Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 38
38
HLUNNINDI&VEIÐI
Undur náttúrunnar:
Kolkrabbar vel gáfum gæddir
Nýjar rannsóknir sýna að
kolkrabbar eru einstaklega vel
gefnar skepnur og hafa sterka
vitund um sjálfa sig og umhverfi
sitt.
Hvort sem fólki finnst kolkrabbar
ógnvekjandi eða heillandi benda
nýjar rannsóknir til að þeir séu
vel gáfum gæddir. Þekkt er að
kolkrabbar í fiskabúrum hafa
skriðið á milli fiskabúra standi þau
hlið við hlið og sótt sér fæðu og að
kolkrabbar í lokuðum krukkum geta
skrúfað lokið af krukkunum innan
frá. Að minnsta kosti er eitt dæmi
um að kolkrabbi hafi skriðið upp úr
fiskabúri á rannsóknarstöð, lyft upp
niðurfalli í gólfinu og látið sig hverfa
niður í það.
Í einni tilraun, þar sem óþægilega
sterku ljósi var beint að kolkrabba,
gerði hann sér lítið fyrir og sprautaði
vatni á peruna þar til að rafmagninu
sló út. Sýnt hefur verið að þetta
átta arma sjávardýr þekkir fólk í
sundur, jafnvel þótt það sé í eins
einkennisbúningum.
Líkjast geimverum
Prófessor nokkur í heimspeki við
háskóla í Sydney og New York segir
að ef einhver lífvera á jörðinni líkist
geimverum þá séu það kolkrabbar.
Hann segir að kolkrabbar séu eins
fjarskyldir mönnum og hugsast
getur og um leið afskaplega þróaðar
lífverur.
Ekki er vitað með vissu hver var
síðasti sameiginlegi forfaðir manna
og kolkrabba en talið er að það
hafi verið frumstæð blóðsuga eða
flatormur með vanþróað taugakerfi.
Þetta þýðir að menn og kolkrabbar
eiga lítið sameiginlegt hvað þróun
varðar.
Þrátt fyrir það hafa báðar
dýrategundir þróað augu, útlimi og
heila eftir ólíkum þróunarbrautum.
Það sem meira, er báðar tegundir
sýna greind, getu til að læra, draga
ályktanir og merki um vitund.
Hvað er vitund?
Heimspekingurinn segir að erfiðast
sé að dæma um hvort kolkrabbar
hafi vitund og reyndar sé það sama
að segja um menn. Ekkert segir
okkur fyrir víst að menn hafi vitund
að undanskilinni sjálfsvitund og að
allir aðrir sýni einungis merki um
vitund án þess að hún sé til til staðar.
Hann segir að kolkrabbar sýni
merki um forvitni og hann telur
lítinn vafa á að þeir séu meðvitaðar
lífverur. Þeir hafa góða sjón, eiga til
að raða grjóti upp á nýtt við holur
sem þeir dvelja í. Þetta bendir til að
vitund lífvera hafi þróast eftir meira
en einni leið á Jörðinni.
Svo má heldur ekki gleyma því
að kolkrabbar í sínu náttúrulega
umhverfi líta út fyrir að vera
afskaplega gáfaðir. /VH
Umhverfismál:
Leifar af kókaíni, þunglyndis-, verkja-
og sýklalyfjum finnast í villtum laxi
Leifar af áttatíu og einni gerð af
lyfjum og snyrtivörum hafa greinst
í villtum laxi sem veiðist við árósa
Puget-svæðis sem er skammt frá
Seattle-borg í Washington-ríki í
Bandaríkjunum. Meðal lyfja eru
kókaín, þunglyndis-, verkja- og
sýklalyf.
Stundum er er því haldið fram að
villtur lax sé einhver hollasti matur
í heimi. Fullur af ómega 3, próteini
og góðum fitusýrum. Rannsóknir
á villtum laxi við árósa Puget-
svæðis skammt frá Seattle-borg í
Washington-ríki í Bandaríkjunum er
einnig stappfullur af leifum af alls
konar lyfjum og snyrtivörum. Meðal
þeirra áttatíu og eins lyfjaleifa sem
fundist hafa í laxi við árósana er
talsvert magn af kókaín, þunglynd-
is-, verkja- og sýklalyfjum.
Áætlað er að um 45 tonn af lyfj-
um og snyrtivörum berist í árósana
á ári.
Lyfjum sturtað niður
Flest bendir til að lyfin hafi borist
í laxinn úr lyfjum sem fólk hefur
skolað niður og hreinsistöðvar hafi
ekki náð að skilja út áður en þau
bárust í ána. Í Seattle Times er haft
eftir fulltrúa bandaríska lyfjaeftirlits-
ins að magn efnanna í laxinum hafi
verið mun meira en búist hafði verið
við og að mismunandi efni hafi fund-
ist í 62% sýna. Auk þess sem leifar
af lyfjum og snyrtivörum fundust
einnig í vatnssýnum sem tekin voru
við árósana.
