Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Sími: 527 2600
VélavitS: 5272600 - www.velavit.isVarahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Við sérhæfum okkur í JCB, Hydrema, ,
, og nú:
KH Vinnuföt Nethyl 2a
110 Reykjavík Sími: 577 1000
info@khvinnufot.is
www.khvinnufot.is
Öryggisvesti með riflás.
Uppfyllir sýnileikastaðalinn EN20471 Klassa 2.
Stærðir: S-4XL. Efni: 100% pólýester
Litir: Gulur, orange.
Sýnileikavesti fyrir
smalamennskuna
Tilboðsverð
með vsk og flutningskostnaði
89
0
kr
Maður vanur vinnuvélum óskast
Verktakafyrirtæki á Suðurlandi óskar eftir reyndum vinnuvélastjóra
Æskilegt er að viðkomandi hafi
- unnið á dráttarvélum með tækjabúnaði
- unnið á beltagröfum
- sé fær um að sinna daglegu viðhaldi og eftirliti með slíkum vélum
- hafi vinnuvélaréttindi og bílpróf
- reynsla af garðyrkjustörfum er kostur og að viðkomandi sé
reyklaus. Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar í síma 894 0444 eða garparehf@gmail.com.
Fyrir sláturtíðina
Hakkavél 72.000,-
Hamborgarapressa 35.000,-
Áleggshnífur 72.000,-
Bjúgna/pylsugerðarvél 55.000,-
Kjötsög 155.000,-
Ath. Öll verð eru án vsk
Samleið ehf
Kaupi gamlar vínylplötur, kassettur
og aðra tónlist, plötuspilara, gamlar
græjur og segulbönd. Staðgreiði stór
plötusöfn. S. 822-3710, olisigur@
gmail.com.
Óska eftir vel með farinni einnar
stjörnu múgavél í góðu lagi. Uppl. í
síma 893-2659.
FJÁRKARFA. Óska eftir fjárkörfu á
vörubíl. Uppl. í síma 892-6675.
Kawasaki fjórhjól. Ef einhver lumar á
gömlu Kawasaki Bayou fjórhjóli, þá
er ég að leita að einu slíku. Ástand
skiptir ekki öllu máli. Uppl. í síma
897-4422.
Atvinna
Langar að komast í sveit í vetur. Er
vön. Er heiðarleg, reyki hvorki né
drekk. Fædd 1958. Geng ekki í þyngri
verk. Sími 861-8494.
35 ára karlmaður frá Þýskalandi
óskar eftir vinnu á bóndabýli eða
við fiskvinnslu. Hann er við störf
núna í Þýskalandi en getur verið
laus eftir 3 mánuði. Nánari uppl.:
wintersebastian@gmx.net
Húsnæði
Ferðu í skóla í Reykjavík í vetur?
Vantar þig húsnæði? Er með 60
fm íbúð til leigu. Hafðu samband:
steinunn654@simnet.is.
Jarðir
Viljum taka á leigu sauðfjárbú. Þeir
sem hefðu áhuga á að leigja, leggi
inn upplýsingar til Bændablaðsins,
Hagatorgi 1, 107 Rvík, merkt „G-300“.
Haustbeit. Friðað afgirt beitiland,
ca 60 ha., með góðu aðgengi og
tökuaðstöðu til leigu frá 1. sept.
Staðsetning Suðurland, við þjóðveg
30, skammt frá Skeiðavegamótum.
Uppl. í síma 770-6268 og mail:
nuukehf@gmail.com
Óska eftir
Óska eftir palli fyrir krókheysi, 5-6
metra langt og 60-80 cm borðum.
Uppl. í síma 893-4172.
Kaupi gamlar vínylplötur, kassettur
og aðra tónlist, plötuspilara, gamlar
græjur og segulbönd. Staðgreiði stór
plötusöfn. S. 822-3710, olisigur@
gmail.com.
Óska eftir vel með farinni einnar
stjörnu múgavél í góðu lagi. Uppl. í
síma 893-2659.
FJÁRKARFA. Óska eftir fjárkörfu á
vörubíl. Uppl. í síma 892-6675.
Kawasaki fjórhjól. Ef einhver lumar á
gömlu Kawasaki Bayou fjórhjóli, þá
er ég að leita að einu slíku. Ástand
skiptir ekki öllu máli. Uppl. í síma
897-4422.
Sumarhús
Rotþrær og heitir pottar. Rotþrær-
heildarlausnir með leiðbeiningum
um frágang. Ódýrir heitir pottar-
leiðbeiningar um frágang fylgja.
Borgarplast.is, sími 561-2211,
Mosfellsbæ.
Veiði
Er gæsin að eyðileggja túnin hjá þér
eða að éta kornið? Ekki örvænta því
lausnin er skammt undan. Við erum
nokkrir ungir fjölskyldufeður sem
óskum eftir að komast í gæsaveiði á
Suðurlandi eða Vesturlandi. Endilega
verið í sambandi í síma 612-2990.
Feðgar óska eftir kornakri ellegar
nýræktum til gæsaveiði. Skoðum
flesta staði en æskilegast ef fjarlægð
frá Reykjavík væri ekki meiri en
sem nemur 2-3 tíma akstri. Staðgr.
í boði. Uppl. í síma 857-5000 eða
hjarnland@gmail.com
Þjónusta
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálfskiptinga. Hafið
samband í síma 663-9589 til að fá
uppl. og tilboð. HP transmission
Akureyri, email einar.g9@gmail.com,
Einar G.
RG Bókhald. Bókhaldsþjónusta,
launaútreikningar og uppgjör,
ársreikningar, vsk skýrslur,
skattaframtöl. rgbokhald@gmail.com
sími 696-3003.
