Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201832 Í nýlegri skýrslu Náttúrufræði- stofnunar Íslands er greint frá niðurstöðum rannsókna á framvindu gróðurs á svæðum þar sem alaskalúpína hafði vaxið og breiðst út um áratuga skeið. Fram kemur í skýrslunni að með hlýnandi veðurfari og samdrætti í sauðfjárbeit megi búast við að útbreiðsla lúpínu og gróðurs sem fylgir í kjölfar hennar, svo sem skógarkerfils, margfaldist á næstu áratugum og að miklar breytingar verði á gróðurfari og búsvæðum dýra vegna þessa. Rannsóknirnar fóru fram árin 2011–2014 á 15 svæðum á suður- og norðurhluta landsins. Þær voru endurtekning á rannsóknum sem fóru fram á sömu svæðum um 20 árum fyrr. Höfundar skýrslunnar eru Borgþór Magnússon, Sigurður H. Magnússon og Bjarni Diðrik Sigurðsson. Hver eru áhrif lúpínu? Markmið með rannsóknunum var að leita svara við spurningum um í hvers konar landi lúpína breiðist út, hvort hún breiðist yfir gróið land, hvaða gróðurbreytingar fylgi henni, hvort hún víki með tímanum og hvaða áhrif hún hefur á jarðveg. Helstu niðurstöður Lúpína breiðist yfir fjölbreytilegt land sem er allt frá því að vera nær ógróið, hálfgróið til gróið. Á úrkomusömum svæðum sunnan heiða myndar lúpína, á rýru landi, með tímanum blómríkt graslendi með miklum mosa í sverði. Þar á lúpína erfitt með að endurnýja sig af fræi og hörfar víða með tímanum og skilur eftir sig blómríkt graslendi. Þar sem úrkoma er lítil norðan heiða verður lítill mosavöxtur og næst þetta framvindustig hörfunar ekki á þeim 50 árum sem rannsóknir okkar ná til. Lúpína viðhelst meðan spírunarskilyrði fyrir hana eru til staðar. Norðanlands breiðist lúpína inn á gróið mólendi með fremur ríkum jarðvegi. Þar myndast með tímanum elftingaríkt land með lúpínu og blómjurtum. Lúpína virðist lítið hörfa af því landi enn sem komið er. Hörfun lúpínu getur orðið við það að skógur vex upp í breiðum eftir að plantað er í þær, eða við sjálfsáningu í gisnum breiðum. Þá getur lúpína látið undan við sauðfjárbeit eða úðun með illgresiseyði. Síðan eru dæmi um að skógarkerfill leggi undir sig lúpínubreiður og verði einráður, en hversu lengi hann viðhelst í landi er óljóst. Niðurstöður milli landshluta Um sunnanvert landið er úrkomusamara en norðanlands og vaxtarskilyrði betri fyrir lúpínu. Sunnanlands var framvinda í lúpínubreiðum fremur lík frá einu svæði til annars. Þar myndaðist með tímanum graslendi í lúpínunni með tvíkímblaða jurtum og þéttu mosalagi í sverði. Á nokkrum svæðum hafði lúpína gisnað mikið eða hörfað á gömlum vaxtarstöðum en ekki var það alls staðar. Á Norðurlandi var framvinda misjöfn eftir aðstæðum. Á melum í útsveitum sóttu einkum grastegundir í gamlar breiður en á þurrari svæðum inn til landsins þar sem lúpína var gisnari þróaðist gróður í mólendisátt á gömlum melum og í skriðum. Lúpína breiddist hins vegar auðveldlega yfir gamalt mólendi norðanlands og óx þar vel á moldarríkum jarðvegi. Þar gjöreyddist lynggróður en myndaðist með tímanum elftingaríkt blómlendi í gömlum breiðum. Ekki komu fram jafn skýr merki um hörfun lúpínunnar norðanlands og sunnan, nema í Hrísey þar sem skógarkerfill hafði lagt undir sig gamla lúpínu. Lítið annað en kerfill fannst í því landi. Sú tilgáta er sett fram í skýrslunni að hörfun lúpínu sunnanlands stafi af myndun þétts og þykks mosalags og miklum grasvexti undir lúpínunni sem veldur því að það tekur fyrir endurnýjun hennar af fræi. Með tíð og tíma ganga plönturnar úr sér og drepast ein af annarri og hverfur lúpínan úr landi. Á Norðurlandi er mosa- og grasvöxtur í lúpínubreiðum miklu minni en sunnanlands. Þar tekur því síður fyrir endurnýjun lúpínu af fræi er árin líða. A l a s k a l ú p í n a hefur breiðst mjög út á friðuðum svæðum um allt land á undanförnum áratugum. Víða hefur verið gripið til aðgerða til að hefta útbreiðslu hennar, með misjöfnum árangri. Lúpína hefur aðeins numið brot af því landi sem hún er fær um. Líklegt er að sandar og aurar sunnan jökla og mólendissvæði á Norðurlandi séu