Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Kynbótahross á heimsmeistaramóti íslenska hestsins:
Athyglisverður árangur Noregs
HROSS&HESTAMENNSKA
Þótt fulltrúar Íslands hafi ekki
staðið efstir í öllum flokkum á
kynbótasýningu heimsmeistara-
mótsins bar niðurstaða dóma kyn-
bótastarfi á Íslandi gott vitni, því
að baki efstu hrossa liggja oftar
en ekki foreldrar sem fæddir eru
á Íslandi.
Góður rómur var gerður að kyn-
bótasýningu heimsmeistaramóts
íslenska hestsins í Hollandi enda
umgjörðin glæsileg. Fyrsti dagur
mótsins var helgaður byggingardóm-
um kynbótahrossa en þeim var stillt
upp á sviði fyrir framan allt að 300
gesti sem fylgdust með dómurum
meta og kveða upp dóm á þeim.
Hrossin voru svo sýnd í reið næstu
daga, fyrst í fordómi og síðar á yfir-
liti, sem skar úr um lokaniðurstöðu
kynbótadómsins. Kynbótahrossin
komu frá tíu löndum og endurspegl-
uðu þau stöðu kynbótastarfs í hverju
landi fyrir sig.
Kleifakynið skrefmikla
Það er eftirtektarvert að fulltrúar
Noregs eiga hæst dæmdu hross í
tveimur flokkum. Ræktunarstarfið
í Noregi er lítið, þar hafa fæðst á
bilinu 200–500 folöld á ári síðustu
7 ár. Til samanburðar telur árgang-
ur 2015 í Noregi 231 hross, 733 í
Svíþjóð, 1.275 í Danmörku og 2.263
í Þýskalandi. Á meðan fæddust tæp
6.000 hross á Íslandi árið 2015.
Hæst dæmda kynbótahross móts-
ins var stóðhesturinn Bjartmar fra
Nedre Sveen en hann hlaut 8,72 í
aðaleinkunn, 8,29 fyrir sköpulag
og 9,00 fyrir kosti. Mun þetta vera
hæst dæmda kynbótahross Noregs
frá upphafi. Bjartmar hlaut meðal
annars 9,5 fyrir skeið, og vilja og
geðslag, 9 fyrir tölt og merka 10
fyrir fet.
Báðir foreldrar Bjarts eru fædd-
ir á Íslandi. Móðir hans er Löpp
frá Akurgerði undan Brenni frá
Kirkjubæ og Láru frá Ási 1. Faðir
hans er Bjartur frá Leirulæk, undan
Kletti frá Hvammi og Birtingu frá
Stangarholti og tengist Bjartur því
inn í Kleifakyn, en það kemur víða
inn bak við góða gæðinga. Má þar
helst nefna Álfadís frá Selfossi og
hennar afkomendur. Eitt af einkenn-
um þessara hrossa er mikið skref og
frábært fet.
Þá hlaut hin norskfædda Terna
frá Kleiva hæstu einkunn 5 vetra
hryssna, 8,44. Hún fékk 8,57 fyrir
sköpulag og 8,35 fyrir kosti. Terna
er efnilegur töltari, hlaut einkunnina
9 fyrir tölt, hægt tölt og fegurð í reið,
og á því eflaust eftir að taka sig vel
út á keppnisbrautinni líkt og faðir
hennar, Tígull frá Kleiva.
Tveir íslenskir sigrar
Fulltrúar Íslands hlutu flest lægri
einkunn en á vorsýningum. Þrátt
fyrir það urðu tvö þeirra efst í sínum
flokki. Grani frá Torfunesi sigraði
flokk 5 vetra stóðhesta með 8,36 í
aðaleinkunn.
Hann hélt sinni 9,5 fyrir öruggt
og skrefmikið skeið og hlaut 9
fyrir vilja og geðslag og fet. Grani
er undan heiðursverðlaunahryss-
unni Röst frá Torfunesi og Korgi
frá Ingólfshvoli, sem var einmitt
meðal keppenda á mótinu með
góðum árangri.
Þá varð Hervör frá Hamarsey
efst 6 vetra hryssa með 8,50 í
aðaleinkunn. Hún hækkaði fyrir
byggingu og hlaut m.a. einkunnina
10 fyrir bak og lend sem er
sjaldséður dómur. Hervör er undan
Héðni frá Feti og Keilisdóttur,
Hrund frá Árbæ.
Gæðingafaðirinn Depill
Hæst dæmda hryssa sýningarinn-
ar, og sigurvegari í elsta flokki,
var Glódís vom Kronshof frá
Þýskalandi. Hún hlaut 8,60 í aðal-
einkunn, 8,61 fyrir byggingu og
8,59 fyrir kosti.
Hún er afar jafnvíg á öllum
gangtegundum og hefur verið að
slá í gegn í keppni undir stjórn
ræktanda síns, Frauke Schenzel.
Móðir Glódísar er hestagullið
Næpa vom Kronshof sem er ein
aðalræktunarhryssa Þýskalands
um þessar mundir. Hún átti annað
afkvæmi á kynbótasýningunni,
Jódísi vom Kronshof, sem varð í
2. sæti í 5 vetra flokki.
Faðir Glódísar er Baldurs-
sonurinn Depill frá Votmúla 1 sem
hefur reynst mikill gæðingafaðir.
Hann hefur nú skilað 41 fyrstu
verðlauna afkvæmum og fjöldanum
öllum af keppnishrossum, þá sér í
lagi góðum fimmgangshrossum. Er
þar nærtækast að nefna sigurvegara
fimmgangs á mótinu, Gust vom
Kronshof. Depill fór ungur til
Þýskalands og á hann því enga
afkomendur á Íslandi.
Mjölnir vom Lipperthof frá
Þýskalandi hlaut hæstu einkunn
6 vetra stóðhesta með 8,51 í aðal-
einkunn.
Foreldrar hans eru báðir íslensk-
ir, Randver frá Nýjabæ og Ísól frá
Efri-Rauðalæk, hryssa sem hlaut
10 fyrir skeið á sínum tíma.
Hæst dæmda hross mótsins, Bjartmar fra Nedre Sveen er undan tveimur
hrossum fæddum á Íslandi. Knapi er Agnar Snorri Stefánsson.
Myndir/ Marius MacKenzie
Guðrún Hulda Pálsdóttir
ghp@bondi.is