Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Í síðustu viku ók ég Sprengi-
sandsleið og tók samlokustopp í
Nýjadal og sá þá að snjóað hafði í
hæstu fjöll í nágrenninu. Þessi sýn
minnti mig á að það er að koma
haust með tilfallandi haustverk-
um.
Síðustu tvö ár hefur megnið
af eftirfarandi texta komið hér í
þessum pistli þar sem sérstaklega
er verið að benda væntanlegum
smölum á að klæða sig rétt við
leitir. Svo vitnað sé til orðalags í
bókina Ferðamennska og rötun sem
gefin var út af Slysavarnafélaginu
Landsbjörg þar sem farið var yfir
hentug föt til útivistar, segir þar
nokkurn veginn orðrétt:
„Engin bómull ætti að fara með
til fjalla, gallabuxur, bolir, nærföt
og sokkar úr bómullarefni eiga ekk-
ert erindi á fjöll, bómullarföt halda
verst hita ef þau blotna, bómull
dregur í sig raka og einangrar þá
ekkert.“
Til er mikið af góðum fatnaði og
sokkum sem einangra vel, jafnvel
þó blaut séu.
Íslensku ullarfötin standa alltaf
fyrir sínu
Góð ullarnærföt standa alltaf
fyrir sínu og ekki er mikil svitalykt
af ullarfötum. Regnfötin eru ómiss-
andi, en endilega notið sem mest
áberandi regnföt því þegar regnfata
er þörf er almennt ekki gott skyggni
og betra að vera í appelsínugulu
regnfötunum frá 66°N sem sjást
svo vel. Sokkar og skófatnaður er
jafn breytilegur og úrvalið mikið.
Þegar maður er blautur og kald-
ur á fótunum er manni alls staðar
kalt og því mikil nauðsyn að vera
vel útbúinn til fóta. Flóran í góðum
sokkum er mikil, en mér hefur
reynst vel sokkar úr efni sem heitir
neopren, sama efni og er í blautbún-
ingum kafara. Ókosturinn við þessa
sokka er að eftir nokkra daga notkun
í röð er lyktin af þeim frekar mikið
vond, svo vond í mínum sokkum
að lykt af skötu og hákarli bliknar
við sokkalyktina á degi 4–5 í blautri
mótorhjólaferð.
Þótt maður blotni í neopren
sokkum verður manni ekki kalt, en
svona sokkar fást m.a. í veiðibúð-
um. Ullarsokkar úr hreinni íslenskri
ull eru alltaf gulls ígildi. Margir eru
farnir að nota sokka sem nefnast sel-
skinnssokkar og eru vatnsheldir og
mjög hlýir.
Aldrei fara á fjöll nema með
auka sokka og auka vettlinga
Misjafnt er hvernig menn búa sig
til fjallaferða og oft fer ég hálendis-
dagsferðir á minni mótormeri, þá
eru alltaf a.m.k. tvenn aukasokka-
pör, aukavettlingar og það nýjasta
í bakpokanum er síðu upphituðu
nærbuxurnar og fullhlaðin rafhlaða
sem ég skrifaði um í fyrrasumar.
Aldrei fer ég án litla sjúkrapakkans,
hann fylgir mér í allar fjallaferðir.
Ég hef kynnst því að detta illa
á hausinn, en mín verstu meiðsli
urðu á hægari ferð en margur
smalahesturinn nær. Alltof oft sér
maður hestamenn hjálmlausa í smöl-
un og smala á fjórhjóli án hjálms.
Förum jákvæð inn í
smalamennskuna þetta árið með
öryggið í fyrirrúmi og notum þann
öryggisbúnað sem völ er á, það
er svo leiðinlegt að heyra fréttir
af slysum við smalamennsku.
Nýjasta leynivopn mitt fæst í
ýmsum útivistarvörubúðum og eru
nokkrir pakkar af tá-, vettlinga- og
búkhiturum sem gott er að setja í
skó, vettlinga og á búk ef allt verður
blautt. Þessir hitaplattar gefa ágætis
hita í nokkra klukkutíma. Megi
smalamennskan ganga vel og góða
skemmtun til fjalla.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
NAFN-
BÆTUR
MJÓLKUR-
AFURÐ MÁTTUR TUNNU GÁLEYSI
NEÐAN
VIÐ ÍÞRÓTT
SFUGL T O R M M Á V U R
MTAPA I S S A
EGGJA
GÖNGU-
LAG M A N A
ÆFRÆND-BÁLKUR T T G R U N D L
L U N N I
GLJÚFUR
SKRAUT-
STEINN G I L
MATREIÐA
FJÖLDI
TVEIR EINS S K A R I
JARÐ-
SPRUNGUR
FÆDDI G J Á R ÁLAG
Í RÖÐMINNKA
KKLAUFIBAND
FOLD
MEN
G E L T A LJÓMA JAFNINGURÓTTI S Ó S A VIÐAR-TEGUND ÁVÖXTUR OGJAMMA
I L L A GLUNDURUTAN G U T L EININGÁTT S T A KSLÆMA
B D HANGIKYLFA G Á L G I VÍSDÓMURÞESSA S P E K IÍ RÖÐ
B A K NÆGILEGTSTEFNA N Ó G HÖRFAGORTAR H V I K A KVEÐJAHRYGGUR
O
SAMÞYKKI
INNI-
LEIKUR J Á
SKYNFÆRI
KROPP A U G A LISTIÓSKERT S K R Á
N A U T N RÖÐAUR R U N A BLUND ÁTTSKEL N VYNDI
A L L T A F ELDAGYLTU M A L L A KRINGUM AÆTÍÐ
P
I
Ú
Ð
L
A
SVAKA
DYGGUR
R
T
O
R
S
Ú
A
R
HORN
TRAÐK
L
T
Ú
R
Ð
A
U
M
R
P
ERFIÐI
RÖST
66
BLÆR ÁÞEKKUR ÞVOGL SIÐA UPP ÞVAÐRA MEGIN
MELMI
ÞÍÐA
TEGUND
DÆLD
ALDUR
KRAFTUR
BÓLA
KOMUST
ÓÁLITLEGRI
FRÁ
ELSKA
MJAKA
NAG
SJÚK-
DÓMURFUGL
RÓTA
ÆTTAR-
SETUR
FLETTA
TRUFLA
MJÓLKUR-
VARA
FÁLMA
AÐ
HLÝJA AF-FERMINGYNDIS
ÁREYNSLA
ÓVILJANDI
TARFUR
FLOT
RANGLA
LÚKA
NÁÐHÚS
MISGERÐ
VÉLUN
TVEIR
EINS
LANGAR
NÆÐA
JAFNT
PÍLVIÐUR
FLOKKAUMFRAM
SEYTLAR
FJÖLDI
LÍFSHLAUP
FISKA
FOR
SKRAMBI
TELJA
ÁTT
ÓHRÓÐUR
RAUST
BÚINN
Í RÖÐ
SKÓLIFÍFLAST
FUGL
KEMBA
HRINGJAKROPP
ANGAÐI
67
Ertu rétt klædd/ur til fjallaferða?
Sindri er til fyrirmyndar við smalamennsku með hjálm og í áberandi klæðnaði.
Ég náði mynd af honum þegar verið var að laga skeifu undir hesti hans, með
mínum orðum umfelgun á grasmótor.
Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri
Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is ÁSCO