Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 61
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 61
2 0 1 9
Þverholti 13 • Sími 511
1234 • gudjono@gudj
ono.is • www.gudjono.
is
D a g a t a l
2019
Dagatalskubbar
Mánaðartöl
Dagatalsspjöld
Jólagjafapappír
Jólakort
Merkimiðar www.gudjono.is · Sími 511 1234
Sjá nánar
á heimasíðu
www.gudjono.is
Dagatalskubbar
- og jólapappír
Land undir urðunarstað
Sorpstöð Suðurlands bs. óskar eftir landi
undir urðunarstað til kaups eða leigu. Æskileg
staðsetning er á svæðinu frá Hellisheiði í
vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri.
Æskilegt er að landið sé vel staðsett gagnvart
en fjarri vatnsverndar- og útivistarsvæðum.
Lágmarksstærð lands er 30 ha. Á staðnum yrði
lífrænum úrgangi. Áætlaður rekstrartími er 30 ár
en leigutími að lágmarki 60 ár ef um leigu yrði
að ræða.
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS selt tréglugga og hurðir á Íslandi
Gluggar og hurðir með eða
án álkápu, allir RAL litir í
boði að innan og utaverðu
Afhendist glerjað og tilbúið
til uppsetningar
Afgreiðslutími 5-8 vikur
Sjá nánar á: viking.ee
Nánari upplýsingar gefur
Ólafur í síma 480 0009
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
-25%
afsláttur
af völdum hestavörum
Múlar • Taumar • Pískar • Skeifur • Fjaðrir • Skaflar
Hófhnífar • Burstar • Klórur • Kambar Reiðhanskar
Heyboltar • Stallmúlar • Hófhlífar • Hnakkastatíf
Beislishanki • Hófolía • Hestasjampó • Faxúði
OPIÐ
BREIDD
Virka daga 8-18:30
Laugardaga 10-18
Sunnudaga 11-17
SELFOSS
Virka daga 8-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga LOKAÐ
SUDURNES
Virka daga 8-18
Laugardaga 10-14
Sunnudaga LOKAÐ
MENNING&BÆKUR
Fræðimaðurinn Þórður Tómasson
sem kenndur er við Skóga undir
Eyjafjöllum sendi nýlega frá
sér bók um heyannir á Íslandi.
Í bókinni fjallar Þórður um
heyskap fyrri alda og fléttar
saman þjóðfræði og atvinnusögu
landsmanna.
Í bókinni lýsir Þórður
verkfærum og vinnubrögðum,
heytorfi, reipum og reiðingum,
engjaheyskap, veðurboðum og
margvíslegum siðum og orðfæri
sem tengdist heyönnum. Sagt er
frá konum sem gengu að slætti
og sömuleiðis frá tækninýjungum
eins og „rakstrarkonum“ sem festar
voru framan á ljái, að ógleymdum
hestasláttuvélunum sem ruddu
sér til rúms í upphafi síðustu
aldar. Höfundur leitar víða fanga,
bæði í rituðum heimildum og hjá
fjölmörgum heimildarmönnum, og
textinn er kryddaður sögum, vísum
og kvæðum. Útgefandi er
Bókaútgáfan Sæmundur.
Ákvæðablettir eða
álagastaðir
Hér er gripið niður í
bókinni þar sem fjallað er
um ákvæðastaði í engjum
og túnum.
„Ákvæðablettir eða
álagastaðir eru dreifðir
um allt Ísland og um þá
er völ fjölda heimilda á
víð og dreif. Hér verður
greint frá skyldum sem
lítt hefur verið gaumur
gefinn í íslenskri
þjóðfræði og hljóta að
eiga fornar rætur. Alfarið
tengjast þeir heyönnum
og eiga sér einkunnir
kenndar við þerri, regn
(rosa) og fok. Ég kýs að
nefna þá ákvæðabletti.
Huldufólk og
dularverur hafa helgað
sér marga staði og lengst
af hélt þjóðin til mestra
muna rétt þeirra í heiðri.
Um þetta eru fjölmörg
vitni í þjóðsögum og
þjóðfræðaritum. Ég færi hér nokkur
fram úr því umhverfi sem er mér
nærtækast.
Þegar Jón sonur Jóns Ísleifssonar
fálkafangara, var ókvæntur, var hann
eitt sumar kaupamaður á Hörgslandi
á Síðu hjá Jóni hospítalshaldara
Jónssyni, Vigfússonar frá Varmahlíð.
Í túninu í Hörgslandi er hóll einn,
sem kallaður er Álfahóll og var það
forn trú að ekki mætti slá hólinn.
Því ef það væri gert kæmu veður
svo mikil að skaði yrði að og hafði
hóllinn ekki verið sleginn í manna
minnum. Jón kaupamaður hafði litla
trú á slíku og einn morgun þegar
sláttumennirnir voru út komnir og
voru að slá í kringum hólinn, var
veður heiðríkt og stillilogn. Þá talar
Jón kaupamaður um að það mundi
gera lítið til þó hann slægi nokkuð
lítið upp í hólinn, því honum þætti
hann grasmikill. Vinnumennirnir
vildu það ekki, en húsbóndinn var
ekki út kominn. En svo fór að Jón
réði og sló nokkuð upp í hólinn.
Síðan settust þeir niður hjá hólnum
og fóru að brýna og var blálogn enn.
Á meðan þeir eru að brýna, fer að
hvessa í einu kasti. Hey var mikið
úti, bæði flatt og í sæti. Hvessir hann
nú svo snögglega að hey fer óðum að
fjúka. Í þessu bili kemur húsbóndinn
út til þeirra og fer að tala um við
þá að heyið muni ætla að fara allt
út í veðrið. En vinnumenn segja að
það sé von til því Jón kaupamaður
hafi slegið upp í hólinn þó þeir hafi
varað hann við að gera það. Jón
kaupamaður situr agndofa og fer að
hugsa með sér að þetta sé þó eitthvað
óskiljanlegt og víst muni heyskaðinn
allur sér verða kenndur. Og eftir litla
þögn stendur hann upp, tekur orf
sitt og segir hátt svo allir heyra, að
ef nokkur vera sé í hólnum eða hér
nærri sem orsakað hefði þennan
mikla storm þá sé hún eins máttug
til að láta lygna aftur, og ef hún
ekki geri það þá skuli
hann nú þegar slá allan
hólinn og berja hann
að utan eins og hann
geti, hvað sem á eftir
komi, og er illur í skapi
og býr sig þegar til að
fara að slá hólinn. En að
þessum orðum töluðum
fer heldur að draga úr
veðrinu og bráðlygnir
svo á skammri stundu og
varð enginn heyskaði,
var logn og heiðríkja
eftir um daginn.
Almennt talað var
djúp virðing borin fyrir
álagablettum. Brot
gegn þeim heyrðu til
undantekninga. Bóndi í
slægjuþröng lét þá í friði.
Í Barðstrendingabók
1942 (bls. 89) segir frá
Móbergi á Rauðasandi,
býli í mikilli landkreppu:
„Álagablettur er þar í
landinu, grösugur mjög,
sem ekki má slá, eftir
gamalli trú og þykir ekki
góðri lukku stýra er út af
er brigðið.“
Heyannir - Um baráttu þjóðar fyrir lífi sínu:
Álagablettir í engjum og túnum