Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201814
Hrútafundir eða haustfundir í
sauðfjárrækt á Suðurlandi fóru
nýlega fram en haldnir voru fjórir
fundir á mismunandi stöðum á
svæðinu.
Á fundi í Félagslundi í Flóahreppi
22. nóvember var Þorsteinn Ólafsson
dýralæknir með erindi, ásamt Eyþóri
Einarssyni frá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) og Fanney
Ólöf Lárusdóttir hjá RML sá um
fundarstjórn og verðlaunaveitingu.
Fundurinn var fróðlegur og nokkrar
fyrirspurnir komu frá fundarmönnum
sem frummælendur svöruðu.
Fram kom að fé hefur fækkað um
fimm þúsund á Suðurlandi síðustu
ár og hlutfall þeirra sem sæða sínar
ær hefur farið stöðugt lækkandi.
Þá kom fram að hrútakostur
sauðfjársæðingastöðvanna á
Vesturlandi og Suðurlandi væri
með allra besta móti. Einnig kom
fram að blindur hrútur er á stöðinni
í Þorleifskoti í Laugardælum, Náli frá
Oddsstöðum í Lundarreykjadal, hann
er þó ekki fæddur blindur. /MHH
FRÉTTIR
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
ALHLIÐA
VÉLAVERKSTÆÐI
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Ráðstefnan Nordic Poultry var
haldin á Grand hótel í Reykjavík í
nóvember á vegum alifuglabænda
á Norðurlöndum. Ýmis málefni
voru til umræðu, en sérstaklega
var þó fjallað um sjúkdómastöðu
í löndunum en staðan á Íslandi
þykir afar öfundverð á öðrum
löndum.
Margvísleg málefni á dagskrá
„Það eru fagfélög eggja- og
kjúklingabænda á Norðurlöndunum;
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og
Danmörku sem standa að þessu
ráðstefnuhaldi sem samanstendur
mestmegnis af fræðsluerindum,“ segir
Jón Magnús Jónsson, formaður Félags
kjúklingabænda á Íslandi, bóndi
á Reykjum og framkvæmdastjóri
Ísfugls. „Það má segja að Ísland fljóti
bara með, því við erum svo lítil hér.
Þessi félagsskapur, það er fagfélögin,
hittist alltaf á vorin en þá hefur fólk
verið að safna í sarpinn og finna
einhver áhugaverð mál til að taka
fyrir á ráðstefnunni sem haldin er það
haustið. Það geta verið reglugerðir
Evrópusambandsins, nýjar aðferðir
við að ala upp kjúklinga, það geta
verið fóðurrannsóknir og alls kyns
praktísk mál.
Á seinni degi ráðstefnunnar er
málum skipt sérhæft upp í þrjá flokka;
málefni eggjabænda, kjúklingabænda
og dýralækna. Það eru engar formlegar
umræður í raun um þessi málefni, en
það eru þó leyfðar fyrirspurnir að
erindum loknum,“ segir Jón.
Kjúklingur á Íslandi er heilbrigður
og vex hratt
Að sögn Jóns eru efni fyrirlestra
fjölbreytt; sum mál koma upp aftur og
aftur en önnur fari eftir tíðarandanum
og hvað sé efst á baugi hverju sinni.
„Núna voru það dýravelferðarmál
sem voru nokkuð fyrirferðarmikil
hjá öllum og hjá okkur kjúklinga-
bændum var líka fjallað um nýjar
aðferðir við eldi á dagsgömlum
kjúklingum svo dæmi sé tekið.
Dýralæknarnir töluðu auðvitað
um sjúkdóma og dýravelferðarmál
líka – raunar var farið sérstaklega
yfir sjúkdómastöðu allra landanna
og staðan hjá okkur er sérstakt
öfundarefni hjá öðrum löndum. Hér
er sýklalyfjanotkun nánast óþekkt
og hér vex kjúklingurinn hvað best
af öllum löndum í heiminum ásamt
Nýja-Sjálandi, sem þýðir að hann
er heilbrigðari og vex því hraðar en
annars staðar,“ segir Jón.
Félög eggja og kjúklingabænda
héldu utan um verkefnið.
Framkvæmdastjóri félaganna er
Hildur Traustadóttir. Lífland lagði
til starfsfólk sem sá um öll mál
varðandi ráðstefnuhaldið. Eggja- og
kjúklingabændur eru afar þakklátir
þeim stuðningi.
Næst haldið í Finnlandi
Norðurlandaþjóðirnar skiptast á
með ráðstefnuhaldið; Noregur,
Svíþjóð, Danmörk og Finnland
halda fundinn tvisvar hver þjóð
og eftir það, eða níunda hvert ár,
er fundurinn haldinn á Íslandi. Vel
var mætt á ráðstefnuna, eða um 150
manns.
Í nóvember á næsta ári verður
ráðstefnan haldin í Turku í Finnlandi
og mun Hanna Hamina frá Finnish
Poultry Association halda utan um
það verkefni. /smh
Jón Magnús Jónsson, formaður Félags kjúklingabænda. Myndir / smh
Hildur Traustadóttir, framkvæmda-
stjóri félaga eggja- og kjúklinga-
bænda og Hanna Hamina frá Finnish
Poultry Association, sem mun halda
utan um næstu ráðstefnu í Finnlandi.
Ráðstefnusalurinn var þétt setinn á Grand hótel.
Fagfélög eggja- og kjúklingabænda á Norðurlöndum hittust í Reykjavík:
Góð sjúkdómastaða á Íslandi
er öfundsverð í þessum hópi
– segir formaður Félags kjúklingabænda
Eiríkur í Gýgjarhólskoti á fallegasta
lambhrútinn á Suðurlandi
Eiríkur Jónsson, bóndi í Gýgjarhólskoti í Biskupstungum, fékk fyrstu verðlaun fyrir að eiga fallegasta lambhrútinn
á Suðurlandi. Það er hrútur númer 164 sem fékk 90,0 stig. Fanney Ólöf Lárusdóttir afhenti honum verðlaunaskjöld.