Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 66
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201866
Kökubloggarinn Lilja Katrín
Gunnarsdóttir gaf nýverið út
sína fyrstu uppskriftabók, Minn
sykursæti lífsstíll, sem er sneisafull
af girnilegum uppskriftum og
góðum ráðum fyrir alla sem gaman
hafa af því að baka. Hér deilir hún
með lesendum Bændablaðsins
góðum og einföldum uppskriftum
fyrir jólahaldið að konfekti,
íseftirrétti og forsetamarengs.
„Ég gjörsamlega elska jólin og
ég held að það tengist því sterkum
böndum að þetta er eini árstíminn
þar sem er leyfilegt að baka eins og
vindurinn án þess að vera dæmdur
af sínu nærumhverfi. Það fíla ég.
Mitt eftirlæti er að baka smákökur
og baka ég þær allt árið um kring.
Þær eru bara svo sætar og dúllulegar
og svo er hægt að henda nánast
hverju sem er í smákökudeig og það
verður gott. Þannig að ég reyni að
nýta það sem fellur til, afganga af
jólanammi til dæmis, til að búa til
smákökur,“ útskýrir Lilja Katrín og
segir jafnframt:
„Þegar kemur að eftirréttum á
jólum þá hef ég brennt mig á því
að reyna að gera eitthvað ótrúlega
flókið og merkilegt sem fólk sýnir
svo takmarkaðan áhuga – sérstaklega
börnin. Þannig að í ár ætla ég að
breyta til. Er við fjölskyldan sátum
saman um daginn og gæddum
okkur á púðursykurmarengs
eftir sunnudagsmatinn þá var
það bara ákveðið. Það var ekki
flókið – umræddur marengs
nefnilega kláraðist á um það bil
tveimur mínútum. Þannig að
púðursykurmarengs með rjóma,
karamellubitum og karamellusósu
verður í eftirrétt á aðfangadag.
Auðvitað verður einnig nóg af
heimagerðu konfekti á boðstólum,
enda veit ég fátt skemmtilegra en að
föndra konfekt langt fram á nótt. Svo
endar það yfirleitt þannig að ég bý
til 1001 tegund og fæ svo taugaáfall
á Þorláksmessu yfir því að það sé
ekki nóg til. Þá hendi ég í nokkrar
konfekttegundir í viðbót og skil svo
ekkert í því af hverju mittismálið
stækkar með hverri mínútunni sem
líður. En það eru nú bara einu sinni
jól.“
Heslihnetur og Nutella
„Konfektið Ferrero Rocher er nánast
aldrei til á mínu heimili og það er
mjög einföld ástæða fyrir því: Það
hverfur á svipstundu! Þannig að ég
ákvað bara að búa það til sjálf og
sjá hvernig heimilisfólkinu líkaði
við það. Í stuttu máli: Það elskaði
Ferrero Rocher-ið mitt!
Ferrero Rocher
Hráefni:
1 bolli mulið ískex (helst með
súkkulaðifyllingu)
1 bolli saxaðar heslihnetur
1/2–3/4 bolli mjúkt Nutella
1/3 bolli brætt dökkt súkkulaði
1/2 tsk. brætt smjör
1/3 bolli saxaðar heslihnetur
Aðferð:
Blandið ískexi, 1 bolla af
heslihnetum og Nutella vel
saman í skál. Blandan á að vera
klístruð.
Skellið blöndunni í ísskáp í 30
mínútur og leyfið henni að jafna
sig.
Búið til litlar kúlur úr blöndunni
og raðið á smjörpappírsklæddan
disk. Setjið þær inn í frysti í 15
mínútur.
Bræðið dökka súkkulaðið og
smjörið saman í örbylgjuofni í
þrjátíu sekúndur í senn. Hrærið
alltaf á milli hverra þrjátíu
sekúndna. Bætið heslihnetunum
út í.
Veltið frosnum kúlunum upp úr
súkkulaðiblöndunni og setjið á
smjörpappír á meðan þær storkna.
Þetta er lítil uppskrift en það er
lítið mál að tvöfalda eða þrefalda
hana. Þessar er líka gott að frysta
svo maður hafi alltaf smá kruðerí
við höndina til að gúffa í sig!“
Segðu það með ístertu
„Ég gæti borðað ís hvar og hvenær
sem er og ég held að besta vinna sem
ég hafi nokkurn tímann unnið hafi
verið þegar ég vann í framleiðslusal
Emmess ís og mátti borða eins
mikinn ís og ég vildi! Mér finnst
þess vegna sjúklega gaman að búa
til minn eigin ís og prófa mig áfram
með alls kyns samsetningar. Þetta er
ein af týpunum sem er fullkomlega
ómótstæðileg.
