Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Fyrir réttum tveimur árum
(fimmtudaginn 13. ágúst 2015)
prófaði ég og skrifaði um Renault
Captur dísil með 90 hestafla dísil-
vél. Þá var mér tjáð af sölumanni
BL að væntanlegur væri Captur
með bensínvél sem ætti að vera
töluvert kraftmeiri. Nú er bíllinn
kominn og ég prófaði hann fyrir
skömmu og varð ekki fyrir von-
brigðum með útlitsbreytingar og
kraft.
Fyrri bíllinn fannst mér vera
eins og ég orðaði það; „hár að
aftan, niðurlútur að framan og
númeraplatan eins og ýtutönn
sem væri næstum niðri á
snjómoksturstæki.“
Útlitsbreytingar taka sig vel út á
nýja bílnum
Í nýja bílnum er búið að færa
númerafestinguna ofar sem gefur
framendanum upplyftingu. Einnig
eru dagljósin að framan orðin
skærari, lýsa betur og það besta
er að nú er bíllinn með kveikt á
ökuljósunum að framan. Ég hef
aldrei skilið af hverju bílar sem
eru bara með dagljós að framan
eru einfaldlega leyfðir í umferð þar
sem lög kveða á um að ljósaskylda
sé allan hringinn. Ég efa að kvörtun
mín á varadekksleysi fyrri bílsins
hafi orðið til þess að nú er komið
varadekk í Captur, enda býður
íslenskt vegakerfi ekki upp á að
aka um án varadekks.
Stórlækkað verð
Fyrir tveim árum kostaði ódýrasti
Capturinn 3.490.000 og sá dýr-
asti 3.790.000, en nú er ódýrasti
dísilbíllinn á 2.890.000 og dýrasti
dísilbíllinn á 3.190.000, en bens-
ínbíllinn sem prófaður var kostar
3.390.000.
Að flestu leyti eru bílarnir eins,
en að keyra bílana er mikill munur
á krafti og snerpu. Svona lítill og
léttur bíll með 120 hestafla vél
hreinlega stekkur af stað þegar
botnað er úr kyrrstöðu. Þó finnst
mér heldur minna pláss til að skipta
um perur og annað í nýja bílnum
þó að útlitið ofan í vélarsalinn sé
nánast það sama. Sennilega eru
bara mínar hendur orðnar gamlar
og bólgnar.
Uppgefin eyðsla 5,5 lítrar
Uppgefin eyðsla af bensíni í
blönduðum akstri er 5,5 lítrar á
hundraðið, en ég náði bílnum ekki
neðar en í 7,8 lítra á hundraðið á
þessum tæpu 90 kílómetrum sem
ég ók í blönduðum akstri. Annars
var ég ánægður með bílinn, allar
breytingar sem ég fann á milli bíla
voru til hins betra og pláss fyrir
farþega gott, sæti þægileg, en far-
angursrýmið er enn í minna lagi.
Litaval á Captur er mikið og telst
mér til að hægt sé að fá bílinn í 14
mismunandi litum. Eins og í mörg-
um bílum sem ég hef prófað þá er ég
ekki hrifinn af stórum felgum með
dekk sem hafa lágan prófíl. Ef ég
sé möguleika á að minnka felgur þá
mæli ég hiklaust með því þar sem
belgmeiri dekk eru bæði ódýrari og
gefa mun betri fjöðrun á veturna og
malarvegum.
Eftir að hafa skoðað pláss á
þessum bíl tel ég líklegt að hægt sé
að minnka felgurnar niður í 15" úr
17", en allavega komast 16" felgur
auðveldlega undir bílinn.
Lokaorð mín eru: Fínn bíll á
góðu verði, en nánar er hægt að
fræðast um bílinn á vefsíðu Bl á
slóðinni www.bl.is .
Renault Captur með 1200 rúmsentimetra bensínvél. Myndir / HLJ
Gamla og nýja hönnunin mætast, og öllu háreistari sá nýi.
Mun reisulegri með númeraplötuna svona hærra uppi. Stór framför að nú kveikir dagljósabúnaðurinn allan hringinn.
Hæð 1.566 mm
Breidd 1.778 mm
Lengd 4.122 mm
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Ný, skær og falleg dagljós komin á bílinn.
Ánægður með að það sé komið
varadekk í Captur.
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook