Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Björt Ólafsdóttir umhverfis-
og auðlindaráðherra segist
deila undrun manna yfir að á
reikningum fyrir orkunotkun
heimila sé sagt að raforkan sé að
hluta framleidd með kolum, olíu,
gasi og kjarnorku.
„Þetta er ankannalegt og veldur
ruglingi í loftslagsumræðunni.
Þetta regluverk er hluti af EES-
samningnum og ekki á forræði
míns ráðuneytis. Ég hef rætt þetta
við minn kollega sem ber ábyrgð
á þessum lögum og mér finnst rétt
að skoða hvort hægt sé að breyta
einhverju þarna, reglunum eða
framkvæmd þeirra,“ segir ráðherra
í svari við fyrirspurn Bændablaðsins.
Í umfjöllun Bændablaðsins
6. júlí 2017 er greint frá sölu
hreinleikavottorða íslenskra
orkufyrirtækja úr landi og í staðinn
taka þau á sig kolefnisfótspor og
hlutdeild í geislavirkum úrgangi
vegna framleiðslu á raforku með
kjarnorku. Vegna þessa óskaði
Bændablaðið eftir svörum frá
Björt Ólafsdóttur umhverfis- og
auðlindaráðherra við eftirfarandi
spurningum:
1. Telur umhverfisráðherra
ásættanlegt að Ísland kaupi til
sín kolefnisfótspor, um 290
þúsund tonn af koldíoxíði (460
og geislavirka mengun um 154
kg (0,72 mg/kWh) á síðasta
ári, sem nemur samtals 59% af
raforkuframleiðslu Íslendinga
2016, í skiptum fyrir vottorð
á hreinni orku sem hér er
framleidd?
2. Nú hefur ráðherra rætt
hugmyndir um að moka
ofan í framræsluskurði, auka
skógrækt og draga úr útblæstri
frá bílum og stóriðju. Hefur
ráðherra skipt um skoðun og
hafa íslensk stjórnvöld lagt á
hilluna öll áform um að draga
úr kolefnisfótspori Íslands
í alþjóðlegu samhengi eins
og ætla má af innkaupum
á ímyndaðri kolefnis- og
geislavirkri mengun?
3. Ef ráðherra og ríkisstjórn hefur
hefur ekki skipt um skoðun
varðandi það að draga úr mengun
og losun gróðurhúsalofttegunda
á Íslandi, mun ráðherra þá beita
sér fyrir því að Ísland hætti sölu
á hreinleikavottorðum á raforku
úr landi?
4. Mun ráðherra beita sér fyrir
að innleiðing tilskipunar
Evrópusambandsins, sem
innleidd var á Íslandi með lögum
nr. 30/2008, sem samþykkt voru
7. apríl 2008 og heimilar sölu
á hreinleikavottorðum fyrir
raforku verði numin úr gildi?
Svar ráðherra
Svar barst frá umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu 10. ágúst, en
þar segir orðrétt:
„Í þessum spurningum er vísað til
viðskipta með sk. upprunaábyrgðir á
grundvelli reglna ESB í orkumálum,
sem er ætlað að efla samkeppnisstöðu
endurnýjanlegrar orku. Þar geta menn
keypt sér vottorð um að hafa greitt
sérstaklega fyrir endurnýjanlega
orku úr rafmagnsdreifikerfinu,
sem er að stórum hluta samtengt í
Evrópu. Á Íslandi kemur þetta hins
vegar mörgum spánskt fyrir sjónir,
þar sem orka á Íslandi er nær 100%
frá endurnýjanlegum orkugjöfum
og dreifikerfi raforku ótengt því
evrópska, þannig að í raun geta
aðilar á meginlandinu ekki keypt
raforku framleidda á Íslandi og
íslenskir neytendur hafa
engan aðgang að rafmagni
sem framleitt er með
kolum eða kjarnorku.
