Bændablaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 201842
Landbúnaðarsýningin EuroTier,
sem haldin er annað hvert ár í
bænum Hannover í Þýskalandi,
var haldin um miðjan nóvember
og að vanda var þar margt
áhugavert að sjá fyrir bændur og
þjónustuaðila þeirra.
Sýningin er sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum þegar horft
er til nautgriparæktar, en sýningin
er einnig með þeim stærri innan
alifugla- og svínaræktar. Alls voru
2.597 aðilar frá 62 löndum með
sýningarbása á sýningunni að þessu
sinni og alls sóttu sýninguna 155
þúsund gestir frá 62 löndum þá 4
daga sem hún stóð yfir.
Stafrænn búskapur þema
sýningarinnar
Í ár var þema sýningarinnar nýting
sjálfvirkni, nema og stafrænna
gagna til þess að auðvelda bændum
búskapinn, bæta velferð skepnanna
og jafnframt til þess að safna
upplýsingum um skepnuhaldið
almennt s.s. vegna vottunar við sölu
afurðanna í tengslum við kröfu um
dýravelferð og sjálfbærni. Á þessu
sviði hafa orðið stórstígar framfarir á
örfáum árum og sér í lagi hafa mörg
fyrirtæki komið með áhugaverðan
búnað sem auðveldar bændum að
sinna búskapnum s.s. með tilkomu
skynjara og hugbúnaðar sem gefur
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Sýningarsvæði EuroTier í Hannover í Þýskalandi.
EuroTier 2018:
Landbúnaðartækninni fleygir fram
Frumuteljarinn frá GEA vann heiðursverðlaun á EuroTier í ár en um er að
ræða tæki sem getur í rauntíma talið frumur í mjólk frá hverjum júgurhluta.
Urban kynnti afar áhugaverða nýjung
en það var þessi hitamælir sem bæði
getur lesið rafrænt eyrnamerki grips
og mælt hitastig gripsins sjálfkrafa
um leið. Með beintengingu við
gagnagrunn er svo hægt að fá fram
upplýsingar um gripinn sem er verið
að mæla auk þess að mælingin
skráist inn í gagnagrunninn um leið.
Þá er einnig hægt að nota mælinn
til þess að skrá inn upplýsingar í
gagnagrunn s.s. þegar kálfur fæðist.
DeLaval sýndi á sýningunni
afar áhugaverða nýjung sem
þeir kalla Evansa. Við fyrstu
sýn virðist hér vera á ferðinni
hefðbundið mjaltatæki en
nýjungin felst í því að efsti hluti
spenagúmmísins, þess sem tengir
það við mjaltakrossinn, er nú með
sérstöku hraðtengi sem bæði
einfaldar skipti á spenagúmmí til
muna en hönnunin hefur einnig
frá kúnni og inn í mjaltakrossinn.
Hin nýja hönnun er sögð auka
afköst við mjaltir til muna og
samkvæmt mælingum DeLaval
7% styttri tíma.
mjaltaþjónatæknina heldur einnig tækni fyrir hefðbundnar mjaltir. Á stærri
kúabúum erlendis, þar sem hringekjur eru oft notaðar við mjaltir, krefst
vinnan við að setja spenadýfu á spena eftir mjaltir mikillar natni en þetta
er um leið afar þreytandi vinna og oft er það svo að þeir sem þetta gera
missa einbeitinguna enda afar einhæft verk. BouMatic Robotics kynntu á
sýningunni til sögunnar þjarka sem leysir þetta verk hratt og örugglega.
Það telst vart lengur til nýjunga að kynna sköfuþjarka, þ.e. þjarka sem
keyra sjálfvirkt um fjós og halda rimlunum hreinum með því að skafa þá.
Á EuroTier í ár voru á annan tug slíkra tækja hjá mismunandi söluaðilum
en eins og e.t.v. margir vita þá vinna fyrirtæki sem selja landbúnaðartæki
stundum saman og selja í raun sama hlutinn með þó mismunandi merkjum
á. Afar mörg dæmi um slíkt mátti víða sjá á sýningunni eins og hér má sjá, en
bæði fyrirtækin Hetwin og Fullwood sýndu þarna sköfuþjarka hvort í sínum
litnum en þjarkarnir voru greinilega frá sama frumframleiðanda.