Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Íslenskt sárasprey fyrir
öll dýr, stór og smá
Fæst hjá dýralæknum, hesta- og búvöruverslunum
og í völdum apótekum um allt land
Umboðsaðili Icepharma
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Sími 540 8000
icepharma.is
www.primex.is
Mjög græðandi og bakteríudrepandi
Virkar vel á brunasár, bráða- og krónísk sár
Hefur reynst vel við hnjóskum á hrossum
Dregur úr blæðingu
Íslenskt
hugvit, hráefni
& framleiðsla
Tumi frá Borgarhóli sættu sig við
þriðja sætið.
Heimsmeistaratitill í 100
metra skeiði fór til Bretlands
þegar Charlotte Cook og Sæla frá
Þóreyjarnúpi spændu brautina á
7,43 sekúndum. Þetta mun vera
í fyrsta sinn sem Bretar eignast
heimsmeistara í íslenskum
hestaíþróttum. Charlotte og
Sæla bættu svo bronsi við í
250 metra skeiði. Svavar Örn
Hreiðarsson á Heklu frá Akureyri
hlaut brons en þátttaka hans á
heimsmeistaramótinu vakti athygli
eftir að þau Hekla féllu harkalega
á skeiðspretti í júní. Svavar, sem er
með MS sjúkdóminn, lét þó hvorki
byltuna, né sjúkdóminn stöðva
sig og tók þátt í öllum þremur
skeiðgreinum mótsins. Annar í 100
metra skeiði varð Markus Schoch
frá Sviss á Kóngi frá Lækjamóti en
þeir sigruðu svo 250 metra skeið á
tímanum 21,46 sekúndur. Þorvaldur
Árnason, sem keppir fyrir Svíþjóð,
hlaut silfur á Thyrnir från Knubbo.
Þrenna hjá Konráði
Það voru ekki síst ungu knapar
íslenska landsliðsins sem slógu í
gegn á mótinu. Fyrsti heimsmeist-
aratitill mótsins fór til Konráðs Vals
Sveinssonar á Sleipni frá Skör sem
fékk hæstu einkunn ungmenna í
gæðingaskeiði, 7,50. Það var jafn-
framt fimmta hæsta einkunn móts-
ins. Þetta er annar heimsmeistaratit-
ill hins unga knapa, en hann sigraði
250 metra skeið árið 2013.
Konráð bætti svo bæði silfri og
bronsi við verðlaunasafnið. Hann
varð annar í 250 metra skeiði á
tímanum 22,23 sekúndur en hin
norska Lona Sneve á Stóra-Dímon
frá Hauksbæ sigraði á tímanum 21,60
sekúndur. Konráð og Sleipnir þutu
100 metrana svo á 7,68 sekúndum
sem tryggði þeim þriðja sæti á eftir
Lonu og Stóra-Dímon sem sigraði á
7,57 og Elise Harryson og Lilju frá
Hrosshaga frá Svíþjóð sem var önnur
á 7,62 sekúndum.
Framhald á næstu síðu >
Íslenska landsliðið í hestaíþróttum var kampakátt í mótslok enda var það valið besta lið mótsins. Ísland hlaut
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heiðraði hátíð-
ina en hér er hann ásamt Gunnari Sturlusyni, forseta
alþjóðasamtaka hestamannafélaga, FEIF.
Konráð Valur Sveinsson sigraði gæðingaskeið ungmenna á Sleipni frá Skör.
Þeir Sleipnir hlutu einnig silfur og brons í öðrum skeiðgreinum mótsins.
Frauke Schenzel og Gustur vom Kronshof fagna sigri í