Almennt er því til að
svara að þetta kerfi með
upprunaábyrgðir, sem er
á forræði atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins,
er ótengt bókhaldi um losun
gróðurhúsalofttegunda og hefur
ekki áhrif á það eða skuldbindingar
Íslands í loftslagsmálum, sem
eru á verksviði umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins. Sala íslenskra
orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum
þýðir ekki að Ísland fái bókfærða
losun frá evrópskum kolaorkuverum.
Þetta regluverk breytir því engu
um skuldbindingar eða áform
stjórnvalda í loftslagsmálum. Ísland
skilar árlega losunarbókhaldi til
Loftslagssamnings S.þ., sem er
vandlega yfirfarið af sérfræðingum
á vegum samningsins; þar breyta
viðskipti með upprunaábyrgðir engu
til eða frá.
Mér sýnist að grunnhugsunin
í þessu regluverki ESB sé góð; í
Evrópu setja bæði vindmyllur og
kolaver raforku inn á dreifikerfið
og notendur eiga síðan þann kostr
að kaupa tilkall til endurnýjanlega
þáttarins og fá vottorð um slíkt –
kaupandinn fær þá grænni ímynd,
hreina orkan meiri tekjur og kerfið
í heild er hvetjandi varðandi
endurnýjanlega orku. Í okkar
eyríki vekur útkoman hins
vegar upp spurningar,
eins þótt þetta hafi
ekki áhrif á opinbera
loftslagsbókhaldið. Það
mætti kannski gleðjast
yfir að orkufyrirtækin
fái aukalegar tekjur
frá Evrópu fyrir sína
endurnýjanlegu orku, en
það er afar skrítið fyrir íslenska
neytendur að fá upplýsingar
á rafmagnsreikningnum um
að stofuljósin séu kolakynt og
eldavélin kjarnorkuknúin. Ég deili
undrun manna á slíku. Þetta er
ankannalegt og veldur ruglingi í
loftslagsumræðunni. Þetta regluverk
er hluti af EES-samningnum og
ekki á forræði míns ráðuneytisins.
Ég hef rætt þetta við minn kollega
sem ber ábyrgð á þessum lögum
og mér finnst rétt að skoða hvort
hægt er breyta einhverju þarna,
reglunum eða framkvæmd þeirra.
Mögulega er það flókið mál út frá
EES-samningnum, en mér finnst
engu að síður rétt að skoða það. En
ég ítreka að þetta hefur engin áhrif á
loftslagsbókhald eða skuldbindingar
í loftslagsmálum. Við munum
halda ótrauð áfram við gerð nýrrar
aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum,
hvort sem þessu regluverki
verður breytt nú eða síðar,“ segir
Björt Ólafsdóttir umhverfis- og
auðlindaráðherra.
Þykir fáránlegt en ekkert gert
til úrbóta nema að fela málið
Það vekur athygli að ekkert skuli
hafa verið gert í málinu síðan
Bændablaðið upplýsti fyrst um
þennan skrípaleik í júní 2015.
Þáverandi iðnaðar ráðherra,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, lofaði
að skoða málið haustið 2015, en
ekkert gerðist. Núverandi ráðherra
umhverfis- og iðnaðarmála
segir að þetta heyri ekki undir
hennar ráðuneyti, en rétt sé þó
að skoða málið. Það eina sem
orkufyrirtækin hafa gert er að
gefa það út að þessi skilgreining á
uppruna orku sem miðast við sölu
á hreinleikavottorðum verði strikuð
út af orkureikningum almennings
á næsta ári. Almenningur mun því
ekki sjá þetta á sínum reikningum,
en sölu á syndaaflausnum fyrir losun
gróðurhúsalofttegunda verður eigi
að síður haldið áfram til erlendra
fyrirtækja.
Íslendingar selja
blekkingarvottorð um uppruna
orku í útlöndum
Það vekur líka athygli að ráðherra
segir nú að sala íslenskra orku-
fyrirtækja á upprunaábyrgðum þýði
ekki að Ísland fái bókfærða losun
frá evrópskum kolaorkuverum.
