Bændablaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 2018 43
Í tveimur elstu og útbreiddustu
trúarbrögðunum heimsins - Íslam
og Gyðingdómi - eru gerðar
strangar kröfur til matvæla. Hjá
Gyðingum kallast þær Kosher
en Halal hjá Múslimum. Í þeim
löndum sem kenna sig við þessi
trúarbrögð er einfaldlega gerð
krafa um að þær séu uppfylltar
og í hinum Vestræna
heimi fer eftirspurnin
sívaxandi.
Matvæla f ram-
leiðendur eru því í
auknum mæli farnir
að taka tillit til þessara
stóru trúarhópa og hafa
þær verið einna mest
vaxandi matvæla-
full yrðingarnar
undanfarin ár.
Sjaldnast
trúarlegar
ástæður
Í hinum vestræna heimi velja stærstu
kaupendahóparnir þær hins vegar
af öðrum ástæðum en trúarlegum,
einkum þeirri að þær eru framleiddar
undir ströngu eftirliti sem gefur þeim
ákveðinn gæðastimpil. Kannanir
sýna að þeir sem velja Kosher/Halal
vottuð matvæli geri það vegna þess
að þeir treysti þeim betur, telji þær
hollari, af meiri gæðum og í
tengslum við veganisma,
ofnæmi- og óþol.
Kosher
Alþjóðlegi Kosher
mark aðurinn var
metinn á 24 trilljónir
Banda ríkja dala árið
2017 og er áætlað að
hann muni vaxa um 11,6% á
ári frá 2017-2025.
Orthodox Union (O.U.) eru
ein elstu samtök Gyðinga í
Bandaríkjunum. Þau eru þekktust
fyrir vottunarþjónustu sína og
er U merkið þeirra algengasta
vottunarmerkið. Helsti keppinautur
þeirra er votttunarstofan OK Kosher
Certification sem notar merkið K
með hring utan um. Fjölmargar aðrar
vottunarstofur bjóða Kosher vottun,
hver og ein með sitt eigið merki.
Ef á vöru er einungis stafurinn
K án tilvísunar, þýðir það að
framleiðandinn segi vöruna uppfylla
kröfurnar en að varan sé ekki vottuð
af þriðja aðila.
Fulltrúar O.U.
telja að allt að
80% af sölu
Kosher merktra
matvæla sé utan
hins hefðbundna
Gyðingamarkaðar
og að yfir tólf milljónir
Bandaríkjamanna velji
Kosher merkt matvæli. Eins
hafa múslimar tilhneygingu til
að velja Kosher vottuð matvæli
þegar Halal vottuð eru ekki í
boði.
Í Kosher lögunum eru gerðar
miklar kröfur til hreinlætis,
hreinleika og gæða en einnig um
hvaða tegundir matvæla Gyðingar
megi borða og hvernig þau skuli
matreidd. Ekki má neyta ákveðinna
kjöt- og fisktegunda eins og
svínakjöts, skelfisks eða fiska sem
voru ekki með ugga eða hreistur
sem auðvelt var að fjarlægja. Það á
einnig við um afurðir eins og fitu,
kítin og gelatín sem unnin eru úr
dýraafurðum. Slátrun verður að
vera samkvæmt lögum Gyðinga
og svo gilda enn strangari reglur
á föstunni, en þá mega Kosher
matvæli ekki innihalda ýmsar
korntegundir.
Halal
Árið 2017 var alþjóðlegi Halal
markaðurinn metinn á tæpar 1,4
trilljónir Bandaríkjadala sem er þó
einungis um 6% af stærð Kosher
markaðarins. Búist er við því að
hann muni vaxa um ríflega 11% á
ári fram til ársins 2024 og muni þá
hafa næstum tvöfaldast að stærð.
Í Bandaríkjunum keyptu
neytendur Halal vottuð matvæli fyrir
tæpa 23 milljarða dollara árið 2016
og er áætlað að árið 2021 muni þeir
eyða tæpum 27 milljörðum dollara
í slík matvæli. Ólíkt Kosher eru
engin sérstök merki langalgengust
eða ákveðin vottunarstofa stærst
eftir því sem höfundur kemst næst.
Halal er arabískt orð sem þýðir
löglegt eða leyfilegt. Allur fiskur
er Halal en eftirfarandi
mat- og drykkjarvörur
eru ekki leyfilegar:
Áfengi og aðrir
vímugjafar, svínakjöt
og svínakjötsafurðir,
dýr sem var ekki slátrað
með Halal aðferðinni, dýr
sem voru dauð fyrir
slátrun, kjötætur og
ránfuglar, blóð og
blóðafurðir og dýr
sem eru menguð
af því sem talið var
upp. Gerð er krafa um
að dýrum sé látið blæða
vel eftir slátrun og að nafn
Allah sé nefnt um leið og dýrin
eru skorin á háls. Framleiðslutæki,
hreinsiefni og umbúðir verða að vera
laus við bönnuð efni.
