
Tenerife er stærsta og fjölmennasta
eyjan af hinum sjö Kanaríeyjum og
er um leið fjölmennasta eyja Spánar.
Hún er, sem flestum er væntanlega
kunnugt, í Atlantshafi og er um 300
kílómetra vestur af Afríkuríkinu
Marokkó.
Stærð hennar er um 2 þúsund
ferkílómetrar og þar búa um 900
þúsund manns. Tenerife er eldfjalla-
eyja og gnæfir eldfjallið Teide yfir
eyjunni en það er þriðja hæsta eld-
fjall jarðar með sína 3.718 metra
yfir sjávarmáli. Síðast varð eldgos
í fjallinu fyrir rúmum 100 árum og
er fjallið talið enn vera virk eldstöð.
Veðurfarið á Tenerife er afar
milt og árið um kring er hitastigið
um 20-25 gráður og fer hitastigið
sjaldan yfir 30 gráður. Náttúrufar
eyjunnar er einstakt og er mikill
munur á gróðurfari eftir því hvar á
eyjunni er borið niður.
Vegna staðvinda frá norðaustri
er afar mikill gróður á norðurhluta
eyjunnar og votviðrasamara þar en
á suðurhluta eyjunnar, þar sem oftar
er þurrt og sólríkt.
10% af vergri „landsframleiðslu“
Þrátt fyrir gríðarleg umsvif ferða-
mannaiðnaðar á Tenerife er ýmis
annar atvinnuvegur stundaður á eyj-
unni og er landbúnaður einn þeirra.
Í dag stendur hann undir um 10% af
vergri „landsframleiðslu“ Tenerife
en umfangsmest er að sjálfsögðu
ferðamennskan. Landbúnaðurinn
gegnir þó veigamiklu hlutverki
enda viðheldur hann fjölbreytni í
landslaginu og byggð í dreifbýli
eyjunnar.
Umfangsmikil bananarækt
Á Tenerife er landbúnaðurinn
vel þróaður og er fjölbreyttari en
margur heldur og þegar horft er til
einstakra greina er bananaræktin
lang umfangsmest.
Alls eru bananar framleiddir á
rúmlega 4 þúsund hekturum lands
og eru bananaakrar afar auðþekkj-
anlegir fyrir hinn almenna ferða-
mann enda oft alklæddir striga, m.a.
til þess að verjast uppgufun vatns,
og þá eru þeir oftast á sléttlendi.
Það er hins vegar ekki mjög víða
hægt að finna sléttlendi og því eru
akrarnir byggðir upp með hleðslu
undan hallanum svo akurinn nær
að vera á jafnsléttu. Þessi einstaka
uppbygging á sér afar langa sögu
og minnir steinhleðslan á vel hlaðna
íslenska veggi, enda oft notaðir
hraunsteinar í hleðsluna líkt og sést
hér á landi.
Bananaræktin kom til Kanaríeyja
frá Suðaustur-Asíu snemma á 16.
öld og var ræktun á bönunum fram-
an af ekki stunduð í stórum stíl og
það var ekki fyrr en 1882 er rækt-
unin var orðin það umfangsmikil
að útflutningur gat hafist en fyrsta
sendingin fór til Englands það ár
og síðan hafa bændur á Tenerife
ekki litið um öxl. Nú nemur árleg
framleiðsla um 150 þúsund tonnum
og er megnið, um 90% af þessari
framleiðslu, flutt til Spánar þar sem
framleiðslan nýtur sérstakrar vernd-
ar gegn öðrum innfluttum bönunum.
Ýmis önnur
landbúnaðarframleiðsla
Næst á eftir bananaræktinni kemur
tómataræktin og er hún einnig afar
umsvifamikil á Tenerife og nema
tekjur af tómataframleiðslu eyjunn-
ar um 80% af tekjum frá banana-
framleiðslunni. Þá eru einnig margir
bændur í kartöflurækt og fram-
leiðslu á margs konar skrautblóm-
um. Á eyjunni er einnig nokkuð
umfangsmikil hunangsframleiðsla
auk þess sem vínberjaframleiðsla
eyjunnar er vel þekkt og þá fyrst
og fremst til léttvínsframleiðslu, en
þaðan koma ýmsar þekktar tegundir
af léttvíni.
Hefðbundin búfjárrækt er einnig
stunduð á eyjunni en hún er þó
ekki sérlega umfangsmikil. Þar er
þó stunduð bæði svínaframleiðsla,
sauð- og geitfjárrækt auk þess
sem kúabúskapur er stundaður í
nokkrum mæli en á Tenerife eru um
6 þúsund mjólkurkýr og þónokkur
geitamjólkurframleiðsla, eru geita-
ostar líklega þekktasta framleiðsla
eyjunnar þegar horft er til mjólkur-
framleiðslunnar.
