Bændablaðið - 08.05.2017, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Eyrnabandið Kleina
ANN RÐA ORNIÐ Gallery Spuni
Við kynnum hér með stolti upp-
skrift að æðislegu eyrnabandi frá
Kristínu, hönnuði Einrúm garns-
ins. Við hjá Gallery Spuna erum
ekkert smá hrifnar af því sem hún
er búin að gera með íslensku ull-
ina. Hún blandar saman við hana
Thai silki og úr verður æðislega
garnið Einrúm sem við nefnum
hér að ofan.
Mjög flott og skemmtileg hug-
mynd og verður gaman að fylgj-
ast með Kristínu í framtíðinni.
Hörkuduglegur hönnuður sem á eftir
að ná langt.
Einrúm er til hjá okkur ásamt
öllum uppskriftunum sem komið
hafa út og eru þær allar samtvinn-
aðar íslenskri náttúru!
Kristín deilir hér með okkur æðis-
legu eyrnabandi sem er tilvísun til
íslensku kleinunnar. Mjög fallegt og
einstaklega skemmtilegt að prjóna.
Bestu kveðjur,
Gallery Spuni
Kleina
Hönnun: Kristín Brynja Gunnarsdóttir
Eyrnaband : Allar einrúm E og L tegundir
Stærðir: 1 (2) E+2 band: 50 g (50 g) E+4 band:
50 g (50 g)
L+2 band: 50 g (50 g) L+4 band: 50 g (100 g)
PRJÓNAR: E-band: Prjónar nr. 3,5 L-band: Prjónar
nr. 7
PRJÓNFESTA: garðaprjón: E-band: 10 cm = 21 L
10 cm = 32 umf
L-band: 10 cm = 12 L 10 cm = 20 umf
MÁL: Stærðir: 1 (2) Lengd ennisbands, ósnúið: 50
(58) cm Breidd ennisbands: 9 (10) cm
Sjá nánar á http://galleryspuni.is/uppskriftir/einrum
Ennisband - Kleina. Einfalt og fljótlegt ennisband
sem hægt er að prjóna bæði úr einrúm E-bandi
og L-bandi. Prjónað er úr einföldu E-bandi en
tvöföldu L-bandi. Ennisbandið er prjónað fram
og tilbaka. Nálægt miðju er raf sem lengri enda
ennisbandsins er stungið í gegnum rétt eins og
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
5 6 1 2 8
8 2 5 3
7 4 3
8 3 4 7
4 5 9 6
1 3 9 8
6 1 9
6 9 5 2
5 1 7 2 4
Þyngst
3 2
8 5 7 1 6
9 2 5 4
3 1 8
4 7
9 2 3
7 6 1 8
5 2 4 6 9
1 3
8 4
2 7 3 1
4 9 2
9 4 6 5
5 2 8 3
2 5 8
3 8 7 9
5 9
5 9 2
3 9 7
6 7 8
3
9 4 1 6 5
4
9 5 6
2 1 5
5 8 7
ÓLKIÐ SEM ER IR LAN IÐ
Mikill dýravinur sem finnst
gaman að skoða náttúruna
Valdís Helga er hress og jákvæð
stelpa. Hún þarf alltaf að hafa
eitthvað fyrir stafni og finnst
gaman að skoða náttúruna. Svo
er hún mikill dýravinur.
Nafn: Valdís Helga.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Laufásvegur 5, Stykkishólmi.
Skóli: Grunnskóli Stykkishólms.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: 12:00.
Uppáhaldskvikmynd: Minions.
Fyrsta minning þín? Ég var alltaf
eitthvað að krota á blöð.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi íþróttir, körfubolta,
frjálsar og fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Dýravinur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég var á apagrindinni
og hékk á súlunni og klifraði svo aftur
upp.
Ætlarðu að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Já, ég ætla að fara með
vinkonum mínum til Reykjavíkur.
Næst » Valdís Helga skorar á Guðmund Arnar
Ásmundsson að svara næst.
ef verið væri að steikja kleinur. Ennisbandinu er
lokað að aftan með einni smellu svo ekki þurfi að
rugla hárgreiðslunni.
AÐFERÐ:
• Ennisbandið er prjónað fram og tilbaka úr einföldu
E-bandi eða tvöföldu L-bandi.
Fitjið upp 2 L úr einföldu E-bandi á prjóna nr. 4 eða
tvöföldu L-bandi á prjóna nr. 7.
1. umf: 1 sl, 1 óprj.
2. umf: 1 sl, aukið út um 1 L, 1 óprj.
3. umf: 2 sl, 1 óprj.
4. umf: 1 sl, aukið út um 1 L, 1 sl, 1 óprj (4 L).
5. umf: 3 sl, 1 óprj (4 L).
6. umf: 3 sl, 1 óprj (4 L).
7. umf: 2 sl, aukið út um 1 L, 1 sl, 1 óprj. (5 L).
8. umf: 2 sl, aukið út um 1 L, 2 sl, 1 óprj (6 L á prjón-
inum).
9. umf: 5 sl, 1 óprj.
10. umf: 5 sl, 1 óprj.
Endurtakið umf 7 til 10 með því að auka út 1 L í tveim-
ur umf og prj 2 umf án útaukninga þar til 20 (24)
L eru á prjóni ef prjónað er úr E-bandi en 12 (16)
L eru á prjóni ef prjónað er úr L-bandi. Prj 24 (28)
garða (48 (56) umf) ef prjónað er úr E-bandi en
14 (18) garða (24 (42) umf) ef prj er úr L-bandi.
RAUF Í MIÐJU: Prj 9 (11) L ef prjónað er úr E-bandi
en 5 (7) L ef prjónað er úr L-bandi, 1 óprj. Snúið við.
Endurtakið síðustu umf þar til prj hafa verið 3 (4)
garðar (6 (8) umf) ef prjónað er úr E-bandi en 2 (3)
garðar (4 (6) umf) ef prjónað er úr L-bandi. Slítið
bandið og prj hina hliðina við raufina á sama hátt
og fyrri (byrjið umf við raufina).
SAMEINA HLIÐAR: 1. umf: Prj 9 (11) L ef prjónað
er úr E-bandi en 5 (7) L ef prjónað er úr L-bandi,
prj 2 sl sm (1 L af hvorri hlið við gat), prj sl þar til
1 L er eftir á prjóni, 1 óprj. Snúið við. Prj 9 (11) L
ef prjónað er úr E-bandi en 5 (7) L ef prjónað er úr
L-bandi, aukið út um 1 L, prj sl þar til 1 L er eftir á
prj, 1 óprj. Snúið við. Prj sem fyrr (allar L sl, síðasta
L á prjóni óprj). Prj 20 (24) garða (40 (48) umf) ef
prjónað er úr E-bandi en 12 (16) garða ( 24 (32)
umf) ef prjónað er úr L-bandi.
ÚRTAKA: *1 sl, 2 sl sm, prj sl þar til 1 L er eftir á
prj, 1 óprj. Snúið við. Endurtakið fyrri umf. Prj 2
umf án úrtöku*. Endurtakið *-* þar til 2 L eru eftir
á prjóni. Fellið af.
Gangið frá endum og handþvoið ennisbandið úr
volgu vatni, vindið ef til vill í þvottavél á stuttu kerfi
og leggið til þerris. Þræðið lengri enda ennisbandsins
inn í gatið. Saumið smellu á enda ennisbandsins og
lokið því.