Bændablaðið - 08.05.2017, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Nú er framleiðsla gróffóðurs næsta
vetrar að fara á fullt.
Það er mikilvægt að vanda vel til
verka við framleiðslu á gróffóðri því
það á að vera grunnurinn að mjólk-
ur- og kjötframleiðslunni næsta árið.
Gróffóðurverkunin er misjöfn
eftir því hvaða aðferðir menn
velja til að verka fóðrið
Þurrhey (yfir 70% þurrefni), aðferð
sem er ekki lengur algeng. Eftir þurrt
sumar er þó töluvert um að menn
þurrki vel í rúllur líka. Í þurrheyi er
ekki mikil verkun eftir að það hefur
verið sótt af velli, því er vel hægt að
taka hirðingarsýni til þess að fá góða
mynd af því hvernig þurrheystaðan
nýtist. Helst þarf að passa að ekki
komist raki að þurrheyinu svo það
mygli ekki.
Rúlluhey (40%–70% þurrefni),
milli-þurrar rúllur sem eru líklega
þær algengustu á Íslandi. Þetta er
ekki algeng verkunaraðferð annars
staðar í veröldinni. En þetta er engu
að síður ágætis aðferð til að verka
fóður. Íblöndunarefni eru ekki fram-
leidd til þess að nota í þurrlegt gróf-
fóður, það er lítil verkun sem á sér
stað við þær aðstæður. Eftir því sem
rakastigið eykst aukast þarfirnar fyrir
íblöndun til þess að tryggja rétta gerj-
un. Ef grasið er slegið við rétt þroska-
stig, þ.e. það er ekki orðið of sprottið
er vel hægt að hafa töluverðan raka í
því án þess að nota íblöndunarefni.
En þá þarf að vera sykur til að brjóta
niður og það þarf að þjappa rúllunum
vel saman og pakka þeim vel inn.
Vönduð vinnubrögð geta vel dugað
til þess að fá vel verkaðar milliþurr-
ar rúllur af fyrsta slætti. Hins vegar
verður alltaf til ákveðin hætta ef við
erum að slá frekar seint, eða um
annan eða þriðja slátt er að ræða,
eða jafnvel ytri aðstæður eru erfiðar.
Þá getur það verið vel þess virði að
nota íblöndunarefni í þetta fóður líka.
Vothey (28-40%), verkað í
stæðum, turnum eða rúllum. Þetta
er fóður sem er lítið forþurrkað og
hirt af velli frekar blautt. Þá verðum
við að treysta á góða gerjun til þess
að varðveita næringarefnin í fóðrinu.
Við bestu aðstæður er hægt að hugsa
sér að þetta gangi upp án íblöndunar,
sérstaklega á fyrsta slætti, þegar
slegið er eftir sólríkan dag (nægur
sykur fyrir överurnar sem koma úr
umhverfinu), forþurrkað þannig að
þurrefnið sé á bilinu 32%-37% og
það gerist hratt eða á ekki lengri tíma
en sólarhring. En er það áhættunnar
virði? Það er mjög góður kostur að
nota íblöndunarefni í vothey með því
að smita með þeim bakteríum sem
við viljum að verki gróffóðrið til að
tryggja rétta gerjun og að það nýtist
þá sem best næsta vetur. Ef verka á
með lægra þurrefni en 30% getur
verið öruggari kostur að sýra beint.
Mat á aðstæðum og val á
íblöndunarefnum
Þegar við erum að verka gróffóður
er í raun verið að nýta örverur til
þess að sýra það. Örverur sem
nýta sykurinn í gróffóðrinu mynda
mjólkursýru sem lækkar sýrustigið
og þannig varðveitast næringarefnin.
Það verðu minna niðurbrot af
próteini og óæskilegar örverur ná
sér ekki á strik. Mjólkursýran sem
myndast nýtist líka fyrir kýr og
kindur sem éta fóðrið því þær eru jú
með mjólkursýrugerjandi bakteríur
í vömbinni og geta þar af leiðandi
tekið mjólkursýruna úr fóðrinu upp
líka og nýtt sem orku. Svo það má
ekki líta þannig á að sykurinn sem
örverurnar nýti sé glataður hann
nýtist bara á öðru formi.