Þetta regluverk breyti því engu
um skuldbindingar eða áform
stjórnvalda í loftslagsmálum. Þar
með er ekki annað að sjá en að
ráðherra staðfesti að um hreinan
skrípaleik sé að ræða til að gera
erlendum fyrirtækjum kleift að
blekkja sína viðskiptavini um
uppruna og hreinleika á þeirri orku
sem þau nota.
Danmörk hefur oft verið nefnd
sem fyrirmyndarríki um hvernig
skipta eigi úr jarðefnaeldsneyti
yfir í endurnýjanlega orku. þar
hefur orðið gríðarleg uppbygging
í vindrafstöðvum. Var sett met
í þeim efnum 2015, en þá náðu
Danir því að vera með 42% af
sinni raforkuframleiðslu frá
vindrafstöðvum. Stefnt er á að Danir
verði óháðir jarðefnaeldsneyti til
orkuframleiðslu árið 2050 en þar
er samt ekki allt eins og sýnist.
Danir flytja inn um 12% af sinni
raforku um rafstrengi frá öðrum
löndum. Ef um 42% kemur frá
vindorkuverum, þá er mismunurinn,
nærri helmingur raforkuþarfarinnar.
Þá orku framleiða Danir með gasi,
olíu og kolum. Eigi að síður flagga
dönsk fyrirtæki því mjög að vera
með hreina orku. Það þykir styrkja
ímynd fyrirtækjanna í harðri
samkeppni á heimsmarkaði. Það
geta þau gert m.a. með því að
kaupa upprunavottorð um hreina
orku. Fyrirtæki í Þýskalandi,
Bandaríkjunum. Indlandi, Kína
og víðar gera þetta líka í stórum
stíl. Einkum þau sem nota raforku
sem framleidd er ýmist með
jarðefnaeldsneyti eða kjarnorku.
Heilu stofnununum er haldið úti sem
vísa mönnum á hvar þeir geti keypt
slík vottorð. Eru þessi viðskipti
orðin umtalsverð og réttlætt með
því að þau eigi að stuðla að frekari
framleiðslu á hreinni orku. Hengd
eru upp falleg innrömmuð vottorð
sem eiga að sýna að orkan sem
notuð er sé endurnýjanleg. Þetta er
samt ekkert annað en blekking eins
og berlega kemur fram í svörum
ráðherra.
Það hlýtur að vera umhugsunar-
efni hvort réttlætanlegt sé að
Íslendingar taki þátt í slíkum
blekkingarleik – bara af því að fyrir
slíkt fáist peningar. Í þessu ljósi er
kannski ekkert skrítið að virðing
almennings fyrir stjórnmálamönnum
sé eins lítil og raun ber vitni. Ef
stjórnmálamenn telja réttlætanlegt
að ljúga á þeim forsendum einum að
fyrir það fáist peningar, þá er eitthvað
mikið að. Vonandi fellur núverandi
umhverfis- og auðlindaráðherra ekki
í þá gryfju, enda telur ráðherrann
þetta afar skrítið og ankannalegt,
eins og fram kemur í svörunum.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Umhverfis- og auðlindaráðherra deilir undrun manna yfir að íslenskt rafmagn sé framleitt með kolum og kjarnorku:
„Rétt að skoða hvort hægt sé að breyta einhverju
þarna, reglunum eða framkvæmd þeirra“
– Íslensk orkufyrirtæki halda samt áfram að selja erlendum fyrirtækjum vottorð um ósannan uppruna raforku sem þau nota
Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auð-
lindaráðherra.
Danir mæta nú verulegum hluta af sinni raforkuþörf með vindrafstöðvum.
Eigi að síður er nær helmingur raforkunnar framleiddur með gasi, olíu og
kolum. Til að bæta ímyndina kaupa dönsk fyrirtæki hreinleikavottorð.
Bbl_64_bls_10.pdf