Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 27
Undir hrauni heitir ný skáldsaga
eftir Finnboga Hermannsson,
rithöfund og fréttamann
á Ísafirði. Sagan byggir á
sögulegum atburðum hér á landi
á stríðsárunum. Aðfaranótt 10.
maí 1940 þegar Bretar tóku
Ísland herskildi flúðu tveir þýskir
skipbrotsmenn úr Reykjavík
með senditæki í fórum sínum
og tóku sér bólfestu austur í
Rangárvallasýslu.
Hér á eftir má lesa kaflabrot um
fund þýsku skipbrotsmannanna og
rangæskra bænda. „Bændur undir
Heklurótum urðu þeirra fyrst varir.
Voru þeir að smala til rúnings einn
þurran og sólfagran dag þegar þeir
tóku eftir fataplöggum sem hengd
höfðu verið til þerris á trjágreinar
í hólma einum í Rangá. Sá hólmi
nefnist Tjörvastaðahólmi. Fór nú
margt um hugann hjá bændum og
bændasonum sem voru með í för
og biðu átekta. Varð úr að hinir eldri
mennirnir knúðu drógir sínar út í
ána sem var tæplega í kvið. Þegar
þeir komu yfrum voru tveir menn að
skríða úr tjaldi sínu allskelkaðir að
sjá en meira hissa. Þeir höfðu búist
við brugðnum byssustingjum þegar
þeir heyrðu mannaferðina. Þeim létti
stórum í tjaldgættinni að sjá þar
bara búandmenn sem héldu í hross
sín. Bændur heilsuðu að sveitasið
og sögðu til sín. Komust að því að
þetta voru Þjóðverjar sem skildu
og töluðu ögn íslensku. Sögðust
þeir stunda veiðar í ánni og skjóta
fugla sér til viðurværis. Veiðistöng
lá á tjaldinu og haglabyssa var
hvílunautur þeirra við höfðagaflinn.
Jafnframt var þar sérkennilegt tæki
sem bændum fannst vera senditæki
einhvers konar. Við það voru tengdar
rafhlöður.
Bændur réðu nú ráðum sínum
og veltu fyrir sér erindi mannanna
á þessum slóðum. Engin ný bóla
að Þjóðverjar væru að þvælast um
landið og höfðu verið að rannsóknum
það sem af var öldinni. Kom í ljós að
þessir voru af Bahía Blanka og höfðu
lagst út nóttina sem Bretar hernámu
landið 10. maí. Hafði ræðismaðurinn
ef til vill haft pata af því að bresk
innrás væri yfirvofandi og vildi gera
út njósnarmenn?
Í Rangárvallasýslu voru tveir
valinkunnir Þjóðverjar og bjuggu á
Hellu, annar bókari, hinn skraddari.
Ekki hrófluðu Bretar við mönnum
þessum. Ef til vill voru það kynni
bænda við Þjóðverjana að þeim þótti
ekki einboðið að afhenda Bretum
drengina úr Tjörvastaðahólma.
Breskir hermenn höfðu
komið austur til leitar og miðað
nákvæmlega út senditæki piltanna
þarna í hólmanum í Rangá. Einnig
kom íslenskur túlkur með þeim
austur. Sá var þekktastur fyrir
þýskukennslu í útvarpinu. Bretar
reyndu að fá upplýsingar um
Þjóðverjana með fagurgala en ekki
nærgangandi pínd sem þeir voru
þekktir að. Í minni manna er að
þýskukennarinn gaf sveitabörnunum
brjóstsykur og reyndi að hæna þau
að sér með fleðulegu fasi ef honum
tækist að draga eitthvað upp úr þeim.
En hvorki gekk né rak. Gistu Bretar
og þýskukennarinn í Næfurholti
undir Heklufjalli enda ekki í nein
önnur hús að venda á þessum
slóðum. Gestrisni bændafólks fór
ekki í manngreinarálit eða gerði
mismun á þjóðerni manna.
Aumingja blessaðir mennirnir
þurftu einhvers staðar að gista
og fá góðgerðir. Þetta var samgróið
íslenskri bændamenningu.
Bókaútgáfan Sæmundur
gefur út.
SAMTÖK KVENNA UM
NÝJA STJÓRNARSKRÁ
Ný stjórnarskrá hefur þegar verið samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Núverandi stjórnarskrá var
skrifuð af dönskum karlmönnum. Konur á Íslandi sætta
sig ekki lengur við að lúta grundvallarlögum sem þær
höfðu hvorki tækifæri né rétt til að taka þátt í að móta.
Þær krefjast nýrrar stjórnarskrár.
YFIR TVÖ
ÞÚSUND KONUR
KREFJAST NÝRRAR
STJÓRNARSKRÁR
Frjáls framlög til samtakanna:
Kt. 691018-0830, banki: 0133 -26 - 020238
MENNING&BÆKUR
Finnbogi Hermannsson, rithöfundur og fréttamaður, með nýja skáldsögu – Undir hrauni:
Þýskir flóttamenn hitta
fyrir íslenska bændur