Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 53
mánuðum. Þarna er um að ræða
880 fermetra byggingu, þar af er
flugskýlið 540 fermetrar. Síðan
er 220 fermetra farþegaafgreiðsla
og snyrtingar og 120 fermetra
skrifstofuhæð þar fyrir ofan.
Við fluttum þarna inn um
miðjan nóvember síðastliðinn og
opnuðum þá afgreiðslu fyrir okkar
viðskiptavini. Nú erum við að flytja
verkstæðið austur. Við fengum innri
úttekt í lok nóvember og nú eru
flugmálayfirvöld að ljúka við að
taka út aðstöðuna.“
Jón segir að markaðssetningin
hafi frá upphafi verið í þeirra eigin
höndum. Fyrst með uppsetningu
á skilti upp við veg og dreifingu
bæklinga til ferðamanna, en nú síðari
ár á netinu.
„Síðustu fjögur árin hefur orðið
stöðug aukning í fyrirframbókunum
í gegnum starfsmenn okkar í
markaðssetningu og sölumálum.
Svo er þetta að breytast enn frekar
með auknu samstarfi við aðra aðila
í ferðaþjónustu.“
Með þrjár flugvélar
og líka komin með þyrlu
„Við erum með eina tveggja farþega
vél og tvær aðrar sem taka sjö og
níu farþega hvor. Svo erum við
með eina öfluga eins hreyfils vél
sem tekur fimm farþega, en hún er
mest notuð og hentar m.a. vel fyrir
ljósmyndara. Nú erum við líka að
hefja rekstur á þyrlu sem tekur fimm
farþega og ekki hefur verið áður á
þessu svæði. Þyrlan kom til okkar
í lok nóvember, en þetta er alveg
nýtt í okkar starfsemi og munum
við bjóða upp á ýmsar nýjungar
tengt þessu þyrluflugi. Þyrlur skapa
okkur breiðari grunn og hægt er að
fljúga þeim við aðrar aðstæður en
venjulegum flugvélum.“
Hann segir að allt viðhald á
flugvélum og þyrlu sé einnig í
þeirra höndum, en það getur verið
stór póstur í svona rekstri. Þá
segir Jón að lítill greinarmunur
sé auk þess gerður í regluverkinu
og skriffinnskuskyldum á rekstri
lítilla félaga eins og Atlantsflugi og
risaflugfélaga á borð við SAS, KLM
eða British Airways.
„Við erum með sama doðrantinn
til að fara eftir og sömu reglurnar.“
Frábær vitnisburður flugfarþega
Boðið er upp á mismunandi verð
samkvæmt gjaldskrá í samræmi við
fjölbreytt leiðaval í útsýnisfluginu.
„Við höfum reyndar alltaf lagt
áherslu á að við erum ekki að
selja ferðir heldur upplifun. Besti
vitnisburðurinn um það er það sem
fólk skrifar á ferðasíðu eins og Trip
Advisor.“
Af handahófi veljum við
umsögn Andy Mumford frá
Lissabon í Portúgal sem skrifaði
m.a. eftirfarandi á Trip Advisor 2.
september síðastliðinn:
„Ég flaug með Atlantsflugi
í júlí sem leiðsögumaður fyrir
ljósmyndaravinnuhóp til Íslands.
Mín upplifun var stórkostleg. Í
gegnum e-mail samskipti reyndust
þau sérlega hjálpleg við að
skipuleggja flug yfir ár og hálendið.
Svo þegar flogið var reyndist
flugmaðurinn hafa einstaklega
mikla þekkingu á svæðinu. Flaug
hann varlega með okkur þvers og
kruss eftir leiðinni sem ákveðin var
til að tryggja að fólkið beggja vegna
í vélinni fengi gott útsýni og missti
ekki af neinu.
Flugið var frábært og útsýnið
algjörlega ótrúlegt svo maður stóð
á öndinni yfir fjölbreytileikanum í
landslaginu. Ég fer þangað aftur á
næsta ári og mun örugglega fara í
annað flug með Atlantsflugi.“
Miklir möguleikar í
mikilfenglegri náttúru
„Við sjáum í þessu mikla möguleika
enda eru að koma um ein milljón
ferðamanna í Skaftafell á hverju
ári. Þá hefur staðurinn gríðarlega
sérstöðu með mikilfenglega náttúru í
návist við fjölda eldfjalla,“ segir Jón.