Ísterta með ástaraldini
og hvítu súkkulaði
Botn – Hráefni:
7 vöfflu ísform, grófmöluð
1 msk. púðursykur
4 msk. brætt smjör
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C og takið
til hringlaga form, sirka 20
sentímetra stórt.
Setjið vöffluformin og
púðursykur í matvinnsluvél og
blandið saman þar til blandan
minnir á mylsnu. Bætið smjörinu
saman við og hrærið vel saman.
Þrýstið blöndunni í botninn
á forminu og bakið í 10–15
mínútur. Leyfið botninum að
kólna alveg.
Fylling – Hráefni:
1/2 dós sæt dósamjólk (sweetened
condensed milk)
100 g hvítt súkkulaði, brætt
kjöt úr 3 ástaraldinum (plús 1
ástaraldin til að skreyta með)
300 ml rjómi
Aðferð:
Byrjið á því að þeyta rjómann og
setja til hliðar.
Blandið síðan mjólkinni, hvíta
súkkulaðinu og ástaraldini saman
í skál.
Bætið rjómanum saman við og
blandið varlega saman með sleif
eða sleikju.
Skellið blöndunni ofan á botninn
og sléttið úr henni. Frystið í að
minnsta kosti 7 klukkutíma,
helst yfir nótt. Skreytið síðan
með ástaraldini og finnið
sumarbragðið!“
Forsetamarengs
„Ég varð að tileinka forseta vor,
Guðna Th. Jóhannessyni, eina
af uppskriftunum í þessari bók,
einfaldlega út af því að hann
gaf mér ómetanlegan styrk í
bökunarmaraþoninu. Mér finnst
hann líka mjög nettur forseti og
gæti alveg trúað því að hann væri
mikill marengskarl. En hver elskar
ekki marengs?
Marengs
Hráefni:
4 stórar eggjahvítur
1/4 tsk. cream of tartar
1 1/4 bolli sykur
1/2 msk. maíssterkja
2 msk. kakó
Aðferð:
Hitið ofninn í 150°C og takið til
bökunarplötu. Klæðið hana með
smjörpappír og setjið til hliðar.
Ef þið viljið, getið þið teiknað
2 jafnstóra hringi á pappírinn
með penna eða blýanti og snúið
honum svo við þannig að þið
sjáið hringina í gegn. Þetta er
hægt að gera til að tryggja að
marengsbotnarnir verði jafnstórir.
Takið til skál sem er laus við öll
óhreinindi og fitu. Mér finnst
best að þurrka innan úr henni
með pappírsþurrku. Setjið
eggjahvíturnar í skálina og þeytið
þær þar til þær freyða vel.
Bætið cream of tartar út í á
meðan þið þeytið og stífþeytið
eggjahvíturnar.
Blandið sykri, maíssterkju og
kakói saman í annarri skál. Á
meðan þið hrærið eggjahvíturnar,
blandið þið kakóblöndunni saman
við, einni matskeið í einu.
Þeytið í um 5 mínútur þegar þetta
er búið til að tryggja að allt sé vel
blandað saman.
Dreifið blöndunni í tvo stóra
hringi á smjörpappírnum og
reynið að hafa þá jafnstóra. Bakið
í 1 klukkustund og 45 mínútur.
Ekki opna ofnhurðina á meðan.
Slökkvið á ofninum og opnið
hurðina aðeins þegar bökunar-
tíminn er liðinn og leyfið
marengsinum að kólna inni í
ofninum.
Rjómi – Hráefni:
300 ml rjómi
4 msk. kakó
1 msk. flórsykur
handfylli af bláberjum
Aðferð:
Þeytið rjómann, kakóið og
flórsykurinn saman þar til rjóminn
er stífþeyttur.
Skellið 3/4 af rjómanum á milli
marengsbotnanna þegar þeir eru
orðnir kaldir og setjið restina ofan
á kökuna. Skreytið með bláberjum
– eða hverju sem þið viljið. /ehg
Á JÓLABORÐIÐ
Kökubloggarinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir, sem heldur úti blogginu blaka.is,
gaf nýverið út sína fyrstu kökubók sem er full af áhugaverðum og girnilegum
uppskriftum.
Forsetamarengsinn er tileinkaður forseta vor, Guðna Th. Jóhannessyni, sem
studdi Lilju Katrínu þegar hún hélt bökunarmaraþon fyrir nokkrum árum.
Í Ferrero Rocher-konfektið er Nutella
og heslihnetur ásamt muldu ískexi
aðaluppistaðan.
Ísterta með ástaraldini og hvítu
súkkulaði sómir sér vel sem
eftirréttur á jólunum.