Dæmi frá
Íslandi
Lýsi hf. hefur
verið með
Halal vottun
á olíuna sína
í nokkur ár en
hún er vottuð af Halal Authority
Board í Bretlandi. Samvæmt
viðmælandi hjá fyrirtækinu er slík
vottun forsenda fyrir útflutning
til múslimalanda. Þrjú sláturhús
á Íslandi hafa fengið Halal vottun
til að auðvelda sölu inn á erlenda
markaði. Þó slíkt kjöt sé á markaði
hérlendis er það ekki sérstaklega
merkt. Það kjöt sem fer til útflutnings
er það hins vegar. Mjólkursamsalan
stefnir að því að fá Kosher vottun á
mjólk, smjör og ost vegna beiðni frá
evrópskum kaupendum sem selja
þær til aðila sem krefjast slíkrar
vottunar.
– Oddný Anna Björnsdóttir er
sjálfstætt starfandi ráðgjafi og bóndi
í Gautavík. Greinar í Bændablaðinu
um vottanir og upprunamerkingar
byggjast á verkefni sem hún vann
fyrir Íslandsstofu veturinn 2018.
Greiningin er aðgengileg í heild
sinni á vef Íslandsstofu.
vísbendingu um skepnur sem eru
etv. veikar eða að veikjast svo dæmi
sé tekið.
GEA með nýjung ársins á
EuroTier 2018
Venju samkvæmt notuðu mörg
fyrirtæki sýninguna sem vettvang
frumsýninga á nýjungum. Sérstök
nefnd sér um að meta nýjungarnar
og ef þær flokkast sem hrein nýjung,
þ.e. ekki einungis breyting eða
betrumbæting á áður framleiddri
tækni, þá fær viðkomandi fyrirtæki
sérstaka viðurkenningu á sýningunni
og í ár fengu alls 26 nýjungar slíka
viðurkenningu. Það er svo alltaf ein
nýjung sem er valin besta nýjungin
innan hverrar búgreinar og í ár var
það fyrirtækið GEA sem hlaut þessa
miklu viðurkenningu fyrir nýjung
sína GEA DairyMilk M6850, en í
fáum orðum sagt er hér á ferðinni
byltingarkennt frumutalningartæki
sem getur í rauntíma talið frumur
í mjólk frá hverjum júgurhluta.
Þessi frumuteljari er sá fyrsti sinnar
tegundar í heiminum og með honum
er hægt að greina forstigseinkenni
júgurbólgu fyrr en með öðrum
búnaði sem er á markaðinum í dag.
Vegna umfangs sýningarinnar og
mikils fjölbreytileika er á engan hátt
hægt að gera almennilega grein fyrir
því sem fyrir augu bar á sýningunni
en meðfylgjandi eru nokkrar myndir
sem sýna örlítinn hluta af þeim ótal
tækjum og tólum sem voru sýnd og
tengdust nautgriparækt.
Undanfarin ár hefur verið lögð meiri og meiri áhersla á að draga úr
VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA
Oddný Anna Björnsdóttir
objornsdottir@gmail.com
Trúartengdar vottanir
Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870
www.praxis.is •
Jólagjöfin í ár
er Praxis gæði
Gæða bómullarbolir fyrir dömur
og herra, stutterma og síðerma,
í mörgum fallegum litum.
...Þegar þú vilt þægindi
LOKAÐ vegna jólaleyfa
18. desember–6. janúar
Mikið úrval
af klossum
Mikið úrval af fatnaði sem þolir hátt
hitastig í þvotti, ótrúlega góð efni.
Kíkið á
praxis.is
UTAN ÚR HEIMI
Villigróður til að bjarga býflugum og auka uppskeru
Niðurstaða ráðstefnu um
líffræðilega fjölbreytni á
vegum Sameinuðu þjóðanna
er sú að besta leiðin til að
hamla geng fækkun býflugna
í heiminum sé að fjölga villtum
plöntum.
Gríðarleg fækkun býflugna
í heiminum er mörgum
mikið áhyggjuefni, ekki bara
náttúruverndarsinnum heldur
líka bændum og neytendum, þar
sem býflugur sjá um frjóvgun á
um 80% af helstu nytjaplöntum
heimsins.
Þrátt fyrir að ekki séu
allir sammála því af hverju
býflugnadauði í heiminum stafar
eru taldar yfirgnæfandi líkur
að óhófleg notkun eiturefna í
landbúnaði sé meginástæðan, auk
þess sem eyðing fjölbreytilegs
náttúrulegs gróðurlendis fyrir
einhæfa ræktun sem fylgir
landbúnaði hefur líka sitt að segja.
Samkvæmt því sem kom
fram á ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sem lýkur í vikunni,
mun áhrifamesta leiðin til að
draga úr fækkun býflugna að
hætta alfarið notkun eiturefna
í landbúnaði. Ólíklegt er þó að
slíkt gerist fyrsta kastið.
Á ráðstefnunni var bent á að
auka mætti lífslíkur flugnanna
og um leið auka frjóvgun
nytjaplantna og uppskeru
með því að sá blómstrandi
villijurtum með nytjagróðrinum.
Rannsóknir benda til að með því
að sá ýmiss konar villigróðri í
um fjórðung akra sem reiða
sig á frjóvgun býflugna má
laða að flugur og þannig auka
uppskeruna.
Einnig hefur verið bent á
að nýta megi margar villijurtir sem
krydd, til ilmolíugerðar, matar- og
lyfjagerðar. /VH