Bændablaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 2018 27
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.
KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is
kr. 9.300,-
Blátt fóður
Tveir hliðarvasar með rennilásum
Vindhlíf á bak við rennilás
Stroff á ermum
Innri vasi með rennilás
Innri vasi með smellu fyrir litla spjaldtölvu
Flís á innanverðum kraga
Teygja í mitti
Efni: 100% pólýamíð
Litir: Svartur
Stærðir: XS-5XL
2 lita jakki
Burðapoki fyrir jakka
Hágæða
kaffi í
kaupbæti
106000 - Vatteraður jakki
+
Hágæða vatteraður
jakki
kr. 9.900,- Verð með sendingakostnaði
ilbb . s obcFa e ok
Deildarmót Austurlandsdeildar
SFÍ var haldið að Ytra-Lóni
á Langanesi sunnudaginn 4.
nóvember 2018. Brautin á Ytra-
Lóni liggur niðri við sjó sem gerir
mótsvæðið svolítið sérstakt og
feikna fallegt.
Sjávarlyktin fyllir vitin og
öldurnar syngja og dansa í fjörunni.
Svolítil snjódula lá yfir svæðinu en
ekkert sem þátttakendur létu stoppa
sig þó hún hafi mögulega tafið
aðeins fyrir kindunum á köflum.
Alls tóku ellefu hundar þátt og
Gunnar Einarsson frá Daðastöðum
sá um dómgæslu. Á Ytra-Lóni var
boðið upp á dýrindis veitingar. Súpa
fyrir keppni og hlaðborð með alls
kyns gómsætu kaffibrauði eftir mót.
Eins og alltaf þá verða svona
mót ekki til af sjálfu sér. Það
þarf undirbúning, aðstöðu og
kindur, aðstoðarfólk til að sjá
um sleppingar, dómara og svo
auðvitað keppendur. Svona mót eru
kærkominn vettvangur fyrir okkur
sem höfum áhuga á að áfram séu
góðir smalahundar ræktaðir á Íslandi
til að koma saman. Bæði til að sjá
hvaða hundar eru til á landinu og
hvernig þeir vinna, en ekki síður til
að sjá hvert annað. Við sem vorum
þarna komin saman ræddum um að
gaman væri að reyna að hittast aftur
í vetur við eitthvert annað tilefni.
Austurlandsdeildin þakkar öllum
sem að mótinu komu kærlega
fyrir sitt framlag. Þess má geta að
þetta er fyrsta mótið í „mótaröð“
Austurlandsdeildarinnar, en annað
mót er fyrirhugað á Eyrarlandi
helgina 10.–11. nóvember.
Úrslit í unghundaflokki
(100 stiga keppni)
1. Sverrir Möller og Kári frá
Auðólfsstöðum - 74 stig (M:
Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur
frá Daðastöðum)
2. Sverrir Möller og Garri frá
Auðólfsstöðum - 64 stig (M:
Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur
frá Daðastöðum)
3. Einar Atli Helgason og Kría
frá Snartarstöðum - 34 stig/
Hætti keppni (M: Skoppa frá
Sauðanesi - F: Strumpur frá
Snartarstöðum)
A-FLOKKUR (110 stiga keppni)
1. Elísabet Gunnarsdóttir og
Panda frá Daðastöðum - 86 stig
(M: Skotta frá Daðastöðum - F:
Dan frá Skotlandi)
2. Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur
frá Húsatóftum - 84 stig (M:
Kría frá Daðastöðum - F: Brúsi
frá Brautartungu)
3. Maríus Snær Halldórsson og
Elsa frá Hallgilsstöðum - 81
stig (M: Sara frá Sigtúnum - F:
Snati frá Móskógum) /AJH
SMALAHUNDAR
Deildarmót Austurlandsdeildar SFI Ytra-Lóni:
Elísabet Gunnarsdóttir og Panda
frá Daðastöðum sigruðu í A-flokki
Kolur frá Húsatóftum. Mynd / Eva Frischling - Rookie Photography
Deildarmót Austurlandsdeildar SFÍ Eyrarlandi:
Þorvarður Ingimarsson og Spaði
frá Eyrarlandi sigruðu í A-flokki
Síðara haustmót Austurlands-
deildar SFÍ var haldið að
Eyrarlandi 11. nóvember
síðastliðinn. Eftir að hafa lengst
af ferðast í grenjandi rigningu og
svartaþoku voru farnar að renna
tvær grímur á þá keppendur sem
komu að.
Það var þó ekki ástæða til að
örvænta því þegar sá í Eyrarland
létti til og fór mótið fram við góðar
aðstæður þótt þokan hafi aðeins reynt
að stríða þátttakendum á köflum.
Á Eyrarlandi var öll umgjörð til
fyrirmyndar eins og fyrri daginn
og valinn maður í hverju rúmi. Þar
var gott brautarstæði með ágætri
yfirsýn og kindurnar þjálar. Aðeins
sog frá útihúsum en kindurnar voru
sanngjarnar og gáfu áreynslulítið
eftir þegar hundarnir sneru þeim.
Vegleg verðlaun voru í boði en
Jötunn Egilsstöðum og Landstólpi
Egilsstöðum styrktu deildina með
verðlaunum í formi hundafóðurs.
Alls tóku níu hundar þátt og
hundar í A-flokki fengu tvö rennsli
hver og gilti betra rennslið til úrslita.
Dómari var Agnar Ólafsson frá
Tjörn.
Deildin þakkar öllum sem komu
að mótinu með einum eða öðrum
hætti kærlega fyrir. Reglulega
gaman að það hafi verið hægt að
koma á tveimur deildarmótum þetta
árið. Menn og hundar reynslunni
ríkari. Vonandi ávísun á það sem
koma skal.
Úrslit í unghundaflokki
(100 stiga keppni)
1. Sverrir Möller og Garri frá
Auðólfsstöðum – 63 stig (M:
Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur
frá Daðastöðum)
2. Sverrir Möller og Kári frá
Auðólfsstöðum – 61 stig (M:
Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur
frá Daðastöðum)
3. Sigurður Max Jónsson og Tása
frá Ósi, ógilt (M: Káta frá Ósi
– F: Snati frá Eyrarlandi)
4.
A-FLOKKUR (110 stiga keppni)
1. Þorvarður Ingimarsson og
Spaði frá Eyrarlandi - 95 stig
(M: Lýsa frá Hafnarfirði – F:
Prins frá Daðastöðum)
2. Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur
frá Húsatóftum - 82 stig (M:
Kría frá Daðastöðum – F: Brúsi
frá Brautartungu)
3. Elísabet Gunnarsdóttir og
Panda frá Daðastöðum - 79 stig
(M: Skotta frá Daðastöðum – F:
Dan frá Skotlandi)
/AJH
Keppt í þoku við Eyrarland 11. nóvember. Mynd / Aðalsteinn J Halldórsson