Tampa Bay Beaches Vacation
Rentals í Florida í Bandaríkjunum
býður Íslendingum upp á 400
gististaði. Beint flug frá Íslandi til
Tampa hefst í september. Sjáið úrval
gististaða á www.trsinc.com eða
hringið til að bóka í síma +001 (727)
393-2534. Netfang: trs.guests@
gmail.com, TRS-Travel Resort
Services, Madeira Beach, Florida.
Við höfum boðið upp á þjónustu
okkar í yfir 30 ár á Tampa Bay.
Þróaði hrápylsur úr ærkjöti
– Hugsað fyrir litlar kjötvinnslur heima á bæjum
Rúnar Tryggvason hefur starfað
við matreiðslu í tæp sjö ár og
lauk B.S.-námi í matvælafræði
nú í vor. Einn liðurinn í því námi
var sérverkefni sem fólst í þróun
hrápylsu úr ærkjöti.
„Ég er ekki menntaður
matreiðslumaður en hef unnið við
matreiðslu í fullu starfi og samhliða
námi síðan ég var 16 ára gamall –
eða í tæp 7 ár – og hef því talsverða
reynslu á því sviði. Ég hef nýlokið
B.S.-námi í matvælafræði og er í
dag í meistaranámi í matvælafræði
sem ég áætla að ljúka í lok árs 2018.
Eftir það vonast ég til að starfa innan
greinarinnar, eða hugsanlega tengja
saman matreiðslu og matvælafræði
á einhvern hátt,“ segir Rúnar.
Skyldfólk í bændastétt
Að sögn Rúnars er skyldfólk hans í
bændastétt – til að mynda bróðir hans
– og því hafi honum þótt skemmtilegt
að tengja námið sitt viðfangsefni sem
tengdist því beint.
„Áhugi hefur verið hjá bændum
að auka heimavinnslu kjötafurða – þá
sérstaklega úr verðminni kjötstykkjum
– til að reyna að auka verðmæti afurða
sinna. Þess vegna er mikilvægt að
tryggja að öll matvælaframleiðsla,
sérstaklega framleiðsla beint af býli,
skili af sér heilnæmum og öruggum
vörum. Markmið verkefnisins var
að þróa og framleiða hrápylsur úr
ærkjöti, miðað við framleiðslu beint af
býli. Hægt er að lýsa verkefninu sem
vöruþróun ásamt gæðaeftirliti. Þróuð
var uppskrift að hrápylsum úr ærkjöti
og fylgst með ýmsum gæðaþáttum í
gegnum framleiðsluferlið.
Niðurstöður sýndu að framleiðsla
á öruggum hrápylsum úr ærkjöti
er vel möguleg ef fylgt er góðum
framleiðsluháttum,“ segir Rúnar.
Skýrir verkferlar
fyrir einfaldar kjötvinnslur
Verkefnið vann Rúnar í samstarfi
við Óla Þór Hilmarsson og Guðjón
Þorkelsson hjá Matís. „Þetta var
mjög skemmtilegt verkefni þar
sem gerðar voru hrápylsur, það er
spægipylsur og ölpylsa, eingöngu úr
ærkjöti. Það eru fleiri að gera slíka
hluti og mest eru það afurðastöðvar
og kjötvinnslufyrirtæki, en þessi
vöruþróun gekk út á að gera það við
einfaldar aðstæður. Tilgangurinn var
að gera skýran verkferil fyrir svona
vörur sem einfaldar kjötvinnslur
gætu nýtt sér. Nú er að fara í gang
framleiðsla á ölpylsu í kjötvinnslunni
á sauðfjárbýlinu Borgarfelli í
Skaftártungu, þar sem ábúendur þar
ætla að nýta sér upplýsingarnar úr
verkefninu og stefna að framleiðslu,
úr sínu hráefni við þær aðstæður
sem þar er að finna,“ segir Óli Þór.
Ýmsar pylsutegundir prófaðar
Rúnar segir að það hafi verið
skemmtileg vinna að fylgja
framleiðslunni eftir frá upphafi
til enda. „Það voru prófaðar ýmsar
uppskriftir að hrápylsum, til dæmis
í tyrkneskum stíl (sucuk) sem og
hefðbundin salami. Einnig var mjög
áhugavert að glíma við raunverulegt
vandamál; uppsöfnun ærkjöts og
lágt afurðaverð – sem hefur mikið
verið í fjölmiðlum undanfarið. Við
framleiðsluna voru notuð hefðbundin
pylsugerðarefni og var markmið
verkefnisins að öll framleiðslan færi
fram við mjög einfaldar aðstæður en
ekki eins og um háþróaða kjötvinnslu
væri að ræða. Eini tæknibúnaðurinn
sem þurfti var góður kælir, rakamælir
og reykofn.
Verkefnið snerist um að þróa
ákveðna grunnuppskrift að gerjuðum
hrápylsum úr ærkjöti og kanna öryggi,
gæði og geymsluþol. Út frá því var svo
hægt að útbúa skýran verkferil sem
tryggir örugga og heilnæma matvöru
svo smáframleiðendur kjötvara – til
dæmis bændur – gætu nýtt sér og
notað til að þróa sínar eigin vörur.“
/smh
Rúnar Tryggvason hefur þróað
pylsur úr ærkjöti og útbúið
verkferil fyrir slíka pylsugerð, sem
smáframleiðendur ættu að geta nýtt
sér til að þróa eigin vörur.
Hrápylsur úr ærkjöti úr smiðju Rúnars Tryggvasonar. Mynd / Rúnar Tryggvason