Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 22
22
Jörðin Fell og nærliggjandi þjóð-
lendur voru friðlýst sem hluti
Vatnajökulsþjóðgarðs þann 25.
júlí sl. Á svæðinu er einn vinsæl-
asti ferðamannastaður lands-
ins, Jökulsárlón, ásamt stórum
hluta Breiðamerkursands og
hluti Fjallsárlóns. Þar með nær
Vatnajökulsþjóðgarður frá hæsta
tindi landsins niður að fjöru.
Gestakomur í Jökulsárlón hafa
stigvaxið í samræmi við fjölgun
ferðamanna hér á landi. Árið 2015
voru þeir 460.000 og fjölguðu í um
670.000 árið 2016 og í ár er gert ráð
fyrir að um milljón gestir heimsæki
staðinn.
Svæðið mun nú tilheyra
suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
og horfir í viðamikil verkefni við
uppbyggingu innviða og vörslu á
svæðinu. Nú þegar eru landverðir á
vegum þjóðgarðsins við Jökulsárlón
og á svæðinu í kring til að fylgjast
með og leiðbeina gestum.
Næsta skref er að vinna stjórnun-
ar- og verndaráætlun fyrir svæðið en
slík áætlun er meginstjórntæki þjóð-
garðsins og verkfæri til stefnumótun-
ar. Hún á að endurspegla sameigin-
legar væntingar og áform þeirra sem
koma að starfsemi þjóðgarðsins og
eiga hagsmuni á starfssvæðinu. Þar er
m.a. sett fram stefna um náttúruvernd,
útivist, byggðaþróun og landnýtingu.
Skilvirkast að einkaaðilar
kæmu að uppbyggingu
„Ég verð ekki var við neitt annað en
mikla ánægju með að friðlýsingin
sé orðin að veruleika. Menn binda
töluverðar vonir við það að það fari
í gang öflug uppbygging. Ég vil sjá
þessa uppbyggingu hefjast strax á
næsta ári og að henni ljúki á þrem-
ur árum,“ segir Björn Ingi Jónsson,
formaður svæðisráðs suðursvæðis
Vatnajökulsþjóðgarðs og bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar, en
58,7% sveitarfélagsins tilheyrir nú
þjóðgarðinum.
Björn Ingi segir vinnu við gerð
stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir
hið nýfriðlýsta svæði þegar farna
í gang en slíkt ferli taki alla jafna
nokkra mánuði. Hann segir að líta
þurfi sérstaklega til umferðaröryggis
og uppbyggingu innviða á fjölförnum
ferðamannastöðum eins og í kringum
Jökulsárlón. Um sé að ræða kostn-
aðarsamar framkvæmdir og því geti
verið skilvirkast að einkaaðilar kæmu
að uppbyggingunni.
„Við erum afskaplega glöð að
ríkið hafi stigið það skref að kaupa
jörðina og eigi þessa náttúruperlu
til framtíðar. Þetta eru ekki litlar
upphæðir sem teknar eru af
almannafé og ég tel óraunhæft að
ætlast til þess, eða reikna með því, að
ríkið komi svo með auka 500–1000
milljónir í viðbót til að byggja upp
aðstöðu þarna. Við viljum að svæðið
skili tekjum aftur til hins opinbera
og til þjóðgarðsins. Ég held að slíkt
geti skilað sér með því að bjóða út
uppbygginguna, á grunni þess að
menn greiði fyrir það leigu og vinni
samkvæmt skilmálum, deiliskipulagi
og ákveðinni umgjörð.“
Björn Ingi bendir á að slík nálg-
un að innviðauppbyggingu á sér for-
dæmi í Fjallsárlóni, sem varð einnig
hluti af þjóðgarðinum með friðlýs-
ingunni og hún hafi reynst vel.
Beit á Breiðamerkursandi
Vatnajökulsþjóðgarður er frábrugð-
inn öðrum þjóðgörðum hér á landi
þegar kemur að landnýtingu innan
þjóðgarðsmarka. Meginhluti þjóð-
garðsins er skilgreindur í verndar-
flokki II sem svæði sem er einkum
ætlað til verndar vistkerfum og til
útivistar.
Hefðbundin landnýting er
heimil á nokkrum svæðum innan
þjóðgarðsins. Sauðfjárbeit er leyfð
á hluta Jökulsárgljúfra, afréttum á
vestur-, norður- og austurhálendinu
og afmörkuðum svæðum sunnan
jökla. Mest er hún næst byggð sunnan
og vestan jökla en minnst á afréttum
norðurhálendisins, samkvæmt
stjórnunar- og verndaráætlun.
Þá eru innan þjóðgarðsins svæði
sem flokkuð eru sem verndarsvæði
með sjálfbæra nýtingu náttúruauð-
linda og þar er að einhverju leyti
stunduð sauðfjárbeit. Þessi landsvæði
eru einnig að stórum hluta í einkaeign
innan þjóðgarðsins.
Sauðfé hefur verið beitt á
Breiðamerkursandi í áraraðir.
Friðlýsing sandsins hefur að sögn
Björns Inga ekki í för með sér
breytingar á því. Ákveðnar jarðir
hafi afnotarétt af svæðinu og þær
heimildir haldi þrátt fyrir friðlýsingu.
/ghp
Frá fjallstindi að fjöru
– Bæjarstjóri Hornafjarðar vill sjá uppbyggingu innan þriggja ára
Friðlýsing Jökulsárlóns og nærliggjandi þjóðlenda styrkir vinnu við tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs sem nátt-
úruminja á heimsminjaskrá UNESCO sem nú er unnið að. Mynd/Þorvarður Árnason
hátíðlega athöfn hjá Jökulsárlóni. Björn Ingi Jónsson, formaður svæðisráðs
suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og bæjarstjóri Hornafjarðar, stendur hjá.
