Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 61

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 61
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 61 2 0 1 9 Þverholti 13 • Sími 511 1234 • gudjono@gudj ono.is • www.gudjono. is D a g a t a l 2019 Dagatalskubbar Mánaðartöl Dagatalsspjöld Jólagjafapappír Jólakort Merkimiðar www.gudjono.is · Sími 511 1234 Sjá nánar á heimasíðu www.gudjono.is Dagatalskubbar - og jólapappír Land undir urðunarstað Sorpstöð Suðurlands bs. óskar eftir landi undir urðunarstað til kaups eða leigu. Æskileg staðsetning er á svæðinu frá Hellisheiði í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Æskilegt er að landið sé vel staðsett gagnvart en fjarri vatnsverndar- og útivistarsvæðum. Lágmarksstærð lands er 30 ha. Á staðnum yrði lífrænum úrgangi. Áætlaður rekstrartími er 30 ár en leigutími að lágmarki 60 ár ef um leigu yrði að ræða. Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is Gluggar og hurðir fyrir íslenskar aðstæður Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS selt tréglugga og hurðir á Íslandi Gluggar og hurðir með eða án álkápu, allir RAL litir í boði að innan og utaverðu Afhendist glerjað og tilbúið til uppsetningar Afgreiðslutími 5-8 vikur Sjá nánar á: viking.ee Nánari upplýsingar gefur Ólafur í síma 480 0009 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá -25% afsláttur af völdum hestavörum Múlar • Taumar • Pískar • Skeifur • Fjaðrir • Skaflar Hófhnífar • Burstar • Klórur • Kambar Reiðhanskar Heyboltar • Stallmúlar • Hófhlífar • Hnakkastatíf Beislishanki • Hófolía • Hestasjampó • Faxúði OPIÐ BREIDD Virka daga 8-18:30 Laugardaga 10-18 Sunnudaga 11-17 SELFOSS Virka daga 8-18 Laugardaga 10-16 Sunnudaga LOKAÐ SUDURNES Virka daga 8-18 Laugardaga 10-14 Sunnudaga LOKAÐ MENNING&BÆKUR Fræðimaðurinn Þórður Tómasson sem kenndur er við Skóga undir Eyjafjöllum sendi nýlega frá sér bók um heyannir á Íslandi. Í bókinni fjallar Þórður um heyskap fyrri alda og fléttar saman þjóðfræði og atvinnusögu landsmanna. Í bókinni lýsir Þórður verkfærum og vinnubrögðum, heytorfi, reipum og reiðingum, engjaheyskap, veðurboðum og margvíslegum siðum og orðfæri sem tengdist heyönnum. Sagt er frá konum sem gengu að slætti og sömuleiðis frá tækninýjungum eins og „rakstrarkonum“ sem festar voru framan á ljái, að ógleymdum hestasláttuvélunum sem ruddu sér til rúms í upphafi síðustu aldar. Höfundur leitar víða fanga, bæði í rituðum heimildum og hjá fjölmörgum heimildarmönnum, og textinn er kryddaður sögum, vísum og kvæðum. Útgefandi er Bókaútgáfan Sæmundur. Ákvæðablettir eða álagastaðir Hér er gripið niður í bókinni þar sem fjallað er um ákvæðastaði í engjum og túnum. „Ákvæðablettir eða álagastaðir eru dreifðir um allt Ísland og um þá er völ fjölda heimilda á víð og dreif. Hér verður greint frá skyldum sem lítt hefur verið gaumur gefinn í íslenskri þjóðfræði og hljóta að eiga fornar rætur. Alfarið tengjast þeir heyönnum og eiga sér einkunnir kenndar við þerri, regn (rosa) og fok. Ég kýs að nefna þá ákvæðabletti. Huldufólk og dularverur hafa helgað sér marga staði og lengst af hélt þjóðin til mestra muna rétt þeirra í heiðri. Um þetta eru fjölmörg vitni í þjóðsögum og þjóðfræðaritum. Ég færi hér nokkur fram úr því umhverfi sem er mér nærtækast. Þegar Jón sonur Jóns Ísleifssonar fálkafangara, var ókvæntur, var hann eitt sumar kaupamaður á Hörgslandi á Síðu hjá Jóni hospítalshaldara Jónssyni, Vigfússonar frá Varmahlíð. Í túninu í Hörgslandi er hóll einn, sem kallaður er Álfahóll og var það forn trú að ekki mætti slá hólinn. Því ef það væri gert kæmu veður svo mikil að skaði yrði að og hafði hóllinn ekki verið sleginn í manna minnum. Jón kaupamaður hafði litla trú á slíku og einn morgun þegar sláttumennirnir voru út komnir og voru að slá í kringum hólinn, var veður heiðríkt og stillilogn. Þá talar Jón kaupamaður um að það mundi gera lítið til þó hann slægi nokkuð lítið upp í hólinn, því honum þætti hann grasmikill. Vinnumennirnir vildu það ekki, en húsbóndinn var ekki út kominn. En svo fór að Jón réði og sló nokkuð upp í hólinn. Síðan settust þeir niður hjá hólnum og fóru að brýna og var blálogn enn. Á meðan þeir eru að brýna, fer að hvessa í einu kasti. Hey var mikið úti, bæði flatt og í sæti. Hvessir hann nú svo snögglega að hey fer óðum að fjúka. Í þessu bili kemur húsbóndinn út til þeirra og fer að tala um við þá að heyið muni ætla að fara allt út í veðrið. En vinnumenn segja að það sé von til því Jón kaupamaður hafi slegið upp í hólinn þó þeir hafi varað hann við að gera það. Jón kaupamaður situr agndofa og fer að hugsa með sér að þetta sé þó eitthvað óskiljanlegt og víst muni heyskaðinn allur sér verða kenndur. Og eftir litla þögn stendur hann upp, tekur orf sitt og segir hátt svo allir heyra, að ef nokkur vera sé í hólnum eða hér nærri sem orsakað hefði þennan mikla storm þá sé hún eins máttug til að láta lygna aftur, og ef hún ekki geri það þá skuli hann nú þegar slá allan hólinn og berja hann að utan eins og hann geti, hvað sem á eftir komi, og er illur í skapi og býr sig þegar til að fara að slá hólinn. En að þessum orðum töluðum fer heldur að draga úr veðrinu og bráðlygnir svo á skammri stundu og varð enginn heyskaði, var logn og heiðríkja eftir um daginn. Almennt talað var djúp virðing borin fyrir álagablettum. Brot gegn þeim heyrðu til undantekninga. Bóndi í slægjuþröng lét þá í friði. Í Barðstrendingabók 1942 (bls. 89) segir frá Móbergi á Rauðasandi, býli í mikilli landkreppu: „Álagablettur er þar í landinu, grösugur mjög, sem ekki má slá, eftir gamalli trú og þykir ekki góðri lukku stýra er út af er brigðið.“ Heyannir - Um baráttu þjóðar fyrir lífi sínu: Álagablettir í engjum og túnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.