Veiðieftirlitsmenn í Washington-
ríki segjast hafa miklar áhyggjur
af því hvaða áhrif lyfjakokteillinn
geti haft á dýralíf á Puget-svæðinu
og öðrum svæðum þar sem mikið
magn af lyfjum kann að finnast í
náttúrunni. Mælingar sýna að lax
sem sækir í árósa við Puket deyr
að jafnaði mun yngri en laxar sem
sækja í ár sem ekki eru mengaðar af
lyfjum og snyrtivörum.
Líkt og mengun vegna plasts og
gróðurhúsalofttegunda, sem mikið
er í umræðunni núna, er mengun
vegna lyfja og snyrtivara vaxandi
vandamál sem alfarið er af manna-
völdum. /VH
Mynd / centralcoastbiodiversity.org
Flökkufiskur ættaður úr Kyrrahafi veldur áhyggjum:
Hnúðlax í íslenskum ám
Nokkuð hefur borið á því að hnúð-
lax hafi veiðst í ám hér á landi í
sumar. Sérfræðingar Hafró telja
að hann geti numið land í íslensk-
um ám.
Í lok júlí veiddist hnúðlax í
net í Patreksfirði og snemma í
ágúst veiddust nokkrir hnúðlaxar
í Hafralónsá í Þistilfirði og annar
í Sandá í Þistilfirði. Laxinn sem
veiddist í Patreksfirði var kynþroska
hængur.
Fyrsta dæmið er frá 1960
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hnúð-
laxa verður vart í íslenskum ám.
Fyrsta skráða dæmið er frá því í
ágúst 1960 þegar einn slíkur veiddist
í Hítará á Mýrum. Árið 2015 bárust
fregnir um hnúðlax í ám víðs vegar
um landið, Ytri Rangá, Hamarsá
í Hamarsfirði, Skjálfandafljóti,
Þorskafjarðará og Soginu.
Í Fiskifréttum hefur komið fram að
sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar
hafa varað við að hnúðlax geti numið
land í íslenskum ám.
Upprunninn í Kyrrahafi
Hnúðlax, Oncorhynchus gorbuscha,
kallast einnig bleiklax og á nátt-
úruleg heimkynni í norðanverðu
Kyrrahafi og algeng þar frá
Beringssundi niður með Norður-
Ameríku, Kóreuskaga og Japan.
Hnúðlax er auðþekktur á dökkum
hringlaga blettum á sporðinum og
fíngerðu hreistri. Gerðar voru til-
raunir með að sleppa hnúðlaxaseið-
um í ár við Kólaskaga um 1960.
Talið er að afkomendur þeirra hafi
komið sér fyrir í nokkrum ám í
Noregi og að laxarnir sem fundist
hafa hér séu þaðan komnir.
Fremur smávaxinn lax
Hnúðlax dregur nafn sitt af stórum
hnúð á baki hænganna. Hnúðurinn
myndast við kynþroska auk þess
sem skoltur hængsins stækkar við
kynþroska. Við kynþroska eru
hnúðlaxar 1,75 til 2,5 kíló að þyngd
og 45 til 60 sentímetrar á lengd.
/VH
Alls stunduðu 250 bátar grá-
sleppuveiðar á nýlokinni grá-
sleppuvertíð. Heildaraflinn í ár
var 4.542 tonn sem er 16% minni
afli en á vertíðinni í fyrra.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
sagði í samtali við Bændablaðið að
vertíðin í ár hafi staðið frá 20. mars
til 14. ágúst og að veiðidagar í ár
hafi verið óvenju margir.
„Landinu er skipt í átta
veiðisvæði og hafði hver bátur leyfi
til að stunda veiði í 46 daga samfellt
á sínu svæði en undanfarin ár hafa
þeir verið 32.“
Veiði undir meðallagi
Að sögn Arnar var veiði á vertíðinni
misjöfn eftir svæðum. „Víða var
hún léleg, og þegar á heildina er litið
er veiðin nokkuð undir meðaltali.
Langmestu var landað í
Stykkishólmi, 919 tonnum.
Næstmest var landað á Bakkafirði,
294 tonn, og á Drangsnesi 290 tonn
sem er tæpur helmingur þess sem
var á vertíðinni í fyrra.“
Verð hærra en í fyrra
Örn segir að Landssamband
smábátaeigenda hafi ávallt brýnt
fyrir grásleppukörlum að veiða ekki
umfram það sem þeir hafa markað
fyrir, þannig að komið verði í veg
fyrir offramboð.
„Á síðasta ári var veiði
undir eftirspurn og skilaði það
verðhækkun. Sú verðhækkun hefur
gengið eftir á helstu mörkuðum
fyrir grásleppukavíar. Grásleppan
er ein fárra fisktegunda sem skilar
hærra verði til sjómanna í ár en í
fyrra.“ /VH
Grásleppuvertíðinni lokið:
16% minni afli en á síðasta
ári en verð hærra