Með friðlýsingu Jökulsárlóns og nærliggjandi svæða bætast 190 ferkílómetrar
við Vatnajökulsþjóðgarð. Kortið sýnir hið nýfriðlýsta landsvæði.
Góður árangur af borunum við Hoffell í Nesjum:
Heitt vatn finnst
til húshitunar
Góður árangur var af borun holu
HF-4 við Hoffell og virðast nú
allar forsendur vera fyrir hendi
til að hitaveita á Höfn í Hornafirði
geti orðið að veruleika.
Borun á holu HF-4 lauk þann
14. júlí síðastliðinn, samkvæmt
frétt á heimasíðu Rarik, og virðist
holan samkvæmt fyrstu mælingum
geta gefið allt að 50 lítra á sekúndu
af um eða yfir 80 °C heitu vatni.
Verði það raunin er það betri
árangur er búist var við. Holan er
1.750 metra djúp og hiti í botni
hennar er vel yfir 80° á Celsíus.
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
sá um borunina og ÍSOR sá um
ráðgjöf og eftirlit.
45 rannsóknarholur
Frá 2012, hefur RARIK í samstarfi
við ÍSOR látið bora eftir heitu vatni
við Hoffell í Hornafirði með það að
markmiði að finna heitt vatn fyrir
hitaveitu á Höfn. Frá 1992 til 2006
höfðu sveitarfélagið Hornafjörður
í samstarfi við Jarðfræðistofuna
Stapa og einnig Orkustofnun unnið
að jarðhitaleit við Hoffell.
Boraðar voru 33 rannsóknarholur
fram til 2006, flestar grynnri en 60
metrar, en fjórar yfir 300 metrar.
Hlé varð á borunum frá 2006 þar til
RARIK hóf að láta bora árið 2012,
en síðan þá hafa verið boraðar 12
grunnar rannsóknarholur, ein 150
m hola, þrjár 500 metra holur og
fjórar djúpar rannsóknarholur,
1.100 til 1.750 metra djúpar, sem
hannaðar eru þannig að þær nýtist
sem vinnsluholur.
Árangur hefur verið góður og
er nú nægjanlegt vatn fundið fyrir
hitaveitu á Höfn. RARIK mun þó
bora eina djúpa holu til viðbótar, til
að tryggja öryggi veitunnar þótt ein
hola skemmist.
Fjarvarmaveita á Höfn frá 1991
RARIK hefur rekið fjarvarmaveitu
á Höfn í Hornafirði frá 1991, þar
sem vatn hefur verið hitað upp með
ótryggðu rafmagni og dreift um
þéttbýlið. Um 75% húsa á Höfn eru
tengd fjarvarmaveitunni, en önnur
hús eru hituð með beinni rafhitun.
Þegar ótryggt rafmagn hefur ekki
verið fyrir hendi hefur vatnið verið
hitað með brennslu olíu.
Að mati RARIK er ekki líklegt að
ótryggt rafmagn fáist á næstu árum
á þeim kjörum sem nauðsynlegt er
til að fjarvarmaveitan beri sig. Því
var ákveðið að fara í jarðhitaleit til
að freista þess að finna heitt vatn
fyrir Höfn. /VH
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
hefur í ályktun lýst yfir þungum
áhyggjum vegna boðaðra lækkana
á verði til sauðfjárbænda í komandi
sláturtíð. Ályktunin var samþykkt
samhljóða á fundi sveitarstjórnar
í liðinni viku. Sauðfjárrækt er
undirstaða byggðar í héraðinu og
segir í ályktuninni að þar af leiði
að hrikti í byggðinni þegar fótum
sé kippt undan starfseminni.
Fram kemur að verði boðaðar
verðlækkanir á afurðaverði til
sauðfjárbænda nú í haust að
veruleika sé rekstrargrundvöllur
sauðfjárbúa í landinu algerlega
brostinn. Afleiðingarnar verði hrun
í búgreininni og í framhaldi af því
stórfelld byggðaröskun. Því þurfi að
leita lausna án tafar.
Engin laun til bænda
„Sauðfjárbúskapur er stærsta
atvinnugrein innan Húnavatnshrepps
og hefur boðuð lækkun á verði til
sauðfjárbænda gífurleg áhrif á
afkomu heimila í Húnavatnshreppi
og sveitarfélagsins í heild. Nú,
annað árið í röð, standa sauðfjár-
bændur frammi fyrir verulegri tekju-
skerðingu og á komandi hausti af
þeirri stærðargráðu að ekkert mun
standa eftir af tekjum búanna til
greiðslu á launum, þegar kostnaður
við framleiðsluna hefur verið greidd-
ur. Laun bænda vegna búrekstrarins
verða því engin.
Miklir fjárhagsörðugleikar
blasa við, sérstaklega skuldsettum
bændum. Kemur tekjuskerðing
augljóslega harðast niður á þeim sem
nýlega hafa byrjað búskap, sem eru í
flestum tilfellum yngstu bændurnir,“
segir í ályktuninni.
Ekki drepa málinu á dreif
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skor-
ar á stjórnvöld, forystumenn bænda,
sláturleyfishafa og aðra hlutaðeig-
andi að leita allra leiða til að leysa
þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er.
„Leita þarf lausna án tafar, en drepa
ekki málinu á dreif með karpi um
orsakir vandans.“ /MÞÞ
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps:
Þungar áhyggjur vegna
lækkana á afurðaverði