Október – mánuður
kaktuslúsarinnar
Á Tenerife eru kaktusar algengir
og á þeim lifir kaktuslúsin (Coccus
Cacti). Þessi lús er mjög sérstök
enda hefur hún verið nýtt í hundruð
ára til litunar á efnum, en lús þessi
framleiðir sérstakt purpurarautt
efni sem hægt er að nota til litunar
á efnum.
Hér áður fyrr kom hráefni til
litunar á rauðum lit mest frá Suður-
Ameríku og Mexíkó, en lús þessi
var flutt til Kanaríeyja á 16. öld svo
Evrópumenn gætu sjálfir framleitt
hið vinsæla litarefni sem unnið er
úr þessari lús og eggjum hennar.
Á Tenerife er líka landbúnaður
Veitingastaðir í Ástralíu:
Logið blákalt til um vörur og
vörumerki á matseðlum
Matseðlasvindl er útbreitt á
veitingastöðum á Victoríusvæðinu
í Ástralíu. Þar er gjarnan vísað á
fæðu eða vörumerki sem er ekki
að finna í þeim mat sem síðan er
borinn á borð.
Þetta kom fram í The Weekly
Times í Ástralíu þann 23. maí sl.
Blaðið hefur nú varpað ljósi á
fræga veitingastaði í Melbourne
og á Victoríusvæðinu sem hafa sett
fram falskar upplýsingar um notkun
þeirra á vörum undir viðurkenndum
vörumerkjum.
Selja vörur sem aldrei voru
keyptar inn
Sumir framleiðendur staðfestu að
þeir hafi orðið varir við að þeirra
vöru var getið á matseðlum án þess
að hafa nokkru sinni selt viðkom-
andi veitingastöðum slíka vöru. Í
öðrum tilvikum höfðu veitinga-
staðir látið undir höfuð leggjast að
fjarlægja af matseðlum upplýsingar
um vöruheiti sem þeir voru ekki
lengur með á boðstólum.
Robert Jones, framleiðandi á
silungi undir vörumerkinu Tuki,
segir að á mörgum veitingastöð-
um í miðborg Victoríu sé ranglega
getið um Tuki silung á matseðlin-
um. Einnig Tuki nautakjöt og Tuki
lamb sem viðkomandi veitingastað-
ir hafi aldrei keypt af honum. Sagði
hann að þetta hafi viðgengist árum
saman.
Logið blákalt
„Einn veitingastaður hefur frá upp-
hafi og þráfaldlega sett Tuki silung
á matseðlana sína og þeir eru blákalt
að ljúga því og komast upp með
það. Þeir eru ekki að kaupa okkar
vöru en nota samt okkar góða vöru-
merki í sínum viðskiptum,“ segir
hann.
„Það er eiginlega þægilegra að
láta svona mál eiga sig, því þetta er
svo pirrandi og svekkjandi. Þetta
hefur verið gert í ríkum mæli í
gegnum árin og þessir menn eiga
ekki að komast upp með þetta,“
segir Robert Jones.
Svipaða sögu segir hunangs-
framleiðandinn Mat Lumalasi.
Hann segir að svik af þessum toga
séu útbreidd á veitingastöðum
og kaffihúsum vítt og breitt um
Victoríu. /HKr.
Amerískar maístegundir kortlagðar
Í þúsundir ára hafa bændur
um allan heim aðlagað
ræktunarafurðir sínar að sínu
staðbundna umhverfi.
Maís er ein meginstoð mat-
vælaræktar í heiminum og fram-
leiðslan í kringum milljarður tonna
á ári. Samkvæmt tölum landbún-
aðarráðuneytis Bandaríkjanna
(USDA) var rúmur milljarður
tonna af maís ræktað í fyrra en
Bandaríkin bera ábyrgð á hátt í
40% framleiðslunnar. Kína fram-
leiðir næstmest, um 21%, Brasilía
8,3%, Evrópusambandslöndin 5,8%,
Argentína 3,5%, Úkraína 2,6 % og
önnur minna.
Vísindatímaritið Nature hefur
birt niðurstöður viðamikillar rann-
sóknar á maísplöntunni. Í rannsókn-
inni voru eiginleikar staðaryrkja
um 4.500 maístegunda víðs vegar
um Ameríku kortlagðir með DNA
greiningum.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á
erfða fræðilegan grunn blómgunar-
tíma og skýra jafnframt hvernig
maís aðlagast breytilegum aðstæð-
um í umhverfinu. Uppgötvunin
opnar möguleika á að kanna og nota
fjölbreytni staðaryrkja á nýjan hátt,
s.s. til að hjálpa ræktendum við að
aðlaga ræktun sína að loftslags-
breytingum. /ghp
UTAN ÚR HEIMI
Frá Victoríu í Ástralíu.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Maísgerðir eru af öllum stærðum og gerðum.
Bananaekrur á Tenerife eru oft byggðar upp á hleðslu undan halla, svo hægt sé að planta á jafnsléttu.
Stórbrotin náttúrufegurð á Tenerife.
Bananar eru ræktaðir á 4 þúsund
hekturum á Tenerife.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá