Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 20182 FRÉTTIR Verð á minkaskinnum hefur verið lágt undanfarin þrjú ár, en árið í ár var verst þar sem söluverðið náði ekki nema um helmingi þess verðs sem kostar að framleiða hvert skinn. Verðfallið er minkabændum erfitt. Fimm minkabændur eru hættir frá því í nóvember og líklegt að fleiri bregði búi á næstu vikum. Einar E. Einarsson, bóndi að Syðra-Skörðugili og formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda, segir að minkarækt hér á landi hafi verið rekin með tapi undanfarin þrjú ár og að slíkt gangi ekki til lengdar. „Frá því í nóvember til dagsins í dag hafa fimm loðdýrabændur brugðið búi. Við erum þrettán eftir og nokkrir af þeim enn að hugsa sig um hvort þeir eigi að þrauka áfram eða hætta.“ Á árunum 1987 til 1989, þegar loðdýrabændur á Íslandi voru flestir, voru þeir 240. Sé litið til fjölda þeirra eftir aldamótin 2000 hafa þeir flestir verið 45. Erfiðir tímar Einar er ómyrkur í máli í bréfi sem hann sendi félagsmönnum SÍL fyrir skömmu. Í bréfinu segir hann meðal annars: „Þetta eru ekki léttir né einfaldir tímar fyrir minkabændur á Íslandi og eða minkabændur í öðrum löndum. Við höfum ekkert handfast um hvað muni gerast á mörkuðum næstu mánuðina en allar fréttir sem berast eru þó samhljóma um að verulega sé að draga úr framleiðslunni um allan heim. Við vitum að það þarf að gerast svo verðið á markaði hækki. Frá því í júní og til dagsins í dag hefur íslenska krónan lækkað um tæp 12% og vonandi á hún eftir að lækka um nokkur stig í viðbót á komandi mánuðum. Bjartsýni og þol hefur lengi verið einkenni minkabænda og vona ég að svo verði áfram.“ Viðleitni til að leysa vandann Einar segir að það sé komið ákveðið útspil frá ríkisvaldinu sem er fremur lágt miðað við það sem minkabændur fóru fram á en engu að síður viðleitni til að horfa fram á við og finna leiðir til að halda áfram. Einar segir að á fyrri hluta þessa árs hafi verið ákveðið að fara í viðræður við stjórnvöld um aðkomu þeirra að vanda greinarinnar. „Fyrst var farið af stað með hugmyndir um fóðurniðurgreiðslu eins og gert var á tíunda áratug síðustu aldar. En að afloknu júníuppboði var hins vegar orðið ljóst að samningur um einfalda fóðurniðurgreiðslu yrði ekki nægjanlegur þar sem allt stefni í að skinnaverð ársins yrði nálægt þrjú þúsund krónum sem síðan varð raunin að afloknu septemberuppboði. Í ágúst kom út minnisblað frá Byggðastofnun um stöðu og horfur í greininni ásamt tillögum til úrbóta. Síðan þá hefur stjórn SÍL unnið að því að fá fylgi við þessar tillögur og sérstaklega þann hluta þeirra sem miðaðist við að gerður yrði þriggja ára samningur við greinina og að á fyrsta ári, eða árið 2018, yrði greitt beint til bænda ákveðinn stuðningur og síðan yrði stuðningur til fóðurframleiðslunnar árin 2019 og 2020. Nú liggur orðið fyrir að þessi hugmyndafræði gekk ekki eftir og að ekki er vilji hjá fjárveitingarvaldinu til að fara í svo stóran pakka, en ýtrustu kröfur í skýrslunni gerðu ráð fyrir 200 milljónum á ári í þessi þrjú ár, eða samtals 600 milljónir á tímabilinu þar sem helmingur færi til bænda og helmingur til fóðurstöðva.“ Samþykkt Byggðastofnunar Í fjárlögum fyrir þriðju umræðu Alþingis kom fram tillaga um 30 milljóna tímabundið framlag til Byggðastofnunar vegna vanda greinarinnar. Jafnframt var þar lagt til að ráðherrar byggðamála og landbúnaðarmála hafi forustu um frekari greiningu á framtíð loðdýraræktar. Að sögn Einars var málið tekið fyrir í stjórn Byggðastofnunar í síðustu viku en þá lá þar einnig fyrir stjórn bréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og þær tillögur sem sveitarstjórnaráðherra og landbúnaðarráðherra hafa samþykkt og kynnt ríkisstjórn. Í ljósi þeirra tillagna samþykkti stjórn Byggðastofnunar á fundi sínum að hefja vinnu við stofnun nýs lánaflokks og að í fyrsta áfanga verði varið að lágmarki 100 milljónum til hans. Einar segir að framundan sé vinna við skilgreiningu og kröfur til nýja lánaflokksins en að henni eiga að koma auk fulltrúa Byggðastofnunar, fulltrúi ráðuneytis, SÍL og RML. Hver og einn bóndi þarf svo að sækja um stuðning og verður hver og einn metinn samkvæmt skilmálum og markmiðum lánaflokksins. Það er því ekki sjálfgefið að þessi leið bjargi öllum sem sækja um, að sögn Einars. Hvað er fram undan? „Næstu skref verða að fá niðurstöðu í hvað þessi nýi lánaflokkur muni hjálpa mikið, en vonandi mun hann nýtast þannig að hann hjálpi greininni að lifa af. Vissulega hefðum við viljað niðurstöðu sem væri meira í þá átt að gerður hefði verið þriggja ára samningur um stuðning við greinina. Þetta varð hins vegar niðurstaðan og nú vinnum við út frá því. Í bréfi ráðuneytisins kemur líka fram að koma eigi á fót sérstöku teymi til að vinna með hagsmunaaðilum og greina framtíðarhorfur greinarinnar. Það er jákvætt og vissulega er einnig mjög jákvætt að ríkisvaldið hafi þó þrátt fyrir allt komist að þeirri niðurstöðu að þeir vildu að á Íslandi yrði stunduð áfram minkarækt. Við höldum því áfram á næstu vikum og mánuðum að vinna með stjórnvöldum að uppbyggingu greinarinnar og vonandi fara að taka við betri tímar en verið hafa,“ sagði Einar að lokum. /VH Jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli mættu í miðbæ Selfoss laugardaginn 8. desember til að heilsa upp á bæjarbúa og syngja nokkur jólalög. Þeir komu á Dodge Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Mast minnir á að skila haustbók Matvælastofnun vekur athygli á að ef sauðfjárbændur skila ekki haustbók munu fyrstu greiðslum ársins 2019 verða frestað. Samkvæmt heimildum Bænda- blaðsins stendur til að flýta fyrstu stuðningsgreiðslu til sauðfjárbænda til 15. janúar, sem yrði tvöföld mánaðargreiðsla fyrir janúar og febrúar. Næsta greiðsla yrði þá ekki fyrr en í mars. Það er því mikilvægt fyrir sauðfjárbændur að senda inn haustskýrslu. Hægt er að hafa samband við RML til 21. desember og skila haustbók afurðaskýrsluhaldsins í Fjárvísi fyrir áramót. Þeir sem ekki gera það missa af mögulegum stuðningsgreiðslum í janúar. Heimilt er fella niður stuðnings- greiðslur þeirra framleiðenda sem standast ekki skilyrði um fullnægjandi afurðarskýrsluhald. Skila þurfti haustbók fyrir 12. desember sl. en til að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi sé metin fullnægjandi er miðað við að unnt sé að rekja uppruna og afdrif allra gripa í hjörðinni á einfaldan og öruggan hátt í samræmi við fyrirmæli laga og reglna þar að lútandi. /HKr. Verðskrá Bændablaðsins tekur breytingum um áramót. Dálksentimetri á hefðbundnum auglýsingum hækkar úr 1.550 kr. án vsk. í 1.600 krónur. Hækkunin nemur 3,2%. Ástæður breytinga á verðskrá blaðsins er hækkun vísitölu neysluverðs. Áskriftargjöld árið 2019 verða 10.900 krónur á ári og eldri borgarar fá áfram 50% afslátt. Smáauglýsing með mynd mun kosta 5.700 krónur m. vsk. og textaauglýsing 2.300 kr. Verð á smáauglýsingu á bbl.is verður 1.050 kr. + vsk. Tímagjald fyrir uppsetningu auglýsinga verður 8.500 kr. + vsk. og niðurfellingargjald 15% af brúttóverði auglýsingar. Verðskrá blaðsins er birt í heild sinni á bbl.is. Fyrsta blað eftir áramót kemur út 17. janúar. /TB Breytingar á verðskrá Mjög alvarleg staða í loðdýraeldi vegna langvarandi verðfalls á mörkuðum: Fimm minkabændur hættir frá því í nóvember – Einungis 13 loðdýrabú eftir á landinu en voru flest 240 á níunda áratugnum og óvissa um framhaldið íslenskra loðdýrabænda. starfandi í greininni af þeim frumkvöðlum sem lærðu loðdýrarækt í Noregi Mynd / HKr. Landbúnaðarsýning aftur árið 2021 Stórsýningin Íslenskur land- bún aður verður haldin að nýju árið 2021. Þetta var tilkynnt á dögunum í fréttatilkynningu frá Ritsýn sf. sem heldur sýninguna. Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Ritsýnar, sagði í samtali við Bændablaðið að sýningin í haust hefði tekist einstaklega vel og strax hefðu vaknað spurningar hjá gestum og sýn ingaraðilum um framhaldið. Gerð var skoð ana könnun á meðal sýnenda að sögn Ólafs. „Meiri hluti var þeirrar skoð- unar að hæfi legt væri að halda sýn- ing una á þriggja ára fresti. Í ljósi þeirrar niðurstöðu höfum við pantað sýningarsvæði í Laugardals höllinni árið 2021. Verða sýningardagarnir frá 15. til 17. október og við munum opna fyrir pantanir þegar nær dregur,“ segir Ólafur. /TB kvæmda stjóri Ritsýnar. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.