Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201854 LÍF&STARF Útgáfugleði í Sigluvík á Svalbarðsströnd: Alsæl og þakklát inn að hjartarótum yfir viðtökunum – segir Kristín S. Bjarnadóttir hjá Blúndum og blómum „Ég er alsæl og þakklát inn að hjartarótum. Það er alls ekki sjálfgefið þótt maður fái hugmynd í kollinn um að búa til sýningu með 19 þátttakendum inni á heimili sínu að viðbrögðin verði svona fram úr björtustu vonum,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir í Sigluvík á Svalbarðsströnd, sem efndi til Útgáfugleði á heimili sínu nýverið og bauð öðru handverks- og listafólki að vera með. Á bilinu 8–900 manns lögðu leið sína í Sigluvík og skoðuðu það sem til sýnis var. Kristín hefur mörg undanfarin ár gefið út fimm mismunandi gerðir af dagatölum með eigin ljósmyndum og texta, auk korta, m.a. jólakort, samúðarkort og tækifæriskort, en útgáfan er undir nafninu Blúndur og blóm. Hún hefur jafnan blásið til útgáfuhátíðar þegar ný dagatöl og kort líta dagsins ljós og undanfarin ár fengið Huldu Ólafsdóttur í Hjartalagi til liðs við sig. Nú spýttu þær stöllur heldur betur í lófana og voru alls 19 sýnendur hér og hvar um íbúðarhúsið í Sigluvík. Kristín er hjúkrunarfræðingur með sérhæfingu í líknarhjúkrun og starfar við sitt fag hjá Heimahlynningu á Akureyri. Eiginmaður hennar er Birgir Hauksson, kjötiðnaðarmaður hjá Kjarnafæði. Þau hjónin hafa undanfarinn áratug séð um stofnútsæðisræktun á gullauga kartöflum, en þau tóku við af tengdaforeldrum hennar og eru með ræktunina í Fífilgerði í Eyjafjarðarsveit. „Við erum bæði alin upp í sveit og á þeim tíma sem kartöflurækt var mikil, fór fram á mörgum bæjum við Eyjafjörð,“ segir Kristín sem er frá Svalbarði á Svalbarðsströnd en Birgir er frá Fífilgerði. Fimm mismunandi dagatöl „Ég hef alla tíð haft óbilandi áhuga á að fegra umhverfi mitt, föndra og finna gömlum lúnum hlutum nýtt hlutverk. Út frá því áhugamáli kviknaði áhugi á að stilla upp og taka myndir af ýmsu gömlu, bæði úti og inni, og eiginlega varð það kveikjan að því að ég fór að gefa dagatölin út,“ segir Kristín. Fimm mismunandi gerðir dagatala eru í boði, notalegar stemningmyndir prýða þau öll, auk þess sem Kristín semur texta til innblásturs fyrir hver mánaðamót. Bæði er um að ræða borð- og veggdagatöl, þau eru í tveimur stærðum auk Skipulagsdagatals fjölskyldunnar, en það hefur þann eiginleika að hver og einn innan fjölskyldunnar á sinn dálk til að fylla inn í fyrirfram og þannig hafa allir á heimilinu sömu yfirsýn við væntanlega viðburði. Þá gefur Kristín út Íslenska barnadagatalið, sem er ríkulega myndskreytt með ljósmyndum af íslenskum dýrum og fleiru áhugaverðu, m.a. myndamerkingum, leiðbeiningar og brosandi límmiðar til að merkja inn gleði- og tilhlökkunardaga. „Þannig verður fókusinn sjálfkrafa á það jákvæða í tilverunni,“ segir Kristín. Dagatölin er hægt að fá í gjafapakkningu og hafa þau verið vinsæl til gjafa. Miðlum birtum og bjartsýni Kristín nýtir ljósmyndir af dagatölunum einnig í útgáfu tækifæriskorta og sendir frá sér 12 ný kort á hverju ári. Tilganginn segir hún vera að miðla birtu og bjartsýni. Jólakort með kveðju og samúðarkort með hlýjum orðum eru einnig í boði. „Þetta hefur eftir því sem árin líða undið svolítið upp á sig og orðið umfangsmeira,“ segir hún. Þar kemur samstarfið við Huldu við sögu, en hún er grafískur hönnuður og hefur m.a. aðstoðað við uppsetingu á verkum Kristínar. „Við höfum hjálpast að um árin og byggt í kringum okkur ágætt tengslanet, en með því að stækka Útgáfugleðina svo um munar langar okkur að útvíkka það. Samkomur af þessu tagi veita alltaf mikinn innblástur, þær efla mann og styrkja,“ segja þær Kristín og Hulda en einkar vel tókst til með útgáfugleði ársins 2018 þannig að aldrei er að vita hvað verður næst. /MÞÞ Kristín S. Bjarnadóttir í Sigluvík, hún er hjúkrunarfræðingur og starfar við fagið en stundar að auki þó