Örverurnar sem eru til í
íblöndunarefnum eruð aðeins
mismunandi og hafa þar af
leiðandi aðeins mismunandi
eiginleika. Það er svo aftur aðeins
mismunandi eftir aðstæðum hvaða
eiginleikum við erum að leita að
í örverunum. Í grunninn eru þetta
mjólkursýrugerjandi örverur en þær
eru hægt að flokka í einsleitar og
fjölbreytilegar (homofermentative
og heterofermentative).
Þessar einsleitublöndur af
mjólkursýrugerjandi örverum hafa
sýnt sig í rannsóknum að skili meiri
gæðum í gróffóðrinu eftir verkunina.
Þær eiga að sýra hratt og niðurbrotið
verður mjög lítið, eða eins lítið og
mögulegt er. En til þess að þær geti
sinnt sínu vel og örugglega þarf þetta
að vera gott gróffóður, slegið með
góða næringu, ekki of trénað, helst
þarf þurrefnið að vera komið yfir
30% á bilinu 32-37% er öruggast
og það þarf að þjappast mjög vel.
Þessar bakteríur ná ekki að vinna
vel á óæskilegri gerjun sem verður
í loftgötunum ef þjöppun er ekki
fullnægjandi. Svo til viðbótar
við þetta eru til rannsóknir sem
sýna að með því að hafa aðeins af
própionsýrugerjandi bakteríum með
næst ennþá meiri árangur í að stoppa
hratt gerjunina og varðveita þannig
ennþá betur næringarefnin.
Fjölbreytilegu blöndurnar hafa
hinsvegar aðeins víðara verksvið.
Þær gera ráð fyrir því að hugsanlega
þurfi að tækla óæskilega gerjun í
loftgötum og ef fóðrið er ekki með
nægjanlega aðgengilega orku fyrir
örverurnar, lítill sykur og/eða mikið
trénað. Í þessum kokteilum verður
ekki bara mjólkursýrugerjun heldur
einnig ediksýrugerjun sem hefur það
hlutverk að stoppa þessa óæskilegu
gerjun í loftgötunum sem verða ef
ekki þjappast nógu vel. Gerjunin
sem verður þegar svona bakteríur eru
notaðar við íblöndun gefur yfirleitt
ekki eins mikil gæði á gróffóðrinu
eftir verkun og ef mögulegt er að
nota þessar einsleitu blöndur en hún
gefur auðvitað alltaf betri niðurstöðu
en misheppnuð gerjun hvort sem er
með einsleitu örverunum eða engri
íblöndun.
Á markaðnum á Íslandi í dag eru
nokkrar gerðir af íblöndunarefnum.
Þau hafa mis mikinn þéttleika
baktería, flest hafa þau ensím
sem hjálpa til við að gera fóðrið
aðgengilegra fyrir överurnar svo
þær vinni örugglega vel. En hvernig
veljum við hvað hentar hverju sinni.
Í grófum dráttum má flokka þau
niður í fjóra flokka sem núna eru á
markaðnum.
Íblöndunarefni með einsleitum
blöndum mjólkursýrugerjandi
baktería sem henta mjög vel við
góðar aðstæður, þar sem verka á
úrvals gróffóður, snemmslegið, ríkt
af sykri og þjöppun er til fyrirmyndar.
Íblöndunarefni sem hafa
blöndu af þessum einsleitu
mjólkursýrugerjandi bakteríum en
þar leynast með própionsýrugerjandi
bakteríur sem eiga að gefa aðeins
betri niðurstöðu en þær sem aðeins
innihalda mjólkursýrugerjandi
einsleitar bakteríur. En þetta er
einnig það sem við myndum helst
velja í gras sem er ekki of sprottið
og þjöppun er góð.
Íblöndunarefni sem hafa
fjölbreytilega blöndu og gefa
því aðallega mjólkursýrugerjun
en einnig ediksýrugerjun. Þessa
íblöndun hentar best að nota ef það
er erfitt að þjappa og/eða fóðrið
er orðið frekar trénað sem bæði
gerir þjöppun erfiðari og hættuna
á litlum loftgötum meiri, en einnig
er næringin fyrir överurnar ekki eins
aðgengileg. Svona íblöndunarefni
henta því vel í grænfóður þar
sem hafrar og bygg eru með og
stöngullinn orðin frekar öflugur.
Ef gróffóðrið sprettur of vel úr
sér eða tæki til þjöppunar eru ekki
nægjanlega góð. Eins getur verið
sniðugt að nota þetta í efsta lagið
ef menn hafa ekki náð nógu góðum
tökum á þjöppun þar.
Í lokin má svo nefna að á
markaðnum eru líka til íblöndunar-
efni sem hafa blöndu af þessum
einsleitu og þessum fjölbreytilegu
og eru því hugsuð sem svona
alhliða og nýtast við fjölbreytilegar
aðstæður.
Það sem mestu máli skiptir
En það sem við þurfum alltaf að
leggja mesta áherslu á er að vanda
vel til verka. Slá á réttum tíma
þannig að það sé nóg sykur að vinna
með, þurrka á ekki lengri tíma en
sólarhring uppfyrir 30% þurrefni
(32-37% er best). Þjappa rosalega
vel og aðeins lengur ef þetta hefur
ekki verið að skila nógu góðum
árangri til þessa. Það er vel hægt
að nota íblöndunarefni í rúllur líka
og þá þarf sá sem keyrir að vanda
sig vel svo rúllurnar verði eins þéttar
og mögulegt er og ekki spara plastið,
keyra heim strax og leyfa verkuninni
að eiga sér stað þar sem rúllurnar
eiga að standa í vetur.
Allar nánari upplýsingar og ráð
er hægt að fá hjá ráðunautum RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Heyskapur. Mynd / Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
Berglind Ósk Óðinsdóttir
starfsmannastjóri og
ábyrgðarmaður í fóðrun
boo@rml.is
Gróffóðurverkun og íblöndun
Plastbinding í stað nets, þar á
undan garns, er framtíðin að mati
flestra framleiðenda rúlluvéla. Í
nokkur ár hafa verið á markaði
rúlluvélar sem nýta sér plastfilmu
til að binda rúllur í baggahólfinu
í stað nets:
• Aukafilman eykur styrk plast-
hjúpsins, og hjálpar þannig til
við að minnka súrefnismagn sem
berst að heyinu á verkunar- og
geymslutímabilinu og minnkar
líkur á myglu og fóðurtapi.
• Mögulega er hægt að komast af
með minna plast þegar rúllunni
er plastað, þótt framleiðendur
séu ekki allir sammála um það.
• Auðveldar til muna það að opna
rúlluna með t.d. rúlluskera.
• Meira plast er á „belgnum“ sem
minnkar líkur á skemmdum í
flutningi.
• Auðveldar alla vinnu við flokkun
í endurvinnslu.
Í dag eru þessir framleiðendur að
framleiða rúlluvélar með slíkan
búnað:
• Orkel eru frumkvöðlar í notkun
plastfilmu í stað nets og eru í
samvinnu með New Holland í
þessum efnum með sínar Roll
Baler 125 Combi og Roll Baler
135 Ultra.
• Göweil G5040Kombi vélarnar
eru lítt þekktar hérlendis en eru
með þessum búnaði.
• Krone Crown Comprima týpurn-
ar eru með plasti í stað nets og
hægt er að kaupa búnað fyrir
vélar framleiddar eftir 2014 og
setja á hér heima.
• McHale hefur búnaðinn og heita
þá vélarnar plús vélar.
• Kuhn i-BIO + er einnig vél á
markaði hérlendis með plast í
stað nets.
Hvað með aðra?
• Vicon eru á fullu í þróun á
FastBale vélinni, og fyrstu
p r ó f a n i r
hafa verið
með neti en
líklegt er að
hún verði
fyrst Vicon
véla með
plasti í stað
nets.
• John Deere
vilja bíða
með þennan búnað þar til plast-
filman verður ódýrari.
Filman sem þarf er framleidd af
nokkrum aðilum og fer þeim fjölg-
andi.
• 1,25 m að breidd, þykktin er
frá 13–25 míkró metrar.
• Til að halda pressunni á rúll-
unni er talað um að setja 2,8 til
5,5 lag utan um þær
• Ennþá er plastið dýrari kostur en
netið en dregið hefur saman með
verði á neti og plasti eftir því sem
notkun þess síðarnefnda eykst.
Sigtrygur V. Herbertsson
ábyrgðarmaður í
bútækni
sigtryggur@rml.is
Rúlluvélar – Plast í stað nets