Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 20186 Nú þegar skammt er til jóla og áramóta er siður að rifja upp það sem hæst hefur borið á árinu sem er að líða. Það er sannarlega margt sem gengið hefur á í íslenskum landbúnaði á árinu 2018. Það hafa verið erfiðleikar víða og sést ekki fyrir enda sumra þeirra eins og í sauðfjárrækt og loðdýrarækt. Afurðaverð í báðum þessum greinum hefur verið í lágmarki síðustu árin og reksturinn neikvæður. Langt er síðan að teknar voru upp viðræður við stjórnvöld um stöðuna en enn sem komið er hefur þeim ekki lokið með ásættanlegri niðurstöðu en samtalið heldur áfram. Sótt að innlendri framleiðslu Það hefur verið sótt að innlendri framleiðslu og líkur eru á að svo verði áfram. Tollasamningur við Evrópusambandið tók gildi 1. maí sl. og um næstu áramót og næstu tvenn þar á eftir eykst tollfrjáls innflutningur hingað verulega, á sama tíma og sterk króna og lokaðir markaðir hafa gert okkur erfitt fyrir með útflutning. Hagsmunabarátta heildsalanna í landinu gekk áfram vel á árinu. Eftir að hafa unnið mál fyrir EFTA-dómstólnum þá höfðu þeir einnig sigur fyrir Hæstarétti til að fá hnekkt takmörkunum á innflutningi á ófrosnu kjöti, ógerilsneyddri mjólk og ógerilsneyddum eggjum. Rök um búfjár eða lýðheilsu voru þar að engu höfð því að markaðurinn er öllum slíkum staðreyndum æðri. Bændur hafa lagt á það áherslu að leitað verði pólitískra lausna til að standa vörð um þá sérstöðu sem felst í okkar viðkvæmu búfjárstofnum og okkar framleiðsluháttum sem felast í lágri tíðni sýkinga og lítilli sýklalyfja og varnarefnanotkun. Það er óljóst hvernig sú vegferð endar en miklu skiptir líka að greina betur á milli innlendrar og innfluttrar framleiðslu á markaði. Neytendur eru velviljaðir landbúnaði Neytendur eru velviljaðir íslenskum landbúnaði en þá verður líka að tryggja það að þeir geti fengið að vita hvað þeir eru að kaupa hverju sinni. Þá er ekki bara verið að tala um í stórmörkuðum heldur líka þar sem matvæli eru fram borin – til dæmis á veitingahúsum og í mötuneytum. Ástæða er til að hvetja neytendur til að spyrja eftir upprunanum sé hann ekki gefinn upp. Það er einfaldlega sjálfsögð krafa að þessar upplýsingar liggi fyrir. Stjórnvöld geta þarna stigið fastar fram og lagt þá kröfu á seljendur matvæla að uppruninn liggi ávallt fyrir. Það er líka umhugsunarefni fyrir stjórnvöld hvort ekki sé eðlilegt að hið opinbera setji sér innkaupastefnu sem miðist við ákveðna framleiðsluhætti. Sé ekki hægt að upplýsa um þá ætti hið opinbera í það minnsta að ganga á undan með góðu fordæmi og takmarka innkaup við afurðir þar sem upplýsingar liggja fyrir um lyfja- og varnarefnanotkun, kolefnisfótspor, velferð dýra, aðbúnað starfsfólks og annað sem skiptir máli. Krafa neytenda um meiri upplýsingar fer vaxandi og við eigum að vinna að því að upplýsingagjöf verði hin almenna regla. Þurfum að huga að fæðuöryggi Það þarf líka stærri sýn á landbúnaðinn í heild. Það er meiri óróleiki í veröldinni, þó hér sé ekki verið að spá neinum ófriði þá virðist stundum ekki mega mikið út af bregða. Öfgasjónarmið njóta meira fylgis en áður en lausnamiðaðar málamiðlanir síður. Athyglin næst helst með nógu miklum og stórum upphrópunum. Þjóðir heims þurfa um leið að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og sumir neita enn að horfast í augu við þær. Hvað þýðir þetta allt? Jú, það er skynsamlegt að huga að öryggi þjóðarinnar í víðum skilningi, þar með talið fæðuöryggi. Það er ekki endilega víst að við getum alltaf keypt allt sem við viljum erlendis frá og ættum við ekki að minnsta kosti að hugsa um hvað við ætlum að gera ef einhver slík vandamál koma upp. Reyndar hafa sumir einmitt bent á hlutverk landbúnaðarins í þjóðaröryggismálum. Það gerði til dæmis Ólafur Ragnar Grímsson, fv. forseti landsins, á ráðstefnu um fullveldi og þjóðaröryggi fyrir skemmstu. Það hefur forsætisráðherra líka gert og reyndar er vikið að fæðu- og matvælaöryggi í þjóðaröryggisstefnu landsins sem samþykkt var á Alþingi fyrir rúmum tveimur árum. Það er eitt skref en það á enn eftir að útfæra þá stefnu. Það má ekki gleymast. Bændur eru fjölmennasti hópur vörslumanna landsins Fyrir nokkrum dögum skrifuðum við umhverfisráðherra undir sameiginlega yfirlýsingu um samstarf í náttúrverndarmálum. Meiningin er fyrst að láta greina hvernig bændur geta komið meira að skipulegu náttúruverndarstarfi. Bændur eru vissulega fjölmennasti hópur vörslumanna landsins og búa yfir mikilli og verðmætri þekkingu á náttúrunni og öllum hennar síbreytileika. Það hefur stundum verið ágreiningur um þessi mál – sumir verndunarsinnar hafa talið að náttúruvernd og nýting gætu aldrei farið saman og sumir bændur hafa talið að verndun þýddi algert nýtingarbann. Hvorugt er rétt og með þessari yfirlýsingu er ætlunin að leita fleiri sameiginlegra flata á þessu mikilvæga máli. Ég vænti þess að vel takist til. Að lokum þakka ég lesendum Bænda- blaðsins samfylgdina á árinu og óska ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs. Árið 2019 þurfum við að nýta vel til uppbyggingar og eflingar íslensks landbúnaðar. Lifið heil. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.500 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.250 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er mikil áhersla lögð á að hækka kolefnisskatt. Virðist tilgangurinn helst vera að neyða kaupendur bifreiða til að snúa sér frekar að rafmagnsbílum heldur en að kaupa hefðbundna bíla sem brenna bensíni og dísilolíu. Í sjálfu sér er ekkert út á það ætlunarverk að setja að menn dragi úr loftmengun, en er stjórnmálamönnum algjörlega fyrirmunað að beita annarri hugsun en refsingum til að knýja fram slík sjónarmið? Það er hægt að fara mun áhrifaríkari leiðir til þess bæði að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og stórbæta þjóðarhag um leið. Leið sem yrði öllum til góðs, en skaðaði ekki stóran hóp fólks eins og kolefnisskatturinn gerir gagnvart lántakendum, barnafólki, öryrkjum og öldruðum sem og íbúum landsbyggðarinnar. Þótt áherslan á kolefnisskattinn sé mjög áberandi í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, þá er þessi áætlun á margan hátt ágæt. Þar er sérstaklega einn þáttur sem gæti skapað mikla þjóðhagslega hagkvæmni ef rétt er að staðið. Hann er númer níu í aðgerðarplani áætlunarinnar og ber heitið: „Innlend eldsneytisframleiðsla úr plöntum og úrgangi.“ Samkvæmt planinu á að setja í gang vinnu við áætlunargerð í því máli einhvern tíma á árinu 2019. Ef litið er nánar á möguleikana sem felast í innlendri eldsneytisframleiðslu, þá er kannski ekki endilega þörf á að skipa fjölda nefnda til að ræða það mál og kosta til þess stórfé. Þegar um er að ræða eldsneytisgerð úr innlendum lífmassa og úrgangi, þá kemur aðallega tvennt upp í hugann. Það er framleiðsla á því sem nefnt hefur verið lífdísilolía, m.a. úr repju og öðrum olíuríkum jurtum, og gasframleiðsla úr dýraúrgangi eins og mykju og með gerjun plantna. Það er reyndar til þriðja leiðin sem yrði líka kolefnishlutlaus, en það er að framleiða dísilolíu, bensín og flugvélaeldsneyti úr mó sem nóg er til af á Íslandi og vetni sem auðvelt er að framleiða hér með vistvænum hætti. Með því að virkja níundu greinina í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum væri hægt að slá margar flugur í einu höggi og tryggja um leið orkusjálfbærni landsins. Í fyrsta lagi væri hægt að kolefnisjafna eldsneytisbruna í landbúnaði samhliða því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í öðru lagi myndi slík framleiðsla styrkja byggðir og gera landbúnað sjálfbærari. Í þriðja lagi væri hægt að draga hratt úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti sem ylli verulegum virðisauka t.d. í landbúnaði og væri um leið atvinnuskapandi. Í fjórða lagi sparaði innlend framleiðsla á eldsneyti dýrmæt gjaldeyrisútlát og bættu þar með þjóðarhag verulega. Það eina sem þarf er framkvæmdaáætlun þar sem ríkið býr til hvata til að hrinda slíkum verkefnum af stað af krafti og með góðum stuðningi. – Það sem þarf EKKI er að draga úr sjálfsbjargarviðleitni Íslendinga með refsisköttum í formi kolefnisgjalds. Popúlískar innfluttar skyndilausnahugmyndir af þeim toga eru fátt annað en sýndarmennska og friðþæging fyrir stjórnmálamenn sem eru uppteknari af að bjarga heiminum en að sinna þörfum eigin þegna sem kusu þá til starfa. Að svo mæltu óska ég lesendum Bændablaðsins og landsmönnum öllum gleðilegra jóla með þakklæti fyrir árið sem er að líða. Ég óska þess einnig að árið 2019 færi Íslendingum gæfu og aukið réttlæti, ekki síst til handa öldruðum, öryrkjum og þeim sem neðst standa í þjóðfélagsstiganum. Hörður Kristjánsson Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – augl@bondi.is Vefur blaðsins: www.bbl.is bbl@bondi.is – Teikning á forsíðu: Þorsteinn Davíðsson ÍSLAND ER LAND ÞITT Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands sindri@bondi.is Hnífsdalur við Ísafjarðardjúp á milli Skutulsfjarðar og Bolungarvíkur. Þessi mynd var tekin eftir mikla ofankomu í mars árið 1995. Í dag er myndin Mynd / HKr. Orkusjálfbærni Nýtum 2019 til eflingar íslensks landbúnaðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.