Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 54

Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Fyrir réttum tveimur árum (fimmtudaginn 13. ágúst 2015) prófaði ég og skrifaði um Renault Captur dísil með 90 hestafla dísil- vél. Þá var mér tjáð af sölumanni BL að væntanlegur væri Captur með bensínvél sem ætti að vera töluvert kraftmeiri. Nú er bíllinn kominn og ég prófaði hann fyrir skömmu og varð ekki fyrir von- brigðum með útlitsbreytingar og kraft. Fyrri bíllinn fannst mér vera eins og ég orðaði það; „hár að aftan, niðurlútur að framan og númeraplatan eins og ýtutönn sem væri næstum niðri á snjómoksturstæki.“ Útlitsbreytingar taka sig vel út á nýja bílnum Í nýja bílnum er búið að færa númerafestinguna ofar sem gefur framendanum upplyftingu. Einnig eru dagljósin að framan orðin skærari, lýsa betur og það besta er að nú er bíllinn með kveikt á ökuljósunum að framan. Ég hef aldrei skilið af hverju bílar sem eru bara með dagljós að framan eru einfaldlega leyfðir í umferð þar sem lög kveða á um að ljósaskylda sé allan hringinn. Ég efa að kvörtun mín á varadekksleysi fyrri bílsins hafi orðið til þess að nú er komið varadekk í Captur, enda býður íslenskt vegakerfi ekki upp á að aka um án varadekks. Stórlækkað verð Fyrir tveim árum kostaði ódýrasti Capturinn 3.490.000 og sá dýr- asti 3.790.000, en nú er ódýrasti dísilbíllinn á 2.890.000 og dýrasti dísilbíllinn á 3.190.000, en bens- ínbíllinn sem prófaður var kostar 3.390.000. Að flestu leyti eru bílarnir eins, en að keyra bílana er mikill munur á krafti og snerpu. Svona lítill og léttur bíll með 120 hestafla vél hreinlega stekkur af stað þegar botnað er úr kyrrstöðu. Þó finnst mér heldur minna pláss til að skipta um perur og annað í nýja bílnum þó að útlitið ofan í vélarsalinn sé nánast það sama. Sennilega eru bara mínar hendur orðnar gamlar og bólgnar. Uppgefin eyðsla 5,5 lítrar Uppgefin eyðsla af bensíni í blönduðum akstri er 5,5 lítrar á hundraðið, en ég náði bílnum ekki neðar en í 7,8 lítra á hundraðið á þessum tæpu 90 kílómetrum sem ég ók í blönduðum akstri. Annars var ég ánægður með bílinn, allar breytingar sem ég fann á milli bíla voru til hins betra og pláss fyrir farþega gott, sæti þægileg, en far- angursrýmið er enn í minna lagi. Litaval á Captur er mikið og telst mér til að hægt sé að fá bílinn í 14 mismunandi litum. Eins og í mörg- um bílum sem ég hef prófað þá er ég ekki hrifinn af stórum felgum með dekk sem hafa lágan prófíl. Ef ég sé möguleika á að minnka felgur þá mæli ég hiklaust með því þar sem belgmeiri dekk eru bæði ódýrari og gefa mun betri fjöðrun á veturna og malarvegum. Eftir að hafa skoðað pláss á þessum bíl tel ég líklegt að hægt sé að minnka felgurnar niður í 15" úr 17", en allavega komast 16" felgur auðveldlega undir bílinn. Lokaorð mín eru: Fínn bíll á góðu verði, en nánar er hægt að fræðast um bílinn á vefsíðu Bl á slóðinni www.bl.is . Renault Captur með 1200 rúmsentimetra bensínvél. Myndir / HLJ Gamla og nýja hönnunin mætast, og öllu háreistari sá nýi. Mun reisulegri með númeraplötuna svona hærra uppi. Stór framför að nú kveikir dagljósabúnaðurinn allan hringinn. Hæð 1.566 mm Breidd 1.778 mm Lengd 4.122 mm Helstu mál og upplýsingar É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Ný, skær og falleg dagljós komin á bílinn. Ánægður með að það sé komið varadekk í Captur. Bændablaðið á bbl.is og líka á Facebook

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.