nokkra útgáfustarfsemi undir nafninu Blúndur og blóm, m.a. dagatöl og kort af ýmsu tagi og Hulda Ólafsdóttir, grafískur hönnuður sem rekur félagið Hjartalag. Kristín og Hulda stóðu fyrir útgáfugleði í Sigluvík nýverið. Sigluvík er á Svalbarðsströnd, um 10 mínútur tekur að aka þangað frá Akureyri. en Hulda hefur aðstoðað við uppsetningu undanfarin ár. MENNING&LISTIR Sigurður Sigurðarson dýralæknir við hljóðfærið og væntanlega að sinna faglegu erindi í farsímanum sínum. Lífslög Sigurðar dýralæknis – Tveir diskar og 60 lög sem samin voru á 60 árum Sigurður Sigurðarson dýra læknir hefur gefið út Lífslög Sigurðar dýralæknis sem inniheldur 60 sönglög á tveim geisladiskum sem hann hefur samið á 60 árum, eða frá 1958 til 2018. Textar fylgja lögunum og 43 þeirra eftir Sigurð sjálfan en aðrir eftir kunningja hans. Til liðs við sig hefur hann fengið 28 söngvara, þar á meðal Diddú, Bergþór Pálsson og grunnskólabörn. Þá eru á diskinum kvæðamenn og m.a. María Jónsdóttir á Kirkjulæk, sem varð 100 ára 15. apríl síðastliðinn. Þykja öll lögin á plötunni mjög falleg og tekið er til þess að þau séu líka sérlega söngvæn. Hópur kunningja og vina „Flestir söngvararnir á plötunni eru kunningjar mínir eða í ætt við mig,“ sagði Sigurður í samtali við Bændablaðið. „Ég hef notað mér það óspart.“ Landslið söngvara Um sönginn á plötunum sér eftirfarandi listafólk: Hörpukórinn á Selfossi með einsöngvurum undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar syngur 3 laganna, Eldeyjarkórinn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar með einsöng flytur eitt lag og Álftagerðisbræður eitt lag undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar. Alþekktir og minna þekktir söngvarar, alls 28, syngja 1–3 lög hver. Yngstu söngvarar eru grunn- skólanemar, 11 og 12 ára, og þeir elstu kvæðakonur, önnur nær því 100 ára og hin rúmlega 100 ára. Hér er saman komið landslið söngvara. Þeir eru flestir úr hópi ættingja, fornvina eða kunningja Sigurðar. Stemmur eða kvæðalög eru 4, einn sálmur. Kórlög eru 5. Hitt eru einsöngslög. Landslið söngvara: Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir grunnskólanemi, Lambhaga Rangárvöllum. Ragnar Bjarnason – tónlistarmaður, Ferjuvaði 7 í Reykjavík. Hjördís Geirsdóttir, söngvari og fjörkona frá Byggðarhorni í Flóa. Álftagerðisbræður, Sigfús, Gísli, Pétur og Óskar. Ingimar Halldórsson frá Akranesi, trésmiður og kvæðamaður, Reykjavík. Egill Árni Pálsson, söngvari og söngkennari, Reykjavík. Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður og kvæðamaður, Reykjavík. Jón Hólm Stefánsson, bóndi og fasteignasali, Gljúfri, Ölfusi. Gunnar Örn Guðmundsson dýralæknir, Hvanneyri. Marta Kristín Friðriksdóttir úr Reykjavík, söngnemi í Vín. Signý Ólöf Stefánsdóttir skólanemi, Gili, Ölfusi. Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusöngkona, Túnfæti, Mosfellsbæ. Gísli Stefánsson söngvari, Selfossi. Ragnheiður Ólafsdóttir, tónlistarkennari og kvæðakona, Álftanesi. Þuríður Sigurðardóttir söng- og listakona frá Laugarnesi. Óskar Pétursson frá Álftagerði, söngvari og bifvélvirki, Akureyri. Þórður Brynjarsson menntaskólanemi, Refsstöðum Borg. Viktor Kári Garðarsson grunnskólanemi, Selfossi. Snorri Hjálmarsson bóndi, hestam. söngvari og hjálpari, S-Fossum, Borg. Sigurður Torfi Guðmundsson, Garðabæ, dómvörður í Landsrétti. Signý Sæmundsdóttir, söngvari og tónlistarkennari, Reykjavík. Bergþór Pálsson óperusöngvari í Reykjavík. Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjum í Mosfellsbæ. Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari, Reykjavík. Steindór Andersen, sjómaður, kvæðamaður og smiður, Hafnarfirði. Þór Sigurðsson, setjari og hestamaður Akureyri. María Jónsdóttir frá Kirkjulæk og Guðríður B. Helgadóttir frá Austurhlíð, listamenn báðar. Oddur Jónsson óperusöngvari, Hæðarbyggð 5, Garðabæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.