Talandi um eldfjöll, eru þau að
hafa áhrif á ykkar starfsemi eins
og t.d. vegna hugsanlegs eldgoss í
Öræfajökli?
„Já, við erum inni í rýmingar-
áætlun almannavarna, en þar
erum við rétt utan við hugsanlegt
flóðaáhrifasvæði ef til eldgoss
kemur. Hins vegar veit enginn hvar
mögulegt gos gæti komið upp, það
eru fleiri þekkt eldfjöll nær okkur
á svæðinu en Öræfajökull, eins og
megineldstöðin í Kjós í Morsárdal.
Svo er stutt í Grímsvötn og Lakagíga
svo eitthvað sé nefnt.“
Mögulegt gos í Öræfajökli farið
að vekja athygli útlendinga
Jón segir að áhyggjur vísindamanna
af Öræfajökli og stöðugir skjálftar
og landris hafi vakið athygli m.a. út
fyrir landsteinana.
„Við fórum ekki að taka eftir þessu
fyrr en um vorið 2017 og það þótti
mjög óvenjulegt og skjálftavirknin
er enn til staðar. Þetta er farið að
vekja athygli erlendis, við vorum
með fólk frá þýskri sjónvarpsstöð
uppi á Öræfajökli sunnudaginn
2. desember, en þau eru að vinna
umfjöllun um eldstöðina.
Við höldum eins og aðrir á
svæðinu samt bara okkar striki. Það
getur allt eins verið að þessi virkni
stöðvist, en það veit enginn með
vissu hvað þarna kann að gerast.
Svo höfum við verið að fylgjast
mjög náið með því sem er að gerast
í Grímsvötnum, svo eru Esjufjöll,
Kverkfjöll, Bárðarbunga, Askja og
Lakagígar.“
Undanfarin ár hafa menn
mjög horft á auglýsingagildi
eldgosa á Íslandi. Þar varð gosið
í Eyjafjallajökli heimsfrægt á
svipstundu, enda lokaði það
flugumferð um tíma í allri Evrópu.
Er þá ekki nærtækast að líta svo á að
næsta gos hafi bara enn betri áhrif á
ferðamannþjónustuna?
„Ég veit það nú ekki. Ég læt mér
nægja að vísa í orð jarðfræðingsins
Þorsteins Sæmundssonar sem
sagði við mig í vor, þegar við
vorum að fljúga með hann upp á
Svínafellsheiði, að við Íslendingar
værum búnir að vera heppnir með
ansi margt sem tengist eldsumbrotum
á síðustu árum. Hann vildi meina að
mikið lán hafi verið á okkur varðandi
það hvar hafi gosið, á hvaða tímum
og hvað við höfum fengið hagstæðar
vindáttir. Þetta er ekki sjálfgefið,“
segir Jón.
Flugskýlið mun verja
flugvélaflotann
Hann segir fólk á þessu svæði taka
þessu með ró og það ætli þau líka að
gera. Hins vegar sé ein af ástæðum
fyrir byggingu flugskýlisins ekki
síst sú að þannig geti þau varið
flugvélarnar fyrir ösku jafnt sem
veðri ef til eldgoss kæmi einhvers
staðar í nágrenninu.
Lognið í Skaftafelli gerði
þenslumæli óvirkan
„Annars er mjög oft logn þarna
í skjóli jökulsins og veðrið getur
verið jafn gott og það getur verið
slæmt þegar mikið blæs,“ segir Jón.
Nefndi hann til staðfestingar á sögu
sinni um lognið að á dögunum hafi
þau flogið upp Svínafellsheiði vegna
sjálfvirks þenslumælis Veðurstofu
Íslands sem þar er staðsettur og
sem var hættur að virka. Voru menn
helst á því að hann hefði fokið út í
veður og vind. Búnaðurinn var hins
vegar á sínum stað og föstudaginn
30. nóvember fóru aftur að berast
merki frá mælinum. Þá kom í
ljós að það hafði verið svo mikið
logn á heiðinni um nokkurn tíma
að vindrafstöð snerist ekki til að
hlaða inn á rafhlöður. Þá var líka of
dimmt til að sólarrafhlöður dygðu
til að framleiða nægt rafmagn.
Þetta hefur verið fært til bókar í
sveitinni til sannindamerkis um
lognið á svæðinu. Stuttu seinna
kom reyndar hvellur með allt
að 70 metra vindi á sekúndu á
flugvellinum /HKr.