Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 63
Nice & Mónakó
sp
ör
e
hf
.
Vetur 1
Glæsileg ferð á frönsku rivíeruna eða Côte d‘Azur þar
sem við njótum lífsins og tökum þátt í hátíðahöldum
heimamanna á blómahátíð í Nice og upplifum
ævintýralega sítrónuhátíð í Menton. Fetum í fótspor
kvikmyndastjarna í Cannes og látum suðrænan blæ leika
um okkur í furstadæminu Mónakó.
28. febrúar - 8. mars
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 238.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Finnbogi Hermannsson
UNDIR HRAUNI
Spennandi frásögn sem byggir á raunverulegum atburðum
þegar tveir þýskir skipbrotsmenn flúðu undir breska hern-
um upp í Hekluhraun og unnu þar í púlsvinnu fyrir Selsunds-
bónda. Sagnaþulurinn Finnbogi fer á kostum.
SNJÓKEÐJUR
FRÁ
Keðjur og keðjuefni frá Nordchain í
Svíþjóð. Hér er um að ræða gæða vöru á
samkeppnishæfu verði, ýmsar stærðir til.
LÍF&STARF
Myndir / Vignir Sigurðsson
Eyjafjörður:
Snjórinn ekki á sínum
„vanalegu“ stöðum
Töluvert fannfergi hefur verið
á völdum stöðum í Eyjafirði
undanfarnar tvær vikur, en gera
má ráð í ljósi hlýinda í gær og dag
að eitthvað láti undan.
Sigurgeir Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðar sambands
Eyjafjarðar, segir stöðu mála
varðandi snjóinn fremur skondna.
„Frammi í Svarfaðardal, þar sem
oft er mesti snjórinn, er nánast autt
en allt á kafi í snjó á Dalvík og næsta
nágrenni. Sama er upp á teningnum
í Hörgárdal, þar er svo gott sem autt
fram í dal en mun meira snjómagn
eftir því sem nær dregur sjónum,“
segir Sigurgeir. /MÞÞ
ON hraðhleðsla á Flúðum liður í
bættri þjónustu við ferðamenn
Það ríkti mikil tilhlökkun
síðastliðinn föstudag þegar
þau Guðmundur Sigurhansson
og Margrét Runólfsdóttir á
Icelandair hóteli opnuðu fyrstu
ON-hlöðuna á Flúðum með því
að hlaða Hyundai Kona EV,
fyrsta rafknúna smájeppann í
Evrópu.
Hlaðan stendur við Icelandair
hótelið og blasir við um leið og
komið er inn í bæinn. Það eru
hjónin Guðmundur Sigurhansson
og Margrét Runólfsdóttir sem eiga
og reka hótelið og hafa gert
síðan 2001.
„Við lítum fyrst og fremst á
ON-hlöðuna sem bætta þjónustu
við ferðamenn sem heimsækja
svæðið, jú og auðvitað við íbúa
hér í hreppnum og nærsveitum,“
segir Guðmundur.
„Hlaðan á Flúðum er búin
hraðhleðslum af tvennum
toga og hefðbundinni hleðslu.
Hrunamannahreppur leggur mikla
áherslu á eflingu umhverfismála
og einn liður í þeirri vegferð er að
ferðafólk eigi nú betur með að ferðast
á vistvænum bílum um svæðið sem
er í takti við sýn heimamanna,“ segir
Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri
Hrunamannahrepps.
„Hér er margt að skoða og
gríðarlega stór hluti ferðamanna á
leið hér um. Það er sjálfsagt mál
og ekki síst samfélagsleg ábyrgð
okkar að bjóða
upp á öfluga hleðslu fyrir þá
sem huga að umhverfinu,“ segir
Margrét. Hlaðan á Flúðum er sú 47. í
röðinni, en eitt af markmiðum Orku
náttúrunnar er að rafbílaeigendur
geti ekið áhyggjulausir um landið,
vitandi hvar næstu ON hlöðu er að
finna.
opnuðu fyrstu ON-hlöðuna á Flúðum
Myndir / Guðjón Hugberg