Bændablaðið - 24.08.2017, Page 18

Bændablaðið - 24.08.2017, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Kynbótahross á heimsmeistaramóti íslenska hestsins: Athyglisverður árangur Noregs HROSS&HESTAMENNSKA Þótt fulltrúar Íslands hafi ekki staðið efstir í öllum flokkum á kynbótasýningu heimsmeistara- mótsins bar niðurstaða dóma kyn- bótastarfi á Íslandi gott vitni, því að baki efstu hrossa liggja oftar en ekki foreldrar sem fæddir eru á Íslandi. Góður rómur var gerður að kyn- bótasýningu heimsmeistaramóts íslenska hestsins í Hollandi enda umgjörðin glæsileg. Fyrsti dagur mótsins var helgaður byggingardóm- um kynbótahrossa en þeim var stillt upp á sviði fyrir framan allt að 300 gesti sem fylgdust með dómurum meta og kveða upp dóm á þeim. Hrossin voru svo sýnd í reið næstu daga, fyrst í fordómi og síðar á yfir- liti, sem skar úr um lokaniðurstöðu kynbótadómsins. Kynbótahrossin komu frá tíu löndum og endurspegl- uðu þau stöðu kynbótastarfs í hverju landi fyrir sig. Kleifakynið skrefmikla Það er eftirtektarvert að fulltrúar Noregs eiga hæst dæmdu hross í tveimur flokkum. Ræktunarstarfið í Noregi er lítið, þar hafa fæðst á bilinu 200–500 folöld á ári síðustu 7 ár. Til samanburðar telur árgang- ur 2015 í Noregi 231 hross, 733 í Svíþjóð, 1.275 í Danmörku og 2.263 í Þýskalandi. Á meðan fæddust tæp 6.000 hross á Íslandi árið 2015. Hæst dæmda kynbótahross móts- ins var stóðhesturinn Bjartmar fra Nedre Sveen en hann hlaut 8,72 í aðaleinkunn, 8,29 fyrir sköpulag og 9,00 fyrir kosti. Mun þetta vera hæst dæmda kynbótahross Noregs frá upphafi. Bjartmar hlaut meðal annars 9,5 fyrir skeið, og vilja og geðslag, 9 fyrir tölt og merka 10 fyrir fet. Báðir foreldrar Bjarts eru fædd- ir á Íslandi. Móðir hans er Löpp frá Akurgerði undan Brenni frá Kirkjubæ og Láru frá Ási 1. Faðir hans er Bjartur frá Leirulæk, undan Kletti frá Hvammi og Birtingu frá Stangarholti og tengist Bjartur því inn í Kleifakyn, en það kemur víða inn bak við góða gæðinga. Má þar helst nefna Álfadís frá Selfossi og hennar afkomendur. Eitt af einkenn- um þessara hrossa er mikið skref og frábært fet. Þá hlaut hin norskfædda Terna frá Kleiva hæstu einkunn 5 vetra hryssna, 8,44. Hún fékk 8,57 fyrir sköpulag og 8,35 fyrir kosti. Terna er efnilegur töltari, hlaut einkunnina 9 fyrir tölt, hægt tölt og fegurð í reið, og á því eflaust eftir að taka sig vel út á keppnisbrautinni líkt og faðir hennar, Tígull frá Kleiva. Tveir íslenskir sigrar Fulltrúar Íslands hlutu flest lægri einkunn en á vorsýningum. Þrátt fyrir það urðu tvö þeirra efst í sínum flokki. Grani frá Torfunesi sigraði flokk 5 vetra stóðhesta með 8,36 í aðaleinkunn. Hann hélt sinni 9,5 fyrir öruggt og skrefmikið skeið og hlaut 9 fyrir vilja og geðslag og fet. Grani er undan heiðursverðlaunahryss- unni Röst frá Torfunesi og Korgi frá Ingólfshvoli, sem var einmitt meðal keppenda á mótinu með góðum árangri. Þá varð Hervör frá Hamarsey efst 6 vetra hryssa með 8,50 í aðaleinkunn. Hún hækkaði fyrir byggingu og hlaut m.a. einkunnina 10 fyrir bak og lend sem er sjaldséður dómur. Hervör er undan Héðni frá Feti og Keilisdóttur, Hrund frá Árbæ. Gæðingafaðirinn Depill Hæst dæmda hryssa sýningarinn- ar, og sigurvegari í elsta flokki, var Glódís vom Kronshof frá Þýskalandi. Hún hlaut 8,60 í aðal- einkunn, 8,61 fyrir byggingu og 8,59 fyrir kosti. Hún er afar jafnvíg á öllum gangtegundum og hefur verið að slá í gegn í keppni undir stjórn ræktanda síns, Frauke Schenzel. Móðir Glódísar er hestagullið Næpa vom Kronshof sem er ein aðalræktunarhryssa Þýskalands um þessar mundir. Hún átti annað afkvæmi á kynbótasýningunni, Jódísi vom Kronshof, sem varð í 2. sæti í 5 vetra flokki. Faðir Glódísar er Baldurs- sonurinn Depill frá Votmúla 1 sem hefur reynst mikill gæðingafaðir. Hann hefur nú skilað 41 fyrstu verðlauna afkvæmum og fjöldanum öllum af keppnishrossum, þá sér í lagi góðum fimmgangshrossum. Er þar nærtækast að nefna sigurvegara fimmgangs á mótinu, Gust vom Kronshof. Depill fór ungur til Þýskalands og á hann því enga afkomendur á Íslandi. Mjölnir vom Lipperthof frá Þýskalandi hlaut hæstu einkunn 6 vetra stóðhesta með 8,51 í aðal- einkunn. Foreldrar hans eru báðir íslensk- ir, Randver frá Nýjabæ og Ísól frá Efri-Rauðalæk, hryssa sem hlaut 10 fyrir skeið á sínum tíma. Hæst dæmda hross mótsins, Bjartmar fra Nedre Sveen er undan tveimur hrossum fæddum á Íslandi. Knapi er Agnar Snorri Stefánsson. Myndir/ Marius MacKenzie Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.