stærstu flæmin sem lúpína mun breiðast um, dragi þar úr eða taki fyrir sauðfjárbeit. Lúpínan hefur verið skilgreind sem ágeng, framandi tegund hér á landi og er dreifing hennar bönnuð á svæðum yfir 400 m hæðar. /VH Langtímaáhrif alaskalúpínu á gróður og jarðveg á Íslandi: Lúpína viðhelst meðan spírunarskilyrði eru til staðar Lúpína í blóma. NÍ-18005 Langtímaáhrif alaskalúpí nu á gróður og jarðveg á Ísland i Borgþór Magnússon, Sigu rður H. Magnússon og Bjarni Diðrik Sigurðss on Mynd / Borgþór Magnússon. AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL Dularfullur fisksjúkdómur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss hefur valdið heilabrotum: Silungadauði rakinn til víruss sem drepur líka lax í Norður-Atlantshafi og Kyrrahafi Á hverju sumri drepst brúnn silungur í tonnatali í ám og vötnum í Suður-Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Nú hefur þverfaglegt teymi frá Tækniháskólanum í München (TUM) komist að því að orsök þessa dularfulla silungadauða er áður óþekktur vírus sem herjar m.a. á lax í Norður-Atlantshafi og Kyrrahafi. Staðirnir sem silungadauðans hefur orðið vart í fyrrnefndum löndum eru alltaf þeir sömu ár eftir ár og fórnarlömbin eru í öllum tilvikum brúnn silungur. Á nokkrum dögum eftir smitun verður roð þeirra mjög dökkt og síðan drepast fiskarnir. Vísindamen hafa reynt að grafast fyrir um þennan fjöldadauða í silungastofninum án árangurs um áratugaskeið þar til nú. Með því að beita óvenjulegum rannsóknaraðferðum hefur prófessorinn og líffræðingurinn Ralph Kühn og rannsóknarteymi hans í Tækniháskólanum í München tekist að bera kennsl á sjúkdómsvaldinn sem veldur þessu dökknunarheilkenni [the proliferative darkening syndrome - PDS] á roði brúnna silunga. „Stærsta áskorunin var að komast að því hver væri þessi sjúkdómsvaldur sem enginn þekkti deili á. Menn voru alls ekki vissir um hvort þetta var af völdum víruss, baktería eða vegna eitrunar í umhverfinu,“ segir Kühn. Í tíu ár héldu vísindamenn áfram að leita að orsökinni. Settar voru upp tilraunastöðvar við ána Ille nærri Obersdorf í Þýskalandi þar sem þessa sjúkdóms hafði aldrei orðið vart. Önnur stöð var sett upp neðar á vatnasvæðinu nærri Kempten þar sem brúnn silungur drapst á hverju sumri. Á báðum stöðum settu rannsakendur upp fiskabúr sem vatn var leitt í úr ánum. Þeir veiddu fisk til að setja í búrin á tímabilinu frá maí og fram í september og tóku úr þeim húð- eða roðsýni sem voru síðan fryst og send í rannsókn í Tækniháskólanum. Orsökin reyndist vera vírus Athuganir vísindamanna bentu til að PDS þróaðist í þrem áföngum. Í upphafi virtust fiskarnir heilbrigðir. Síðan byrjuðu innyfli að breytast eins og lifur og nýru. Í þriðja fasa sjúkdómsins fór roð fiskanna að dökkna og fljótlega eftir það drápust þeir. Vegna þessarar þróunar sjúkdómsins fór okkur fljótlega að gruna að orsök heilkennisins væri veirusjúkdómur,“ sagði Kühn. Skyldur vírus sem drepur lax í Atlantshafi og Kyrrahafi Til að einangra vírusinn í sýnunum beittu vísindamennirnir nútíma sameindaerfðafræðilegum aðferðum sem þekktar eru sem „næstu kynslóðar tækni“. Hægt er að ná fram mjög nákvæmum greiningum með slíkri tækni. Beittu vísindamennirnir einnig tölvutækninni til að finna nákvæmlega þessa sjúkdóms- valdandi veiru í fyrir liggjandi gagnabanka. Var genamengið í þessum vírus síðan borið saman við þekkta vírusa og gátu þannig ákvarðað erfðamengi sjúkdómsvaldsins. Kom þá í ljós að veiran er skyld veiru sem veldur smiti í laxi í Norður-Atlantshafi og í Kyrrahafi og veldur þar miklu tjóni. Næsta skref er að rækta veiruna á rannsóknarstofu og kanna orsakirnar fyrir því af hverju hún finnist bara í ákveðnum hluta vatnakerfis í Ölpunum og í hvaða mæli viðskipti með fisk getur breytt út sjúkdóminn. /HKr. Jens-Eike Täubert rannsakar tilfelli sýkingar af PDS heilkenni í brúnum silungi. Mynd / Dýralíffræðideild TUM Brúnn silungur (brown trout) sem Íslendingar þekkja sem urriða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.